Skák - 01.10.1996, Page 7
Frá fyrstu umferð mótsins f Fjölbrautaskólanum í Garðabœ.
í fyrstu umferð mættust stálin
stinn og útkoman varð mikil bar-
áttuskák. Þessi sigur lagði grunn-
inn að glæsilegum sigri Helga á
mótinu, þótt Margeir væri lljótur
að jafna sig og vinna fimm næstu
skákir.
Skák nr. 7956
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Margeir Pétursson
Sikileyjarvöm
I. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4.
d4 Rf6 5. Rf3 e6
Kasparov lék 5. - Bg4 gegn Djúp-
blárri tölvunni í einvígi í Fíla-
delfíu í Bandaríkjunum 1996 og
steinlá í fyrstu tilraun. Taflið
beinist nú inn í eins konar drottn-
ingarbragðsstöðu.
6. Bd3 Rc6 7. 0-0 Be7 8. Be3
cxd4 9. cxd4 0-0 10. Rc3 Dd6
II. a3 b6 12. De2 Bb7 13. Hadl
Hfd8
Þessi staða er vel þekkt í
fræðunum og Helgi líklega skoð-
að hana vel áður en skákin hófst.
Margeir hefur skoðað þetta líka
en líklega ekki áður en skákin
hófst því Helgi leikur sjaldan 1.
e4. Vandamál svarts liggja í því
hvar eigi að leika hrókunum og
hefur ýmislegt verið reynt í þeim
efnum. Einnig þarf svartur að
vera á varðbergi gagnvart fram-
rásinni d5. Öruggast er að leika
hér 13. - Had8 14. Bg5 Db8, en
Margeir leikur Hfd8 og hafa
margir miklir spámenn leikið því
svo erfitt er að gagnrýna leikinn!
Margar skákir hafa teflst með 14.
Bbl en Helgi hristir annan leik
fram úr erminni.
14. Bg5 g6 15. Hfel!
Yurtaev lék gegn Tal í Moskvu
1979 15. Bbl Hac8 16. Hfel Rd5
17. Re4 Dc7 18. Ba2 og vann
glæsilega um síðir en Helgi lumar
á nýjung.
15. - He8?!
Tímaeyðsla, betra var 15. - Rd5
16 Re4 (16. Rxd5 Bxg5! virðist
hagstætt svörtum) Dc7 og hvítur
hefur frumkvæðið. Nú nær hvítur
yfirhöndinni í baráttunni um d5-
reitinn.
16. Bxf6! Bxf6 17. Re4 De7 18.
Rxf6t Dxf6 19. Be4 He7?
Slæm mistök, mun betra var 24. -
Hac8 25. De3 Hed8 26. Re5 og
hvítur stendur betur. Nú skellur
stormurinn á.
20. Bxc6 Bxc6 21. d5 Bb7 22.
Re5! Bxd5?
Hans banabiti, betra var 22. -
exd5 23. Rg4 De6 24. Dd2 Dd6
25. Dd4 Hxelt 26. Hxel Df8 og
svartur er í erfiðri en ekki
vonlausri vörn.
23. Rg4 Dg5
Peðsfómir hvíts byggjast á slæmri
stöðu biskupsins á d5 og mátsókn
á svörtu reitunum sem Helgi nýtir
meistaralega.
SKÁK163