SÁÁ blaðið - Apr 1984, Page 6

SÁÁ blaðið - Apr 1984, Page 6
EF BJÓRINN VERÐUR LEYFÐUR HVAÐ GERIST? Magnús Bjarnfreðsson: Þá mun taka steininn úr... þegar sala öls verður leyfð í matvöruverslunum Hvaö gerist ef sala á á- fengum bjór verður leyfð á Islandi? Um þetta hefur mikið verið deilt og mun verða deilt. Mig grunar að jafnvelþótt sala hans verði leyfð þá haldi menn samt áfram að deila ogsjái hlut- ina frá ýmsum ólíkum hliðum. Nú er það svo að í þessari algengu spurningu felst mikill misskilningur að því leyti að áfengur bjór er og hefur alltaf verið seldur í öllum matvörubúðum og sjoppum á ís- Iandi. Allur sá bjór og pilsner sem við drekkum er áfengur, hvort held- ur hann ber Egils, Thule eða Sani- tas merki. Hins vegar er óheimilt að áfengismagn hans fari fram úr ákveðinni prósentutölu samkvæmt áfengislögunum. Ekki veit ég ná- kvæmlega hvernig sú tala er fundin út, en líklega er við það miðað að fullorðinn maður verði tæpast ölv- aður af neyslu drykkjarins. Þó er það svo að undir vissum kringum- stæðum getur fullorðinn maður hæglega fundiðá sér breytingu við það að drekka þennan „óáfenga" bjór og ef ung börn legðu það á sig að teyga hann gætu þau vafalítið fundiðvel á sér, jafnvel orðið ölvuð. Við búum sem sagt við það sér- kennilega kerfi að ung börn geta farið út í matvörubúð og keypt sér áfengi. Á móti þessu hamlar hins vegar að bragðið af bjór og pilsner höfðar yfirleitt ekki til ungra barna og því hefur þetta ekki orðið neitt vandamál. Það sem umræðan snýst því í raun um er það hvort Ieyft verði að auka áfengismagn í þeim bjór og pilsner sem seldur verður hérlendis í framtíðinni, þannig að minna þurfi af honum til þess að finna fyr- ir áfengisáhrifum, komast í „vímu“ eins og það heitir víst nú til dags. Hvernig verður hann seld- ur? Þeir sem berjast fyrir því að leyft verði að selja sterkara öl hérlendis en hingað til hefur verið gert, telja eðlilegt að salan fari einungis fram í útsölum Áfengis- og tóbaksversl- unar ríkisins. Því er haldið fram að með þessu móti verði unnt að halda unglingum frá neyslu áfengs öls að sama skapi og það sé unnt í dag að hindra áfengiskaup þeirra. Því er líka haldið á lofti að verðlag á ölinu muni verða nokkuð hátt og það komi r veg fyrir að menn neyti þess fyrst og fremst sem áfengis, heldur miklu fremur sem Ijúffengra veiga með mat eða sem lystauka. Vafalítið er að ef sala á áfengara öli en nú er til sölu verður leyfð þá verður fyrst í stað farið eftir þessu. Verði verður haldið háu og útsölu- staðir verða „ríkin“. En illa er ég svikinn ef ekki heyrast fljótlega há- værar raddir um það að þetta sé ó- þolandi smánarblettur á okkur ís- lendingum. Halda mennirnir virki- lega að við kunnum ekki að fara með bjór? Á að bjóða túristunum upp á það að geta ekki keypt sér bjór á veitingastöðum hér eins og i menningarlöndum? Ég sé fyrir mér öll nafnnúmerabréfin sem send verða dagblöðunum til birtingar á vegum þeirra manna sem sjá sér hagnað í því að rýmkað verði til með sölureglur á áfengara öli. Og ég er sannfærður um að allar skoðana- kannanir muni innan skamms sýna að sá er þjóðarviljinn að hinn Ijúf- fengi íslenski bjór úr „besta vatni í heimi“ verði seldur í matvöruversl- unum og á öllum veitingastöðum. Jafnsannfærður er ég um að sú verður raunin á innan tíu ára frá því að sala áfengara ölsins hefst. Fer þá allt fjandans til? Nei, svo slæmt held ég það verði nú ekki. En neysla áfengis mun aukast. Það þýðir ekkert að berja hausnum við steininn með það. Það hefur alls staðar gerst þar sem auðveldara er að ná í áfengi. Hvergi nokkurs stað- ar í heiminum er ofdrykkja meiri en þar sem auðveldast er að ná í bjór og létt vín. Það er fáránleg lygisaga að í þeim Iöndum þar sem bjórinn og léttu vínin flóa séu engin áfengis- vandamál. Þar eru þau nú aldeilis blómstrandi! Hins vegar loka menn yfirleitt augunum fyrir þeim og vilja alls ekki viðurkenna að þau séu til og trúgjarnir íslenskir ferða- menn láta troða þessari vitleysu i sig. Önnur blekkingin er sú að menn verði ekki fullir af bjór, aðeins skemmtilega kjafthýrir. Þeir sem trúa þessu og hafa verið í bjórlönd- um hafa einfaldlega verið of fullir sjálfir til þess að sjá nokkurn skap- aðan hlut. Þegar bjórkrám erlendis er lokað velta menn augafullir um stræti og torg. Hins vegar fullyrði ég alls ekki að þessir hinir sömu hefðu ekki orðið fullir þótt enginn bjór hefði verið. Þeir hefðu þá að- eins neytt áfengisins í öðru formi. Enn ein blekkingin er sú að þeir sem drekki bjór láti þar við sitja. Bjór er mjög algeng byrjun á drykkju hjá þeim sem eiga í erfið- leikum vegna áfengisneyslu. „Bara einn bjór, það er allt í lagi“ er við- kvæðið. En yfirleitt verður hjá þess- um mönnum áframhald af þessum eina bjór og fljótlega þarf sterkari kveikju með til þess að komast í rétt form. Ég er sem sagt ekki í neinum vafa um það að jafnvel sala á áfengara öli í „ríkinu“ mun auka neyslu á- fengis. Fyrst mun þó taka steininn úr þegar sala þess verður leyfð í matvöruverslunum innan nokkurra ára. En á móti þessari auknu sölu mun vafalítið koma aukinn áróður, sem eitthvað mun draga úr áhrifun- um. Það er til siðs nú til dags að fræða fólk í stað þess að banna því og kannski verður einhver prósenta af sölu áfenga bjórsins notuð til þess að fræða fólk um að það skuii passa sig á honum. Það væri vissu- lega dæmigert úrræði upplýsinga- aldar hinnar nýju! Þegar framleiðsla, þjónusta og verslanir sameinast um eitt meriá, máttu vera viss um að meridð tákni gæði! IV SS ■■ i ■ ■ mm SS-búðimar Verslanir sem bjóða viðráðanlegt vöruverð Hafnarstræti 5 Aðalstræti 9 Skólavörðustíg 22 Bræðraborgarstíg 43 Laugavegi 116 Austurveri Glæsibæ Iðufelli 14 SLÁTURFÉLAG Akranesi SUÐURLANDS

x

SÁÁ blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÁÁ blaðið
https://timarit.is/publication/2069

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.