Skák - 01.06.1992, Blaðsíða 23
Áskorun tölvunnar
í janúarmánuði var efnt til skák-
keppni milli 30 ungra skák-
manna úr Skákskóla íslands
gegn 30 tölvum af Silicon Valley
gerð. Allar tölvunar tefldu með
M Chess forriti en voru mis-
öflugar. Tefldar voru fjórar tíu
mínútna skákir á hverju borði og
fóru leikar þannig að tölvan
sigraði með 91 Vi vinningi gegn
28’/2. Bestum árangri náðu
Þröstur Árnason og Bragi Þor-
finnsson en þeir sigruðu tölvuna
3—1. Þeir sem sigruðu tölvuna
einu sinni eða oftar fengu í verð-
laun skákforritið M Chess. Fyrir
keppninni stóðu fyrirtækið
Kjarni hf, Skákskóli íslands og
Taflfélag Reykjavíkur.
Sveitakeppni
grunnskólanna í
Reykjavík 1992
Sveitakeppni grunnskóla í
Reykjavík fór fram dagana
27—29 mars sl. 25 sveitir mættu
til leiks og tefldu níu umferðir
eftir Monrad-kerfi. Reykjavíkur-
meistarar urðu A-sveit Æfinga-
skólans með 33.5 vinning af 36.
Sveitina skipuðu eftirtaldir:
Arnar E. Gunnarsson, Bragi
Þorfinnsson, Páll A. Þórarins-
son og Björn Þorfinnsson. Vara-
maður var Jón E. Karlsson. í
öðru sæti var A-sveit Hóla-
brekkuskóla með 28 vinninga og
í því þriðja A-sveit Breiðholts-
skóla með 251/2 vinning.
Skákkeppni
framhaldsskóla 1992
Skákkeppni framhaldsskóla var
tefld dagana 21.—23. febrúar sl.
Alls tóku þátt átta sveitir og bar
skáksveit Menntaskólans við
Hamrahlið sigur úr býtum með
27 vinninga af 28 mögulegum. í
öðru sæti kom sveit Mennta-
skólans á Akureyri með 18 Vi
vinning og í þriðja sæti Fjöl-
brautarskólinn við Ármúla með
17 vinninga.
Jólahraðskák T.R. 1991
Jólahraðskákmót T.R. var haldið
dagana 29. og 30. desember s.l.
40 þátttakendur mættu til leiks
og tefldu í þremur riðlum.
Róbert Harðarson varð Jóla-
skákmeistari T.R. 1991. En hann
sigraði í A-riðli eftir aukakeppni
við Þorstein Þorsteinsson og
Arnar E. Gunnarsson. Sigur-
vegari í B-riðli var Ingi Fjalar
Magnússon og í C-riðli sigraði
Snorri Karlsson.
Útiskákmót!
Á vegum Skákskóla íslands og
Vinnuskóla Reykjavíkur verða
haldin útiskákmót við útitaflið í
Lækjargötu alla virka góðvirðis-
daga í júní og júlí í sumar. Þátt-
taka er ókeypis og öllum heimil.
Tefldar verða 7 umferðir eftir
Monradkerfi, 7 mínútna skákir.
Veitt verða bókaverðlaun fyrir
efsta sætið í hverju móti.
Mótin hefjast kl. 13:00.
Anand gegn unglingalandsliði
r
Skákskóla Islands
Klukkufjöltefli á milli indverska stórmeistarans Anands (skákstig
2650) og unglingalandsliðs frá Skákskóla íslands var teflt mánu-
daginn 7. október kl. 13:00 til 15:00. Teflt var á 8 borðum og hafði
hver keppandi 1 klst. Teflt var að Hótel Loftleiðum á tölvutengdu
borðunum sem notuð eru vegna Heimsbikarmóts Flugleiða.
Úrslit voru sem hér segir:
1. borð Héðinn Steingrímsson (2455) — Anand Vi—Vi
2. borð Helgi Áss Grétarsson T.R. (2270) — Anand 0—1
3. borð Anand — Snorri Karlsson T.R. (1960) 1—0
4. borð Magnús Ö. Úlfarsson T.R. (1960) — Anand Vi—Vi
5. borð Ingi Fjalar Magnússon T.R. (1935) — Anand 0—1
6. borð Anand — Jón Viktor Gunnarsson T.R. (1755) 1—0
7. borð Anand — Guðmundur Daðason S.V. (1590) 1—0
8. borð Anand — Bragi Þorfinnsson T.R. (1550) 1—0
Samtals: Anand — Unglingalandslið Skákskóla íslands 7—1
SKÁK 147