Skák


Skák - 01.10.1996, Side 28

Skák - 01.10.1996, Side 28
V. Topalov sigrar í Novgorod Stig 1 2 3 4 5 6 V. 1. SM Topalov (Búlgaría) 2750 - - 1/2 - 1/2 1/2 1/2 '/2 1/2 1 1 1 6 2. SM Ivanchuk (Úkraína) 2730 ‘/2 1 - - 1/2 1/2 1/2 '/2 1 0 0 1 5'/2 3. SM Short (England) 2695 >/2 ‘/2 1/2 1/2 - - 1/2 1 '/2 '/2 1/2 0 5 4. SM Gelfand (Hv.-Rússl.) 2665 '/2 1/2 1/2 1/2 1/2 0 - - 1/2 1 '/2 0 41/2 5. SM Kramnik (Rússland) 2765 >/2 0 0 1 1/2 '/2 1/2 0 - - 1 1/2 4'/2 6. SM. J. Polgar 2665 0 0 1 0 '/2 1 1/2 1 0 1/2 - - 4'/2 Búlgarski stórmeistarinn Topalov bætti enn einni skrautfjöður í hatt sinn er hann varð efstur í geysi- sterku alþjóðamóti í Novgorod sl. sumar. Þátttakendur voru sex og tefldu tvöfalda umferð. Eins og taflan sýnir, þá slapp aðeins sigurvegarinn taplaus gegnum mótið. Veselin Topalov vakti fyrst veru- lega athygli á Olympíuskákmótinu í Moskvu árið 1994, er hann lagði heimsmeistarann Kasparov að velli, þá aðeins 19 ára gamall! Síð- an þá hefur hann tekið gífurlegum framförum og sigraði á fjölda öfl- ugra skákmóta. Arið 1991 var stigatala hans 2485, en í júlí 1996 var hún komin upp í 2750! „Aldursforseti” mótstins, enski stórmeistarinn Nigel Short, sem er aðeins þrítugur, má vel við una í þriðja sætinu með 50% vinn- ingshlutfall. Það sama verður ekki sagt um V. Kramnik, sem hefur verið sigur- sæll á fjölda sterkra skákmóta. Hann náði sér aldrei á strik og hafnaði í næstneðsta sæti. Um önnur úrslit vísast til með- fylgjandi töflu. Við skulum líta á viðureign sigur- vegara mótsins gegn „krónprins- inum” Kramnik. Skák nr. 7976 Hvítt: Veselin Topalov Svart: Vladimir Kramnik Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Bc4 Db6 7. Rxc6!? Þessi leikmáti, sem var í tísku kringum 1970, er örugglega af sálfræðilegum toga spunninn, því Kramnik virðist eiga erfítt með að vinna úr óvæntum stöðum. 7. - bxc6 8. 0-0 e6 9. De2 Rd7 10. b3 Be7 11. Bb2 0-0 12. Ra4 Dc7 13. f4 Bb7 14. Hadl Hae8?! Eftir þennan leik fer að síga á ógæfuhlið fyrir Kramnik. Það er þó ekki sjálfgefið að jafna taflið fyrir svart, t.d. 14. - d5 15. Bd3 Bf6 er hagstætt hvítum eftir 16. Bxf6 Rxf6 17. e5 Rd7 18. c4. 15. Hd3 c5 16. Bb5! Bc6 Aftur var ekki mögulegt fyrir svart að leika 16. - d5, vegna 17. exdtexd5 18. He3! Eftir texta- leikinn kemur hvítur í veg fyrir framrásina d6-d5 og hefur því ör- ugga yfirburði. 17. Bxc6 Dxc6 18. c4! Hd8 19. Hfdl Hfe8 20. Df3 Dc7 21. Dg3 Rf6 Það er sjaldgæft að sjá Kramnik í jafn þröngri stöðu. Topalov er fljótur að útfæra möguleika sína. 22. Rc3 a6 23. Dh3 Dc6 24. Hg3 Kh8 25. Hel Dc8 26. Hee3 Hg8 27. Rdl Hd7 28. f5 e5 29. Rc3 Bd8 30. Rd5 h6 31. Bcl Rxd5 32. exd5 Bf6 33. He4 Df8 34. Heg4! Kramnik gafst upp, því eftir 34. - Kh7 35. Bxh6 gxh6 36. Hxg8t Dxg8 37. Hxg8t Kxg8 38. Dxh6 er endataflið vonlaust fyrir hann. 184 SKÁK

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.