Skák


Skák - 01.06.1992, Page 21

Skák - 01.06.1992, Page 21
Ungverjaland Alþjóðaskákmóti sem haldið var í Kecskemet lauk með sigri Sam- veldismannanna Maljutin og Belikov, en þeir hlutu 8 Vi v., 3. Raiky (Samv.) 8 v. o.s.frv. Ástralski stórmeistarinn I. Rog- ers sigraði á alþjóðamóti er hald- ið var í Budapest 19. nóv.—2. des. sl., hlaut 9'A v. af 12. í 2.— 3. sæti urðu SM I. Novikov (Samveldisl.) og AM P. Blatny (Tékkósl.) með 8v., 4. AM B. Zuger (Sviss) 7 v., 5.—6. SM Z. Polgar (Ungverjal.) og AM E. Schmittdiel (Þýskal.) 6 /i v. o.s.frv. Bandaríkin SM J. Fedorowicz sigraði á 114. meistaramóti New York, hlaut 5 'A v. af 8, aðeins hálfum vinn- ingi á undan þeim SM J. Benja- min og AM J. Bonin. Skáksveit frá Króatíu heimsótti New York og tapaði naumlega, 5 'A—6'A. Á fyrsta borði sigraði SM B. Gulko, V. Kovacevic, 2— 0. - Skömmu áður höfðu Króatar sigrað í Toronto, Kanada, 6 'A— 1/2. Sovétríkin J. Murey (Ísrael/Frakkl.) bar sig- ur úr býtum á skákmóti í Pod- olsk (nálægt Moskvu), hlaut 9 v. af 11, 2. SM L. Judasin 8>/2 v., 3. SM 1. Zaitzev l'A v„ 4.-5. AM S. Kiselovos SM V. Savon 7 v. o.s.frv. Meistaramóti Sovétríkjanna, hinu 58. í röðinni, lauk með sigri Armenans A. Minasian (titil- laus!) 8i/2 v. af 11. Jafn honum að vinningum, en lægri á stigum, varð AM E. Magerramov. í þriðja sæti kom SM V. Yepeshin með l/i v„ 4.—9. S. Rublevsky, A. Nenaschev, AM S. Kiselev, SM V. Bologan, AM V. Ruban og SM A. Vischmanavin 7 v„ 10.—14. V. Kharlov, A. Frolov, SM A. Shirov, AM S. Tiviakov og SM R. Vaganjan 6Vi v. Stór- meistarinn Mikhail Tal hafnaði í 39. sæti með 5 v! - Tefldar voru 11 umferðir eftir svissneska kerf- inu. Júgóslavía Millisvæðamót kvenna var hald- ið í Subotica, þrátt fyrir átök Serba og Króata. Efstar og jafn- ar urðu þær AM Peng (Kína) og SM N. Gaprindashvili (Georgíu) með 9 v. af 13. í 3.—4. sæti komu SM N. Loseliani (Georgíu) og SM I. Levitina (Bandar.) með 8 Vi v„ 5.—6. AM Wang og Qin (Kína) 8 v. - Þessar sex efstu komast áfram í áskorendakeppn- ina. Noregur Alþjóðaskákmóti er haldið var í Gausdal 8.—15. janúar sl. lauk með sigri þeirra V. Kramnik (Rússland), V. Kotronias (Grikkl.), T. Ernst (Svíþjóð), K. Lerner (Úkraína), O. Renet (Frakkl.) og E. Gausel (Noregi), en þeir hlutu 6Vi v. Kramnik var úrskurðaður sigurvegari og hlaut því fyrstu verðlaun. Hann ásamt Gausel náðu stórmeistaraáfanga. Alþjóðamóti er haldið var í Stavanger Iauk með sigri banda- ríska alþjóðameistarans A. Fish- bein, 7 v. af 9 og náði hann þar með þriðja stórmeistaraáfanga sínum. í 2.—3. sæti urðu P. Heine Nielsen (Danm.) og V. Bologan (Rússland) með 6 'A v. Noregur og Litháen háðu lands- keppni í Osló skömmu eftir páska. Teflt var á 10 borðum, tvöföld umferð og sigraðu Norð- menn naumlega, hlutu 10 Vi v. gegn 9 Vi. Alþjóðaskákmóti er haldið var í Osló dagana 11.—19. apríl sl„ lauk með sigri V. Malisauskas (Litháen), 7 v. af 9, 2. E. Rosen- talis (Litháen) 6Vi v„ 3. A. Kveinys (Litháen) 5 Vi v. 4. E. Gausel (Noregi) 5 v. o.s.frv. Keppendur voru alls 10. Sviss Króatíski stórmeistarinn O. Cvitan sigraði á opna mótinu í Genf, hlaut 6'A v. af 9. Með sama vinningafjölda, en lægri á stigum, komu þeir M. Sher (Rússl.), A. Votkiewicz (Pól- land), A. Sabalov (Lettland) og J. Gallagher (England). Svíþjóð Opna stórmeistaramótinu í Váxjö lauk með sigri J. Johans- son (Svíþjóð), l'A v. af 9; 2.—3. T. Enqvist og E. Hermansem (Svíþjóð) 7 v. o.s.frv. Keppendur voru alls 96. SKÁK 145

x

Skák

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.