Skák - 01.10.1996, Page 28
V. Topalov sigrar í Novgorod
Stig 1 2 3 4 5 6 V.
1. SM Topalov (Búlgaría) 2750 - - 1/2 - 1/2 1/2 1/2 '/2 1/2 1 1 1 6
2. SM Ivanchuk (Úkraína) 2730 ‘/2 1 - - 1/2 1/2 1/2 '/2 1 0 0 1 5'/2
3. SM Short (England) 2695 >/2 ‘/2 1/2 1/2 - - 1/2 1 '/2 '/2 1/2 0 5
4. SM Gelfand (Hv.-Rússl.) 2665 '/2 1/2 1/2 1/2 1/2 0 - - 1/2 1 '/2 0 41/2
5. SM Kramnik (Rússland) 2765 >/2 0 0 1 1/2 '/2 1/2 0 - - 1 1/2 4'/2
6. SM. J. Polgar 2665 0 0 1 0 '/2 1 1/2 1 0 1/2 - - 4'/2
Búlgarski stórmeistarinn Topalov
bætti enn einni skrautfjöður í hatt
sinn er hann varð efstur í geysi-
sterku alþjóðamóti í Novgorod sl.
sumar. Þátttakendur voru sex og
tefldu tvöfalda umferð. Eins og
taflan sýnir, þá slapp aðeins
sigurvegarinn taplaus gegnum
mótið.
Veselin Topalov vakti fyrst veru-
lega athygli á Olympíuskákmótinu
í Moskvu árið 1994, er hann lagði
heimsmeistarann Kasparov að
velli, þá aðeins 19 ára gamall! Síð-
an þá hefur hann tekið gífurlegum
framförum og sigraði á fjölda öfl-
ugra skákmóta. Arið 1991 var
stigatala hans 2485, en í júlí 1996
var hún komin upp í 2750!
„Aldursforseti” mótstins, enski
stórmeistarinn Nigel Short, sem
er aðeins þrítugur, má vel við una
í þriðja sætinu með 50% vinn-
ingshlutfall.
Það sama verður ekki sagt um V.
Kramnik, sem hefur verið sigur-
sæll á fjölda sterkra skákmóta.
Hann náði sér aldrei á strik og
hafnaði í næstneðsta sæti.
Um önnur úrslit vísast til með-
fylgjandi töflu.
Við skulum líta á viðureign sigur-
vegara mótsins gegn „krónprins-
inum” Kramnik.
Skák nr. 7976
Hvítt: Veselin Topalov
Svart: Vladimir Kramnik
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Bc4 Db6
7. Rxc6!?
Þessi leikmáti, sem var í tísku
kringum 1970, er örugglega af
sálfræðilegum toga spunninn, því
Kramnik virðist eiga erfítt með að
vinna úr óvæntum stöðum.
7. - bxc6 8. 0-0 e6 9. De2 Rd7
10. b3 Be7 11. Bb2 0-0 12. Ra4
Dc7 13. f4 Bb7 14. Hadl Hae8?!
Eftir þennan leik fer að síga á
ógæfuhlið fyrir Kramnik. Það er
þó ekki sjálfgefið að jafna taflið
fyrir svart, t.d. 14. - d5 15. Bd3
Bf6 er hagstætt hvítum eftir 16.
Bxf6 Rxf6 17. e5 Rd7 18. c4.
15. Hd3 c5 16. Bb5! Bc6
Aftur var ekki mögulegt fyrir
svart að leika 16. - d5, vegna 17.
exdtexd5 18. He3! Eftir texta-
leikinn kemur hvítur í veg fyrir
framrásina d6-d5 og hefur því ör-
ugga yfirburði.
17. Bxc6 Dxc6 18. c4! Hd8 19.
Hfdl Hfe8 20. Df3 Dc7 21. Dg3
Rf6
Það er sjaldgæft að sjá Kramnik í
jafn þröngri stöðu. Topalov er
fljótur að útfæra möguleika sína.
22. Rc3 a6 23. Dh3 Dc6 24. Hg3
Kh8 25. Hel Dc8 26. Hee3 Hg8
27. Rdl Hd7 28. f5 e5 29. Rc3
Bd8 30. Rd5 h6 31. Bcl Rxd5
32. exd5 Bf6 33. He4 Df8
34. Heg4!
Kramnik gafst upp, því eftir 34. -
Kh7 35. Bxh6 gxh6 36. Hxg8t
Dxg8 37. Hxg8t Kxg8 38. Dxh6
er endataflið vonlaust fyrir hann.
184 SKÁK