Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Qupperneq 34

Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Qupperneq 34
er, að enginn nýtur nokkurs styrks frá ríkinu. Eins og skiljanlegt er, hafa þessar mörgu kirkjudeildir orðið fyrir áhrifum hver af annarri. Sameiginleg ein- kenni allra kirkjudeilda mótmælenda má segja, að sé áhugi þeirra á þjóðfélagsumbótum, og hafi prédikun sumra kirkna helzt miðazt að siðfræðilegum boðskap einum, en ekki beinlínis fagnaðarerindinu. En þetta er nú óðum að breytast, og unnið er að því, ekki sízt í lúthersku kirkjunni, að bæta mennt- un presta og ennfremur að endurbæta fræðslukerfi safnaðanna og auka áhuga fyrir Biblíulestri og játn- ingarritum kirkjunnar. Við sjáum orðið æ betur, að eigi kirkjunni að vera unnt að fegra og göfga þjóð- lífið og gefa meðlimum sinum siðferðilegan þrótt og styrk, verður hún að halda sig fast við það að boða fagnaðarerindið um Jesúm Krist, Guðs einget- inn son, sem keypti oss mönnunum líf með blóði sinu. —■ Við stöndum upp og tökum undir þessi síðustu orð gestgjafa okkar, þökkum kærlega fyrir okkur og ök- um á brott. Fornleifafræöin og Biblían Framh. af bls. 27: fyrstu blaðsíðum hennar til hinnar síðustu, er lýsir hinni sigrandi kirkju á himnum. Líf mitt og líf þitt fellur inn í þessa framrás, er partur af henni. Bibl- ían kennir, að líf okkar mannanna í dag hafi þenn- an tilgang, vilja Guðs. Og hún flytur okkur orð Guðs um líf okkar, — hvers eðlis það er, hvaða merkingu það hefur, hvernig því ber að lifa. Og hún flytur okkur orð Guðs um mátt hans og anda, sem megnar að hefja líf oldkar upp í æðra veldi. Það orð birtist alls staðar í Biblíunni, en skýrast í Kristi. Er það orð satt? Það er spurningin, sem hver og einn þarf að svara. Og sú er spurningin um hið raunverulega sannleiksgildi Biblíunnar — spurningin um sannleika hins biblíulega orðs. Sonur særingamannsins Framh. af bls. 6: Ýmis atvik, sem of langt yrði að greina frá hér, urðu þess valdandi, að hann fékk inni í heimavistinni hjá okkur, og þar er hann enn, og fáa nemendur bindum við kristnihoðarnir meiri vonir við en Gebbino, son særingamannsins Símgúggu frá Burgudeyja. 22. júlí s. 1. var liann skírður í nafni hins þríeina Guðs. Vitn- isburður lians um kærleika Drottins Jesú er heill og hrenn- andi, og fáa hef ég liitt, og þó víða farið, sem eru jafn einlæg- ir lærisveinar Drottins og sýna það á jafnhrífandi hátt, að þeim er alvara, þegar þeir segjast vilja fylgja Jesú, hvað sem það kostar. Faðir hans setur sig aldrei úr færi með að hiðja honum höl- liæna. Þeim hölhænum svarar Gehbino með fyrirbænum fyrir föður sínum. Oft hef ég heyrt hann fara þess á leit við trú- systkini sín í Ivonsó, að þau sameinist honum í þeirri bæn. Nú á liann þess kost að koma þeirri bón á framfæri við kristna skólaæsku á Islandi. Ekkert mundi verma hjarta þessa þeldökka trúbróður ykk- ar eins og það, að þið mynd- uðuð bænaliring um foreldra hans og háaldraða ömmu, sem enn er á lífi. Staðar nem - einn - tveir! Framh. af bls. 13: Félag, sem hefur þann tilgang einan áS benda ungu skólafólki á veginn, sannleikann og lífiS, eilífa lífiS. Hver einstakur fund- ur og efni hans miSar aS þessu. Og hvers vegna? Vegna þess, aS Jesús einn megnar aS frelsa mennina, fafnt unga sem gamla, frá eilífri glötun til eilífs lífs —- og aSeins fyrir tru. Enn er þörf fyrir þennan sannleika og þörf á því aS kunngjöra hann ungu skólafólki, því áS hann er fafnnaúSsynlegur nú og hann var fyrir tœpum 2000 árum. K.S.S. er því félag fyrir þig, sem ert ungur skólanemandi — og hvert laugardagskvöld kl.8,30 ertu velkominn á fundi þess. R. 32 KRISTILEGT SKOLABLAÐ

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.