Landsmál - Sep 1947, Page 13

Landsmál - Sep 1947, Page 13
TÍMARIT UM LANDSMÁL árs muni nema um 300 millj. kr. Ef það rætist verður þetta ár hæsta útflutningsár í sögu landsins. Samt er þjóðin nú komin í verstu gjaldeyriskreppu, sem yfir hana hefir gengið fyrir skammsýni, ábyrgðarleysi og pólitískt ístöðuleysi. Nú er svo komið, að í byrjun ágústmánaðar þessa árs munu bankarnir hafa stofnað yfirdráttarskuldir í út- löndum, er námu 30—40 millj kr. Auk þess liggja hér nú vörur fyrir milljónir króna, sem ekki er hægt að greiða sem stendur. Fjárhagsráð hefir nú lýst yfir þeirri skoðun sinni, að 137 millj. kr. vanti í erlendum gjaldeyri til þess að fullnægt væri eðlilegum þörfum, það sem eftir er þessa árs, ef útgefin gjaldeyrisleyfi koma til framkvæmda. Af öllu því sem að framan greinir, virðist það vera augljóst, að Viðskiptaráð hafi gert sér litla grein fyrir, hvað var að gerast í gjaldeyrismálunum og að það hafi enga samvinnu haft við Landsbankann, jafnvel eftir að vitanlegt var að gjaldeyrinn var að ganga til þurrðar, og gefið út leyfi í stórum stíl, sem enginn gjaldeyrir var til fyrir og ekki var hægt að greiða. Fer báðum gjald- eyrisráðunum á einn veg í því efni. En slíkt ábyrgðar- leysi út af fyrir sig hefir margfaldað þunga gjaldeyris- kreppunnar. tJtlán bankanna. V. Útlán bankanna er sú loftvog, sem venjulega sýnir bezt, hversu öruggt og heilbrigt fjármálaástandið er í landinu. Eg hefi minnzt á þróunina í hækkun ríkisút- gjaldanna og síhækkandi óhagstæðan verzlunarjöfnuð. Þegar útlán bankanna eru tekin með, þá eru komnar aðalstoðirnar, sem standa undir og valda að mestu verð- bólgunni í landinu. 13

x

Landsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landsmál
https://timarit.is/publication/2071

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.