Skák


Skák - 01.10.1996, Síða 7

Skák - 01.10.1996, Síða 7
Frá fyrstu umferð mótsins f Fjölbrautaskólanum í Garðabœ. í fyrstu umferð mættust stálin stinn og útkoman varð mikil bar- áttuskák. Þessi sigur lagði grunn- inn að glæsilegum sigri Helga á mótinu, þótt Margeir væri lljótur að jafna sig og vinna fimm næstu skákir. Skák nr. 7956 Hvítt: Helgi Ólafsson Svart: Margeir Pétursson Sikileyjarvöm I. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4. d4 Rf6 5. Rf3 e6 Kasparov lék 5. - Bg4 gegn Djúp- blárri tölvunni í einvígi í Fíla- delfíu í Bandaríkjunum 1996 og steinlá í fyrstu tilraun. Taflið beinist nú inn í eins konar drottn- ingarbragðsstöðu. 6. Bd3 Rc6 7. 0-0 Be7 8. Be3 cxd4 9. cxd4 0-0 10. Rc3 Dd6 II. a3 b6 12. De2 Bb7 13. Hadl Hfd8 Þessi staða er vel þekkt í fræðunum og Helgi líklega skoð- að hana vel áður en skákin hófst. Margeir hefur skoðað þetta líka en líklega ekki áður en skákin hófst því Helgi leikur sjaldan 1. e4. Vandamál svarts liggja í því hvar eigi að leika hrókunum og hefur ýmislegt verið reynt í þeim efnum. Einnig þarf svartur að vera á varðbergi gagnvart fram- rásinni d5. Öruggast er að leika hér 13. - Had8 14. Bg5 Db8, en Margeir leikur Hfd8 og hafa margir miklir spámenn leikið því svo erfitt er að gagnrýna leikinn! Margar skákir hafa teflst með 14. Bbl en Helgi hristir annan leik fram úr erminni. 14. Bg5 g6 15. Hfel! Yurtaev lék gegn Tal í Moskvu 1979 15. Bbl Hac8 16. Hfel Rd5 17. Re4 Dc7 18. Ba2 og vann glæsilega um síðir en Helgi lumar á nýjung. 15. - He8?! Tímaeyðsla, betra var 15. - Rd5 16 Re4 (16. Rxd5 Bxg5! virðist hagstætt svörtum) Dc7 og hvítur hefur frumkvæðið. Nú nær hvítur yfirhöndinni í baráttunni um d5- reitinn. 16. Bxf6! Bxf6 17. Re4 De7 18. Rxf6t Dxf6 19. Be4 He7? Slæm mistök, mun betra var 24. - Hac8 25. De3 Hed8 26. Re5 og hvítur stendur betur. Nú skellur stormurinn á. 20. Bxc6 Bxc6 21. d5 Bb7 22. Re5! Bxd5? Hans banabiti, betra var 22. - exd5 23. Rg4 De6 24. Dd2 Dd6 25. Dd4 Hxelt 26. Hxel Df8 og svartur er í erfiðri en ekki vonlausri vörn. 23. Rg4 Dg5 Peðsfómir hvíts byggjast á slæmri stöðu biskupsins á d5 og mátsókn á svörtu reitunum sem Helgi nýtir meistaralega. SKÁK163

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.