1. Alþjóðlega Kópavogsskákmótið - 09.04.1994, Side 4
Skákfélag Kópavogs heldur sitt fyrsta alþjóðlega skákmót í bœnum núna í apríl.
Skákfélagsmenn í Kópavogi eru þó ekki viðvaningar í þeim efnum, því ífyrra sá félagið,
/
áisamt Hafnfirðingum, um landskeppnina milli Frakka og Islendinga.
/
Skákin er bœði íþrótt og list. I skákkeppni reynir á góðan undirbúning, agaða hugsun og
rökréttar ákvarðanatökur. En í skákinni, eins og svo mörgu öðru, duga útreikningar ekki
eingöngu. Þá reynir á innsœi og listsköpun skákmannanna. Með innsœinu og réttum
ákvörðunum hafa skapast mestu perlur í sögu skáklistarinnar. Skákin er því góður
undirbúningur ungdómsins fyrir lífið semframundan er.
Það er ánœgjulegt að sjá svo marga unga og sterka skákmenn taka þátt í þessu móti.
Þessi keppni gefur okkar yngri meisturum og þeim eldri og reyndari tækifœri tilfrekari
afreka.
Alþjóðleg mót eru lyftistöng fyrir skákíþróttina, þar sem þau eru haldin og ég vona að
þetta mót efli og styrki starfsemi Skákfélags Kópavogs.
Ég óska öllum keppendum heilla og velfarnaðar í mótinu.
Gunnar Birgisson
4