Skák


Skák - 01.06.1992, Blaðsíða 13

Skák - 01.06.1992, Blaðsíða 13
Lesendahornið Um tímareglur Föst hefð virðist komin á tíma- reglur í kappteflum sem þó ætti ekki að vera. Með breyttum reglum gæti fjöl- breytnin orðið meiri og reynslan hefur sýnt að þær reglur um tíma, sem í gildi eru, eru alls ófullnægjandi. Það hefur valdið margvíslegum leiðindum og óþægindum meðal skákmanna að vera rígbundnir fyrirfram ákvarðaðri tímasetn- ingu í kappteflum. Tímahrak hefur þá margsinnis orðið til þess að eyðileggja skemmtilegar skák- ir og hafa menn því oft freistast til að semja jafntefli í vænlegum stöðum og stundum allt að því ótefldum skákum og hefur marg- ur áhorfandinn verið hlunnfar- inn af þessum ástæðum. Gamla reglan um að ekki megi semja jafntefli fyrr en eftir 30 leikna leiki er auðvitað ótæk. Skák getur verið orðin dautt jafntefli löngu fyrr; en snjöll hugmynd væri þegar menn fá upp stöður, sem þeir vilja tefla áfram en hafa ekki til þess tíma, að mega kjósa sér tíma. í kappskák þar sem hvor kepp- andi hefur 2Vi tima til umráða á 40 leiki gæti þá annar hvor eða báðir kosið sér t.d. klukkutíma til viðbótar þegar upphaflegum tíma væri lokið. Auðvitað yrði það gert áður en klukkan félli. Enn frekar kæmi þetta til greina ef sú hugmynd kæmist í fram- kvæmd að stytta umhugsunar- timann t.d. í Wi tíma og Vi að auki eða hafa þá tímasetningu sem hentaði aðstæðum og gerði jafnvel betur í skák þar sem ekki væri miðað við tiltekinn leikja- fjölda. Reglurnar yrðu þá þær, að kjósi báðir sér tíma, héldust vinnings- hlutföll óbreytt, þ.e. vinningur, jafntefli og tap eins og verið hef- ur í Iok skákar og við fall á tíma héldust hlutföll óbreytt, félli sá sem engan tímann tæki. Fyrir að vinna skák, þar sem andstæðingurinn tæki tíma, kæmu tveir vinningar eða plúsar, einn fyrir jafntefli og hálfur fyrir tap. Þá væri tryggt, að keppandi tæki sér ekki tíma, nema á kostn- að útkomunnar í skákinni. Hægt væri að hugsa sér, að ann- ar keppenda, kjósi sér tíma til þess að færa sér stöðuyfirburði í nyt og fengi hann þá einn vinn- ing fyrir að vinna skákina en andstæðingurinn héldi jöfnu á tíma. í stað þess að bjóða jafn- tefli gæti keppandi þá boðið öðr- um að taka tíma. Tapi sá sem tímann tæki fengi hann 2 í mínus og fyrir jafntefli tap eða mínus. Til stigaútreiknis kæmi, hvort menn ynnu, töpuðu eða héldu jöfnu á tíma. Þannig gæti vígreifur keppandi í stað þess að semja jafntefli tekið tíma og fengið vinning þó and- stæðingurinn héldi jöfnu á tíma. Sömu reglur giltu um vinnings- hlutföll hvenær sem timi væri tekinn í skákinni. Tökum dæmi í fjögurra manna móti. Fyrri taflan væri með nú- verandi reglum en í þeirri síðari Björn Sigurjónsson hugsaður möguleiki með val- frelsi á tíma. Þarna væri um valfrelsi kepp- enda að ræða til að taka tíma eða ekki og tímahrakið, sem marga góða skákina hefur eyðilagt, yrði úr sögunni auk þess sem ná- kvæmari úrslit fengjust í mótum með tilliti til tímanotkunar og auðvitað gætu tefldar skákir orð- ið betri. A X Vi '/2 1 = 2 B ■/2 X '/2 1 = 2 C ‘/2 Vi X 0 = 1 D 0 0 1 X = 1 T T T T B X 1 Vi 1 1 II S A '/2 X Vi 1 1 = 3 C ‘/2 ‘/2 X 0 0 = 1 D 0 0 0 0 1 0 X = 1 B hefur tekið tíma og sigrar A sem þó heldur jöfnu. D hefur tekið tíma í öllum skák- unum og hafnar í neðsta sæti en það hefur C einnig gert á móti D. Björn Sigurjónsson SKÁK 137

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.