1. Alþjóðlega Kópavogsskákmótið - 09.04.1994, Page 19
tilganginn með fórninni. I raun hélt
Reshevsky, að Evans væri að rétta út
hendina til merkis um uppgjöf, þegar
hann snerti drottninguna. En eftir 49.
- Kxg8 kom 50. Hxg7 og hvítur nær
þráskák. Þetta þema má alloft sjá í
skákunr minni skákmanna, en stór-
meistarar geta einnig leikið af sér.
Reshevsky tók þessu annars með
jafnaðargeði og hló að sinn eigin
heimsku. En tíu árum síðar var honurn
ekki hlátur í hug. Þetta var í skák
gegn Sovétmanninum Savon.
Reshevsky hafði hvítt.
Savon
Reshevsky
Reshevsky var í tímahraki eins og oft
áður en átti aðeins einn leik eftir til á
ná tímamörkunum. Reshevsky á
þvingaða vinningsleið í stöðunni en
Iék 40. Dxg6??, sem var auðvitað
svarað með 40. - Bxg6 og Reshevsky
gafst upp. Hann hafði alveg gleymt
biskupnum á bl. Vinningsleiðina er
e.t.v. ekki auðvelt að finna á þeim 30
sekúndum sem Reshevsky átti eftir,
en hún er eftirfarandi: 40 g5+ Kxg5
(ef Bxg5 þá Dg7 mát.) 41. h4+ Kxh4
42. Df4 mát. Það mátti heyra saumnál
detta í skáksalnum, loftið var
rafmagnað og guð einn veit hvað
flaug í gegnum huga Reshevskys sem
starði á skákborðið. Enginn þorði að
yrða á hann. Savon var einnig
ákaflega vandræðalegur, en enginn
þorði að yrða á hann heldur. Þegar
Reshevsky stóð loks upp fylgdu augu
allra honum eftir.
REYKJAGARÐUR
SÍMI666440
80 ALEGGSTEGUNDIR
ÞAR AF 9 NÝJAR
Ananas
ólívur
Auka ostur
Ferskur Chilli
1 Gráðostur
1 Tómatar
Beikon
Túnfiskur
Rækjur
1 Kræklingar
1 Þistilhjörtu
Sólþurrkaðir tómatar
Hvítlauksolía
64 3535
19