1. Alþjóðlega Kópavogsskákmótið - 09.04.1994, Page 21

1. Alþjóðlega Kópavogsskákmótið - 09.04.1994, Page 21
11 / / OFLUGT SKAKLIF í KÓPAVOGI Kópavogur hefur eignast tvo Islandsmeistara í skák. I nóvember var haldið íslandsmeistaramót stúlkna 15 ára og yngri. Sigur- vegari varð Harpa Ingólfsdóttir, Hjallaskóla eftir að hafa sigrað Islandsmeistarann frá því í fyrra 2- 0 í einvígi um titilinn eftir að þær höfðu orðið jafnar í aðalkeppninni, fimmta varð síðan Sigurlaug Sigurðardóttir sem keinur einnig úr Hjallaskóla. Viku seinna sigraði síðan Hjallaskóli í Islandsmóti stúlkna í skólaskák, sveitakeppni. Sigurinn var aldrei í hættu og hlaut Hjallaskóli 27 vinninga af 28 mögulegum. Sveitina skipuðu Harpa Ingólfsdóttir, Elsa Ingólfs- dóttir, Sigurlaug Sigurðardóttir og Guðlaug Eiríksdóttir. I 6. sæti varð síðan Kársnesskóli sem kom einnig á óvart en meðalaldur sveitarinnar var einungis 8 ár. Norðurlandamótið í skólaskák var haldið í Finnlandi í mars. Kópavogur átti keppanda á mótinu sem var Hjalti Rúnar Ómarsson, Digranesskóla sem keppti í flokki 9-10 ára eftir að hafa sigrað í undankeppni mótsins. Hann stóð sig mjög vel úti og fékk 3 vinninga af 6 mögulegum. Fjórði í undankeppninni varð síðan Birkir Örn Hreinsson, Kársnesskóla. Skáklíf barna og unglinga í Kópavogi hefur verið mjög mikið í vetur og verður mikið um að vera fram í maí. Skákþing Kópavogs, barna og unglingaflokkur, var haldið í janúar. Sigurvegari í aðalkeppninni varð Einar Hjalti Jensson sem sigraði alla keppi- nauta sína, Einar Jón Gunnarsson varð annar og Hjalti Rúnar Ómarsson þriðji. I flokki 9 ára og yngri sigraði Jens Harðarson með 4Vi vinning, annar varð Birkir Örn Hreinsson og þriðji Hannes Magnússon. í stúlknaflokki varð Harpa Ingólfsdóttir hlutskörpust, Elsa Ingólfsdóttir varð önnur og Guðlaug Eiríksdóttir í þriðja sæti. Mikið hefur verið um að vera í skákinni frá áramótum og mörg mót haldin, enda hefur árangurinn ekki látið á sér standa. Hlíðar Þór Hreinsson. 21

x

1. Alþjóðlega Kópavogsskákmótið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 1. Alþjóðlega Kópavogsskákmótið
https://timarit.is/publication/2060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.