Skák


Skák - 01.06.1992, Side 22

Skák - 01.06.1992, Side 22
Argentína Danski stórmeistarinn Bent Larsen, nú búsettur í Argentínu, sigraði á móti í Buenos Aires. Mikla athygli vakti árangur hins titillausa 16 ára unglings, Hugo Spangenberg, en hann náði 2. sæti með 8 v., vel á undan alþjóðameisturunum Tempone og Garbarino, sem hlutu 6 v. Meistaramóti Argentínu lauk með sigri alþjóðameistarans J. Rubinetti, 8V2 v. af 11, á undan Guillermo Soppe 7 /2 v. og M. Quinteros 7 v. Gamla kempan M. Najdorf, sem er orðinn 81 árs, hafnaði í miðjum hópi keppenda með 5 v.! Ástralía Meistaramót Ástralíu var háð í Melbourne 28. desember til 10. janúar sl. Sigurvegari varð A. Wohl með 8 >/2 v. af 11, 2. S. Solomon 8 v., 3.—4. D. Johan- sen og M. Fuller 7 Vi v. Enski stórmeistarinn Tony Miles, sem nú er búsettur í Adelaide, varð fimmti með 7 v. í kvennaflokki sigraði búlgarska stúlkan K. Aladjova-Wills, en hún er nú sest að í Ástralíu, gift þarlendum manni. Frakkland Rússneski stórmeistarinn A. Sokolov sigraði á opna Belfort- mótinu 26.—31. des. sl., hlaut 7/2 v. af 9. Sokolov hefur búið ásamt fjölskyldu sinni um tíma í Belfort og tefldi á fyrsta borði í deildakeppninni. Fjögurra landa sveitakeppni í atskák var haldin í Cannes dagana 15.—21. febrúar sl. Sigurvegari varð sveit Englands, hlaut 17 Zi v., 2. Bandaríkin 14 v., 3. Holland 12 v. og 4. Frakkland 4!/2 v. Danmörk Alþjóðaskákmóti (13. styrkleika- flokkur) sem haldið var í Taastrup lauk með sigri Curt Hansen (Danm.), 6V2 v. af 9, 2. -3. J. Hector (Svíþjóð) og M. Wahls (Þýskal.) 6 v., 4.-5. M. Gurevich (Belgía) og O. Romanishin (Úkraína) 5 Vi v., 6. A. Chernin (Úkraína) 5 v., o.s.frv. Þýskaland Heimsmeistarinn Garry Kasp- arov tefldi klukkufjöltefli við þýsku stórmeistarasveitina í Baden 19. janúar sl. Meðalskák- stig þessara fjögurra stórmeist- ara voru 2550 Elo-stig, sem þýðir að þetta er sterkasta klukkufjöl- tefli allra tíma. Úrslit urðu þau að V. Hort og G. Hertneck gerðu jafntefli, en M. Wahls og E. Lobron máttu lúta í lægra haldi fyrir heimsmeistaranum. Sigur- launin voru BMW bifreið, sem Garry gaf eiginkonu sinni, Mariu, en hún hélt upp á 26 ára afmæli sitt þennan dag! Marokkó Keppni um meistaratitil Marokkó, hinni 22. í röðinni, lauk með sigri E1 Jadick, en hann hlaut 9 Vi v. af 11. Holland Alþjóðaskákmótinu í Wisk aan Zee, hinni 54. í röðinni, lauk með sigri þeirra B. Gelfand (Rússl.) og V. Salov (Spánn), 8 Vi v. af 13; 3. —4. R. Hubner (Þýskal.) og V. Kortsnoj (Sviss) 7 Vi v., 5.—8. V. Epishia (Rússl.), P. Nikolic (Júgósl.), J. Piket (Holland) og Y. Seirawan (Bandar.) 6 Vi v., 9. —11. G. Sax (Ungverjal.), L. van Wely (Holland) og J. van der Wiel (Holland) 6 v., 12. —13. J. Brennin-Kmeijer (Holland) og J. Hunn (England) 5 Vi v. o.s.frv. Pólland Hyundai Open i Varsjá lauk með sigri V. Malaniuk (Rússl.), 8 Vi v. af 11, 2. G. Timoshenko (Rússl.) 8 v. Meðal þeirra sem hluttu 7 Vi v. var heimsmeistari unglinga, 14 ára og yngri, M. Kaminsky frá Póllandi! Spánn Stórmeistarinn L. Oll (Eistland) hreppti 5000 dollara verðlaun í opna mótinu í Sevilla, hlaut IVi v. af 9. Jafnir að vinningum, en lægri á stigum, komu þeir L. Júdasin (Rússl.) og D. Campora (Argent.). Fyrrverandi heims- meistari, M. Tal (Lettland) og kvennastórmeistarinn Pia Cramling (Svíþjóð) voru meðal þeirra tíu er hlutu 7 vinninga. Öflugt skákmót (13. flokkur) var haldið í Pamplona. Efstir og jafnir urðu þeir M. Júdasin (Rússl.) og M. Iliescas (Spánn) með 6 v. í 3. sæti varð Z. Polgar (Ungverjal.) með 5 Vi v., 4. L. Oll (Eistland) 5 v., 6. A. Chernin (Rússl.) 4 Vi v. Polgar leiddi mótið allt fram í síðustu umferð, er hún tapaði fyrir Ehlvest. Með árangri sínum hefur Polgar nú hlotið 2600 stig! VIÐ SKÁKBORÐIÐ í ALDARFJÓRÐUNG 50 valdar skákir eftir Friðrik Ólafsson Munið áskrifendaafsláttinn SKÁKPRENT Dugguvogi 23 — Reykjavík Sími 31975 146 SKÁK

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.