Skák - 15.03.1981, Síða 56
Frá fyrstu umferð. Stefán Þormar glimir við stórmeistarann Guðmund Sigur-
jónsson. Myndin sýnir vel þann feiknarlega áhuga sem á mótinu var i Vik.
Itraga Kristjánsson, Karl Þorsteins og Magnús Sólmundarson, Sœvar Bjarna-
son og Stefán Þórisson, Helga Ólafsson og Jón L. Arnason.
Margeir og Ásgeir Þór tapaði
fyrir Stefáni Þórissyni. Stefán
hafði unnið Benóný í þriðju
umferð og var eftir fjórar um-
ferðir í efsta sæti ásamt Helga.
í fimmtu umferð gerðist það
helst á efstu borðunum að Bragi
vann Guðmund, Margeir vann
Jóhann, Helgi sigraði Stefán og
Jón L. Jóhannes Gísla. Helgi
var nú orðinn einn efstur með
fimm vinninga og menn farnir
að hafa það í flimtingum að
helgarmótin væru rangnefnd,
nær hefði verið að kalla þau
Helgamót.
Er skemmst frá því að segja
að Helgi Ólafsson sigraði á móti
þessu. Hann gerði aðeins eitt
jafntefli, við Jón L. í síðustu
umferð. Bragi Kristjánsson var
í öðru sæti, en jafn Helga að
vinningum. Bragi vann góðan
sigur á Guðmundi í fjórðu um-
ferð, þar sem Guðmundur tefldi
erfitt (slæmt) afbrigði gegn
franskri vörn Braga. í s'ðustu
umferð gengu svo heilladísirn-
ar í lið með Braga, er Ásgeir
Þór lagði niður vopn gegn hon-
um algerlega að ástæðulausu að
því er virtist. Ég sé ekki ástæðu
til að ræða taflmennsku karl-
anna á þessu móti frekar, enda
fylgdist ég ekki nóg með henni
til Jress, vegna eigin þátttöku.
Þess í stað vísa ég til vinninga-
skrárinnar.
Ég fylgdist liins vegar betur
með konunum fimm sem tóku
Jrátt í þessu móti. Það er annars
furðulegt að í Vík skyldi vera
nær alveg sama hlutfall milli
karla og kvenna og er á Alþingi
íslendinga. Ég sé varla að til
séu heppilegri æfingarmót fyrir
konur en Jæssi helgarmót. Þarna
var Jró mætt til leiks aðallið
kvennasveitarinnar á Olympíu-
mótinu, Jrær Áslaug Kristins-
92 SKÁK