Skák - 01.06.1992, Blaðsíða 16
Haraldur Ingólfsson / Þorgeir Einarsson:
BRÉFSKÁKÞING ÍSLANDS
MEISTARAFLOKKUR / ALMENNUR FLOKKUR
Bréfskákþing Islands hefur verið
haldið reglulega frá árinu 1974.
Frá upphafi og allt fram til ársins
1988 var sá háttur hafður á að
nýtt mót hófst í öllum flokkum í
upphafi hvers árs.
Þessu fyrirkomulagi var síðan
breytt 1988 í þeim tilgangi að
reyna að laða að fleiri skákmenn.
Þá var tekin upp sú nýbreytni að
fækka í riðlum og hefja nýtt mót
jafnóðum og nægilega margir
höfðu skráð sig til keppni. Hér er
ætlunin að rifja upp gang mála í
nokkrum fyrstu riðlunum í
meistaraflokki og almennum
flokki, sem tefldir voru sam-
kvæmt þessu fyrirkomulagi. Á
komandi mánuðum höldum við
síðan áfram að segja frá úrslitum
í þessum riðlum þar til öllum
riðlum sem lokið er hafa verið
gerð skil, en þá munum við birta
lokaúrslit í riðlum jafnóðum og
keppni lýkur.
Til aðgreiningar milli flokka og
móta, kallast meistaraflokkur
BÍ-9M-(NR.) en almennur flokk-
ur BÍ-7M-(NR.).
Meistaraflokkur:
í meistaraflokki er teflt í níu
manna riðlum. Tveimur riðlum
er þegar lokið, en keppni í þrem-
ur riðlum stendur nú yfir.
SKÁKPRENT
DUGGUVOGI 23 • REYKJAVÍK
BÍ-9M-1 1 2 3 4 5 6 7 8 9
1. Birgir Karlsson, Garðabæ X 1 1 1 1 1 >/2 1 1 7/2
2. Gísli Hjaltason, Svíþjóð 0 X 1 '/2 1 1 1 1 /2 6
3. Sigurður Ö. Hannesson, Höfn 0 0 X 1 1 0 1 1 1 5
4. Bragi Gíslason, Reykjavík 0 ‘/2 0 X 1 1 /2 1 1 5
5. Kristján J. Jónsson, Osló 0 0 0 0 X 1 1 1 1 4
6. Sigurður H. Jónsson, Reykjavík 0 0 I 0 0 X 1 0 1 3
7. Guðm. Guðlaugsson, Vestm.eyjar '/2 0 0 >/2 0 0 X 1 /2 2/2
8. Ármann Olgeirsson, Vatnsleysu 0 0 0 0 0 1 0 X 1 2
9. Finnur Ingólfsson, Borgarnesi 0 ‘/2 0 0 0 0 /2 0 X 1
Skákstjóri: Þórketill Sigurðsson, Höfn
BI-9M-2 1 2 3 4 5 6 7 8 9
1. Ægir P. Friðbertsson, Súðavík X /2 1 /2 1 1 1 1 1 7
2. Magnús Gunnarsson, Selfossi /2 X /2 /2 1 1 1 1 1 6/2
3. Gunnar Hannesson, Reykjavík 0 /2 X 1 /2 1 1 1 1 6
4. Arinbjörn Gunnarsson, Garðabæ /2 /2 0 X 1 I 1 1 1 6
5. Sigurjón Þorkelsson, Vestm.eyjar 0 0 /2 0 X 1 1 1 1 4/2
6. Sigurður Ö. Hannesson, Höfn 0 0 0 0 0 X 1 1 1 3
7. Steingr. Steinþórsson, Hvammst. 0 0 0 0 0 0 X 1 1 2
8. Friðrik Guðlaugsson, Hafnarfirði 0 0 0 0 0 0 0 X 0 0
9. Rúnar Búason, Dalvík 0 0 0 0 0 0 0 0 X 0
Skákstjóri: Baldur Fjölnisson, Siglufirði
Aimennur flokkur:
I almenna flokknum er ellefu
riðlum lokið en keppni stendur
yfir í sex riðlum til viðbótar.
Helsta vandamálið sem steðjar
að almenna flokknum er hversu
margir hætta þar keppni. Sem
dæmi má nefna BÍ-7M-4 þar sem
fimm keppendur hættu, þannig
að í raun var aðeins ein skák
tefld til loka. Við þessu er
kannski ekki mikið að gera, en
þetta gerir skákstjórum oft erfitt
fyrir og er auðvitað leiðinlegt
fyrir þá sem halda áfram keppni.
Þeir sem hafa fylgst með þessum
skrifum okkar og hafa áhuga á
að reyna þetta form skákarinnar
eru hvattir til að íhuga málið vel
áður en skrefið er stigið. Auðvit-
að bjóðum við alla velkomna til
leiks en það þjónar litlum til-
gangi að skrá sig til keppni og
hætta síðan eftir skamma hríð,
jafnvel án þess að láta andstæð-
inga eða skákstjóra vita.
BARÁTTA Á BORÐINU I—II
Eftir D. Bronstein
Munið áskrifendaafsláttinn!
SKÁKPRENT
Dugguvogi 23 — Sími 31975
140 SKÁK