Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Page 17

Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Page 17
upp bænir um kraft og styrk, áður en gengið er út i dagsins önn. Að því búnu hefst kennslan, og stendur hún fyrst yfir til kl. 11. Þá taka við langar frímínútur, og göng- um við þá út í eldri bygginguna og gæðum okkur á brauði og heitu hafraseyði. Þá kemur pósturinn, og allir bíða með eftirvæntingu eftir bréfum að heiman. En margur verður að hverfa frá vonsvikinn og dauf- ur í dálkinn — því að ekkert fékk hann bréfið i það sinnið. Kennslan kallar aftur eftir hálftíma og stendur yfir til nóns. Þá fáum við miðdegisverð. Eftir það er yfirleitt frí frá kennslu, nema suma daga, sem við þurfum að fara i siðdegistíma. 1 frístundum hafa menn margt fyrir stafni. Við getum t. d. farið í gönguferð inn i skóginn. Um þess- ar mundir notum við tækifærið og föi*um á skíði. Hérna er nægur snjór, og rétt fyrir ofan skólann er veglegur skíðaskáli og ein bezta og stærsta skíðalyfta Noregs. Við borðum kvöldmat kl. 7, en eftir það eiga allir að fara á herbergi sín og lesa lexíurnar. Áður en við förum í háttinn, fáum við að viðra okkur i stundarfjórðung, frá kl. 9,30 til 9,45. Kl. 10 eiga allir að vera komnir á herbergi sín, og hálftima síðar á að vera komin á kyrrð og ró. — Þannig líður dagurinn. Það kemur oft fyrir, að við fáum heimsókn. Koma þá kristniboðar, prédikarar, hljómlistarmenn og ýms- ir aðrir. Einu sinni kom hingað kristinn kínverskur læknir. Hann talaði á kínversku, en norskur kristni- boði túlkaði. Annað sinn bar að garði japönsk hjón. Einnig töluðu þau á sínu móðurmáli, og það var kristniboði, sem túlkaði. Þau fræddu okkur mikið um Japan, og var konan í japanska þjóðbúningnum. — Hingað kom eitt sinn söngstjóri, sem æfði okkur i söng. Við sungum við raust frá morgni til kvölds í tvo daga samfleytt! f „Hvíta salnum“ eru haldin sérstök nemenda- kvöld á hverjum laugardegi. Það eru nemendumir sjálfir, sem sjá um þessi kvöld að mestu leyti. Vald- ir eru um það bil sex nemendur til að annast hvert kvöld. Þessar samkomur eru mjög líkar fundunum í Kristilegum skólasamtökum heima. Bæði gaman og alvara. Samverunni lýkur jafnan með Guðs orði, og það er alltaf einn af nemendunum, sem tekur þann þátt að sér. Á miðvikudagskvöldum safnast nemendur aftur saman í „Hvíta salnum“. Þá eru gefin tækifæri til vitnisburðar, og síðan er sambænastund. Þetta eru einhverjar dásamlegustu stundirnar, sem við eigum hérna á „Verkinu“, þegar ungt fólk vitnar um sinn bezta vin og frelsara og þegar hljóðar bænir um frelsi og frið stíga upp til hans, sem hefur allt vald á himni og jörðu. Og hann stendur með útbreiddan faðminn og segir: „Komið til mín allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og eg mun veita yður hvíld“ (Matt. 11,28). KRISTILEGT SKOLABLAÐ J5

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.