Landsmál - sep. 1947, Side 15

Landsmál - sep. 1947, Side 15
TÍMARIT UM LANDSMÁL inn mjög ráðstöfunum og þörfum ríkisvaldsins, og þingið getur gefið bankanum fyrirmæli með lögum, eins og gert var í sambandi við stofnlánadeildina, þótt það sé brot á öllum venjum, sem ríkjandi eru með þjóðum, sem ‘ byggja á samskonar f járhagskerfi og íslendingar. Það er ljóst, að heildar-útlán bankanna eru komin mikið lengra en góðu hófi gegnir. En þó virðist svo sem ýmsum opinberum aðiljum finnist ekki mælirinn enn , vera fullur. Ríki og bæjarfélög og aðrir opinberir aðilar hafa nýlega sent Landsbankanum lánbeiðnir um samtals 187 millj. króna. Þetta er næsta ótrúlegt, en það sýnir, að enn sofa margir vært á verðbólgukoddanum. Samkvæmt efnahagsreikningi Landsbankans 31. júlí þessa árs, liggur sparisjóðsdeildin með innlend verðbréf fyrir 94 millj kr. Þetta munu vera nær eingöngu skulda- bréf ríkissjóðs og bæjarfélaga. í hlutfalli við veltufé bankans er þetta mikil fjárhæð, sem þannig er fest um langan tíma, því að ekki er líklegt að félög eða einstakl- ingar kaupi mikið af slíkum bréfum fyrst um sinn. Enn- fremur sést á nefndum efnahagsreikningi, að reiknings- lán og yfirdráttur á hlaupareikningi nema 135 millj. kr. í seðlabankanum og 36 millj. í sparisjóðsdeildinni, auk innlendra víxla kr. 178 millj. Þessi lán, sem að ofan grein- ir. ásamt verðbréfum, nema samtals 443 millj. kr., en þær stoðir, sem bankinn verður aðallega að byggja á í út- lánastarfsemi sinni, eru seðlar í umferð 159 millj., spari- sjóðsfé 244 millj. og eigin sjóðir 50 millj. eða samtals 453 millj. króna. Virðist af þessu mega dæma, að útlána- möguleiki kankans sé í hámarki og þó á stofnlánadeildin eftir að fá um 60 millj. að láni úr seðlabankanum. í þessu » sambandi er einnig ástæða að gæta þess, að seðlaumferð- in fer langt fram úr því, sem heilbrigt getur talizt. Þessar tölur gefa til kynna, að sá þungi sem nú hvílir á Landsbankanum vegna verðþenslu og opinberra að- gerða, verði tafarlaust að minnka, ef vel á að fara. 15 L

x

Landsmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsmál
https://timarit.is/publication/2071

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.