SÁÁ blaðið - apr 1984, Side 1

SÁÁ blaðið - apr 1984, Side 1
1. tölublað 1. árgangur apríl 1984 Góður árangur SAA í baráttunni við áfengissýki: Minnsta kosti þriðji hver sjúklingur fær góðan bata ;Samkvæmt niðurstöðum könnun- jar, sem SÁÁ hefur látið vinna má fullyrða að minnst þriðji hver sjúkl- ingur, sem lýkur dvöl á meðferðar- istofnun SÁÁ að Sogni í Ölfusi drekkur ekki áfengi eða neytir jannarra vímuefna næstu 2 til 3 árin. iKönnun þessi er byggð á svörum 210 fyrrverandi sjúklinga, sem jdvöldu á Sogni árið 1980. Hún leið- ir í ljós að af 390 sjúklingum það ár eru 107 í varanlegu bindindi síðast- liðið sumar og svara heimsendum könnunarbréfum. Auk þess höfðu ellefu einstaklingar komið til annarrar meðferðar — fimm þeirra aðeins í viku tíma — og náð því að vera frá áfengi í 18 mánuði til 3 ár. 135 þeirra sem svöruðu, höfðu ekki drukkið síðustu sex mánuði áður en könnunin var gerð. Þetta er meðal þeirra niður- staðna sem lesa má úr könnuninni, en margt annað fróðlegt kemur í ljós. Könnunin var framkvæmd síðastliðið sumar og bréf send til '334 af 390 fyrrverandi sjúklingum sem dvöldust að Sogni árið 1980. Þeir voru beðnir að svara einföld- um spurningum varðandi notkun áfengis og annarra vímuefna. Það var gengið út frá því að sjúklingar sem sögðust ekki hafa drukkið, færu rétt með í flestum tilfellum. Þarna var stuðst við reynslu annarra sem hafa haft tök á að bera saman svör sjúklinga og upplýsing- ar frá öðrum í slíkum könnunum. Við úrvinnslu gagna voru notaðar upplýsingar sem fengust með öðr- um hætti og urðu þær til þess að staðfesta sögur sjúklinga og einnig að svör þriggja einstaklinga, sem ekki sögðust hafa drukkið, voru ekki tekin gild. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir að Vogi og Sigurður Gunnsteins- son, meðferðarstjóri að Sogni hafa séð um allan undirbúning, skrán- ingu og vinnslu gagna. Sjá opnu Þórarinn Tyrfingsson, yfirlœknir Vogi: „Kom mér mest á óvart hve margir voru edrú“ „Það sem kom mér mest á, óvart varðandi þessar niður- stöður var einfaldlega það, hve margir voru ennþá edrú úr hópi innritaðra sjúklinga að Sogni árið 1980 svo löngu eftir að meðferð lauk. Þetta er mjög ánægjulegur árangur,“ sagði Þórarinn Tyrfingsson í viðtali við SÁÁ blaðið í síðustu viku, en hann vann að könnuninni frá síðastliðnu vori ásamt Sigurði Gunnsteinssyni. Það gerast yfirleitt engin kraftaverk í þessu starfi. Oft tekur það fólk tvö til fjögur ár að skilja þetta. Þess vegna komu þessar tölur mér dálít- ið á óvart, þar sem ég þekki bak- grunn og lif þessara sjúklinga. En þær sýna eitt að mínum dómi: Starf SÁÁ hefur borið ríkulegan ávöxt“ Eftirmeðferðarstöð SÁÁ að Sogni Ölfusi: Minnst þriðji hver sjúklingur sem leitar lækninga við áfengissýki, hlýtur góðan bata samkvæmt nýrri könnun SÁÁ. Tekur SÁÁ við áfengisvarnar- málum Reykjavíkurborgar? Ákvörðun á næstunni Svíar stofna samtök eftir fyrirmynd SÁÁ Viðrœðum milli SÁÁ og Reykjavíkurborgar um að SÁÁ taki yfir starfsemi áfengis- varnarmála borgarinnar, lýkur á nœstunni. Akvörðun verður tekin í kjölfar viðrœðnanna, vœntanlega í sumarbyrjun. Að sögn VilhjálmsÞ. Vilhjálmsson- ar, framkvœmdarstjóra SÁÁ, er hagkvœmast fyrir báða aðila að starfsemi þessi sé á einni hendi og muni slík sameining hafa marga kosti í för með sér m.a. þá að kraftar munu ekki dreifast og fjármunir nýtast bet- ur. Sl. haust sendi SÁÁ heilbrigðis- ráði bréf þar sem óskað var eftir viðræðum við ráðið um að breytt yrði samstarfsfyrirkomulagi SAÁ og Áfengisvarnardeildar Heilsu- varnarstöðvarinnar. í bréfinu kom m.a. fram að óhagræði væri að tveir aðilar önnuðust hliðstætt starf og einnig var þess getið að SÁÁ treystu sér til að auka þjónustuna án þess um aukningu á fjármunum til rekstrarins yrði að ræða. Samstarf SÁÁ og Heilsuverndar- stöðvarinnar hófst á árinu 1977 og var þá gerður samningur um sam- starf þessara aðila sem átti að endurnýjast að ári liðnu en sú end- urnýjun hefur ekki átt sér stað. í aðalatriðum fól samningurinn í sér að SÁÁ sæi um meðferðarhlið mála en áfengisvarnardeild Heilsu- verndarstöðvarinnar um alla fyrir- byggjandi starfsemi. í viðræðunefndinni sitjaað hálfu SÁÁ Hendrik Berndsen, Þórarinn Tyrfingsson og Anna Þorgríms- dóttir en að hálfu Reykjavíkurborg- ar Páll Gíslason og Jósteinn Kristjánsson. Auk þess starfa embættismenn beggja aðila með nefndinni. Hvers vegna fæ ég SÁÁ- blaðið? SÁÁ-blaðið er sent öllum fél- lagsmönnum Samtaka áhuga- fólks um áfengisvandamálið. Að okkar mati á þó blaðið er- indi út fyrir raðir SÁÁ. Þess vegna höfum við sent SÁÁ- blaðið um 40 þúsund heimil- um á landinu. Þeir sem vilja gerast áskrifendur en fá ekki þetta fyrsta tölublað sent þurfa aðeins að hringja í síma 82399. SÁÁ-blaðið kostar ekkert. Sœnskir aðilar hafa stofnað áhugamannasamtök um áfengissýki og fíkniefnavanda- málið eftir fyrirmynd SÁÁ. Samtökin sem nefna sig SCAA (Swedish Council on Alco- holism and Addiction) voru stofnuð á síðasta ári en undir- búningur að stofnun þeirra hófst fyrir rúmum þremur ár- um. Að sögn Hendriks Berndsen, formanns SÁÁ, kom Monica Sil- verskjöld Getz (fyrrum eiginkona Stan Getz hljóðfæraleikara) til ís- lands ásamt trúnaðarlækni SAS árið 1980 til að kynna sér með- ferðarprógram SÁÁ. Monica S. Getz hreifst mjög af hugmyndum og uppbyggingu SÁÁ og kom tví- vegis síðan til íslands til að kynna sér starf samtakanna. Hún ásamt fleiri sænskum aðilum stofnuðu SCAA á síðasta ári og er starfsemi hinna nýju samtaka nú í mikilli |og örri þróun. Þau vinna að opnun meðferðarheimilis og reka starf- semi sem í öllum meginatriðum er byggð á kerfi SÁÁ. Starf SCAA er brautryðjendastarf í áfengismálum í Svíþjóð að sögn Monicu S. Getz. í bréfi sem hún sendi SÁÁ nýverið, segir hún orðrétt: „Það verður að hafa.í huga að Svíþjóð er á stein- aldarstigi hvað varðar alkóhólisma. Hér þorir enginn málsmetandi maður að rísa á fætur og segja: „Ég er óvirkur alkóhólisti og þú getur einnig náð tökum á sjúkdómnum!“ Aðsetur SCAA er í Lidingö í Stokkhólmi. Landlæknir Svía til íslands

x

SÁÁ blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÁÁ blaðið
https://timarit.is/publication/2069

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.