Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Page 31

Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Page 31
(.I 5ÍWU OIIV .IÓVSSOV, Ken narasknl a fslamls Treystir þú orðum Jesú? „Sjá, eg er me<5 yður alla daga, allt til enda veraldarinnaru (Matt. 28, 20). Í>etta er eitt af mörgum fyrirheitum Jesú. Ein- mitt vegna þessa átt þú því láni að fagna að fá að heyra fagnaðarboðskapinn um Jesúm og lífið í hon- um. I öruggri trú til þessara orða Jesú Krists hafa lærisveinar hans boðað fagnaðarerindið og haldið uppi merki krossins allt fram á þennan dag. Og nú er komið að þér, sem lest þessar línur. Treystir þú þessum orðum Jesú, er hann segir: „Ég er með þér alla daga“? Hvaða afstöðu ætlar þú að taka til hans? Vilt þú ekki taka við Jesú sem per- sónulegum frelsara þínum og vini —■ honum, sem var kvalinn og deyddur á krossi vegna þinna synda? Hjá Jesaja stendur skrifað: „Hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgjörða; hegn- ingin, sem vér höfðum til unnið, kom niður á hon- um“ (Jes. 53, 5). Einmitt þetta gerði hann fyrir þig. Hvað ætlar þú að gera fyrir hann? Ætlar þú að ganga framhjá hon- um og láta eins og þér komi það ekkert við, sem hann hefur orðið að þola þín vegna? Langar þig til að halda áfram að ganga þann veg, sem þú hefur þeg- ar gengið svo lengi, og fjarlægjast Jesúm æ meir með hverju ári, sem líður? Hvað er það, sem stendur á milli þín og Guðs? Hvaða veggur er það? Er það ef til vill eitthvað, sem þér er mikils virði, en þú heldur, að þú missir af, ef þú gerist lærisveinn Krists? Eða heldur þú, að það sé svo einhæft og leiðinlegt líf, sem trúaður maður lifir — aldrei nein tilbreyting, allt gangi sinn vana- gang? Nei, láttu engar þvílíkar hugsanir ná taki á þér, svo að þær verði til þess, að þú snúir bakinu við Jesú og hirðir ekki um hann. Komdu til hans með allt í hans útbreiddu hendur. Og biddu hann að taka við þér, eins og þú ert — syndugur og einskis verður í þínum aug- um. Og þá muntu finna, þegar þú ert orðinn lærisveinn Jesú Krists, að nú hefur lífið héma á jörðunni ein- hvern tilgang, þú hefur eitthvert markmið að stefna að. Og þú munt geta tekið undir með Páli postula, er hann segir: „Lífið er mér Kristur“ (Fil. 1, 21). Ef til vill langar þig í raun og sannleika til að fylgja Jesú — já, þú hefur jafnvel tekið við honum sem leiðtoga lífs þíns. Hversu oft hafa ekki erfið- leikarnir sótt þig heim í þínu trúarlífi? Hefur þú kannski efazt um tilveru Jesú ICrists og verið í vafa um sannleika sumra orða hans í Biblíunni? Hafa skólasystkini þín gert gys að þér og að trú þinni? Og hefur þú ekki orðið að þola háðsglósur vina þinna, vegna þess að þú hefur viljað fylgja Jesú og lifa eft- ir hans vilja? Jú, vafalaust. Og þetta hefur þá ef til vill orðið til þess, að þú hefur yfirgefið Jesú, hætt að sækja samfélag trúaðra og lesa í Biblíunni þinni. Taktu þá eftir þessum orðum, sem standa í Efesus- bréfinu: „Styrkizt nú héðan í frá í samfélaginu við Drottin og í krafti máttar hans. Klæðizt alvæpni Guðs, til þess að þér getið staðizt vélabrögð djöfulsins" (6, 10—11). Taktu upp skjöld trúarinnar, og taktu þér í hönd sverð andans, sem er Guðs orð. Og þá getur þú litið vonarbjörtum augum til framtíðarinnar sem lærisveinn Jesú Krists. Að lokum: Guð gefi þér náð til þess að þú mættir varðveitast í trúnni og í samfélaginu við hami allt til enda. Og þá muntu reyna það, að þér er geymd- ur sveigur réttlætisins, eilíft líf með Guði. KRISTILEGT SKOLABLAÐ 29

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.