Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Síða 23

Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Síða 23
(Það er eg. ó, Droítinn, sem þarfnast bænar, ekki bróSir minn né systir mín, helcLur eg, ó, Drott- inn.) Til eru menn, sem hafa flúið lönd kommúnista og halda því fram, að á slíkum stöðum sé ekki unnt dð vera kristinn, kirkjan hafi misst frelsi sitt, þar sé allt trúarlíf drepið í dróma. En méðal hinna svörtu þræla Vesturheims sjáum við annað viðhorf, já, aðra reynslu. Þeir hafa nefnilega ekki látið bugast, þótt að þeim væri þjarmað. Þvert á móti eiga þeir glóð trúarinnar. Samvizkan er vakandi, þeir berjast við sínar eigin syndir og breyskleika og biðja Guð um huggun og styrk. Lítum t. d. á sálminn „Balm in Gilead“: There is a balm in Gilead To make the wounded whole. There is a balm in Gilead To heal the sin-sick soul. (Til er balsam í Gíleað til að lækna hinn sœrða. Til er balsam í Gíleað til að grœða hina synd- þjáðu sál.) Og þeim nœgir ekki að halda í horfinu. Löngunin lifir að vaxa í þekkingu á Jesú, og enda þótt þeir geti ekki látið það í Ijósi méð stór- fenglegri játningu eins og Pétur, þá geta þeir sagt frá kærleika sín- um til hans, sem lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir þci. Gaman er að virða fyrir sér, hvernig Svertingjarnir syngja um kirkju Krists, söfnuð hans á jörðunni. Svo segir á einum stað: „I am working on the building for my Lord“. (Eg vinn að því að reisa hús Drottins míns.) Og í nœstu versum skýra þeir frá, hversu fúsir þeir séu til að leggja fram krafta sína kirkju Krists til útbreiðslu og eflingar. 1 öðrum sálmum kvéður við sá tónn, að söfnuður Guðs geti ekki glaðzt sannri gleði, méðan til séu í hópn- um menn, sem lifa ekki í gléði Krists, eru latir og hirðulausir Svartir æskumenn horfa vonglaðir til framtíðarinnar. Skyldu þeir læra sönginn uni Jesúm? eða jafnvel hrœsnarar. Slíkir menn hindra fram- gang Guðs ríkis, og þess vegna þarf hver einstak- lingur að endurnýjast. Enn eitt dœmi þess, að trú negranna var lifandi trú. Skipting kirkjunnar í ýmsar deildir kemur líka við sögu. The Church is out of union, That’s what worry me. ú %% •i ;v ÆMÉ 4 y m 1 if ‘ (Iíirkjan hefur týnt einingu sinni; það er þetta, sem veldur mér hug- arangri.) Það fór ekki fram hjá Svert- ingjunum, að baptistar og meþó- distar kepptust um að vinna hylli þeirra. Það er ekki laust við, að kímni gœti í þessum Ijöðlínum: The baptist go by water, The methodist go by land. But when they come to heaven, They shake each other’s hand. (Baptistarnir fara um vatnið, meþódistarnir fara á landi, en þegar þeir koma til himins, tak- ast þeir í hendur.) „Það skiptir ekki máli, hvaða kirkju þú tilheyrir“, syngja þeir. „Það, sem allt veltur á, er að þú lifir fyrir Jesúm. Ef þú gerir það, bróðir minn, þá réttu mér hönd þína.“ — Sálmalögin sjál f eru bæði runnin frá Afríku og úr söfnuð- um þeim, sem þrœlarnir komust í snertingu við í Ameríku. Þau hafa á sér sérstakan blœ. Mörg eru ákaflega einföld og barnsleg eins og textinn og oft dillandi og takt- föst, svo sem algengt er um tón- list Afríkumanna. Víxlsöngur er tíður, og ekki er alltaf lögð áherzla á að halda skýrri laglínu, heldur hafa söngvarar — og hljóðfœra- leikarar frjálsar hendur að vissu marki, þeir „leika af fingr- um fram“, svo að lagið getur birzt í ýmsum tilbrigðum. Svo segja þeir, sem verið hafa á samkom- um Svertingja í Ameríku, að lög- in hafi mjög sefjandi áhrif á Svertingjana. Hér hefur verið bent á, að negro spirituals eru fyrst og fremst scdmar. Þeir tjá djúpa og einatt dýrkeypta reynslu fólks, sem hafði fundið, að Kristur Jes- ús fer ekki í manngreinarálit, heldur er hann einnig nálægur til hjálpar þeim, sem mennirnir hafa yfirgefið eða jafnvel valdið hinni sárustu ógæfu. Þess vegna skyldum við ekki misþyrma þess- um söngvum, eins og stundum á sér stað, heldur meta þá að verð- leikum og njóta þeirra á réttan hátt. —ened—. KRISTILEGT SKOLABLAÐ 21

x

Kristilegt skólablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.