1. Alþjóðlega Kópavogsskákmótið - 09.04.1994, Page 24
HÁSKÓLABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ
ALLIR SALIR
ERU FYRSTA
FLOKKS
LEITIN AÐ BOBBY FISCHER
FRUMSÝND 16. APRÍL.
Stórgóð mynd byggð á sögu bandaríska undrabarnsins Josh Waitzkin. Skákmaðurinn Bruno
Pandolfini sér sex ára gutta dunda sér við að rústa mönnum í hraðskák. Hann einsetur sér
að búa til nýjan Bobby Fischer. En það er erfitt að vera undrabarn og ef maður á að verða
jafngóður og Fischer, verður maður þá að lifa eins og hann?
I myndinni, sem er veisla fyrir alla skákunnendur, eru margar hörkuspennandi skákir sem
Pandolfini og Waitzkin settu upp fyrir myndina. Mikið er vitnað til ferils Bobby Fischer í
myndinni og m.a. sýnt frá einvígi hans við Spassky í Reykjavík 1972. Hinn átta ára Max
Pomeranc leikur Josh en hann er einn af 100 fremstu skákmönnum í sínum aldursflokki í
Bandaríkjunum. Joe Mantegna leikur föður hans en í hlutverkum skákkennara Josh eru Ben
Kingsley og Laurence Fishburne.