Landsmál - Sep 1947, Page 16

Landsmál - Sep 1947, Page 16
TÍMARIT UM LANDSMÁL VI. ReUsturshostnaöur ríhisins. Eins og nú horfir, er fyrirsjáanlegt að óhemjuerfið- leikar verða með rekstur þjóðarbúsins sjálfs, sem ríkis- sjóði er ætlað að standa straum af, nema tekið verði þegar í stað svo djarft í taumana, að um muni. Þeir flokkar, sem standa að núverandi ríkisstjórn og slíkt átak verða að gera, þurfa að vera við því búnir að leggja í hættu vinsældir sínar og varpa öllum pólitískum hags- munum og tillitssemi fyrir borð, en láta sig eingöngu varða það, að koma skipinu heilu í höfn. Þótt erfiðleikar ríkissjóðs séu ekki enn orðnir áber- andi, bendir þó hitt og annað á það, að róðurinn sé far- inn að þyngjast. Þarf engan slíkt að furða, sem athugar þá bagga, sem honum hafa verið bundnir af Alþingi á sama tíma og ljóst var að stórfelld gjaldeyriskreppa var að skella yfir. Verðtollurinn er áætlaður langhæsti tekju- liður ríkisins á þessu ári, með 72.5 millj. Það samsvarar 36% af öllum rekstrartekjum ríkissjóðs. Nú er þessi tekjuliður í mestri hættu af öllum tekjustofnunum, vegna gjaldeyriskreppunnar. Ef ekki er hægt að flytja inn þær vörur, sem aðallega eru tollskyldar, er sýnilegt að toll- tekjur hljóta að bresta. Sama verður með vörumagns- toll og skatt af innlendum tollvörum, vegna skorts hrá- efna. Nema þessir tollar samtals 20.4 millj. Þessir þrír tekjuliðir, sem gjaldeyriskreppan skellur þyngst á eru samtals 93 millj. eða nærri helmingur af öllum rekstrar- tekjum ríkisins (202 millj.). Fyrri helming ársins mun þó nokkuð hafa haldizt í horfinu, meðan síðustu leifar gjaldeyrisins voru að renna út. En síðari hluta ársins hlýtur útlitið að vera mjög geigvænlegt, ef ekki gerist kraftaverk í gjaldeyris-öfluninni. Þegar litið er á fjárlög þessa árs og athugað hvaða útgjöld helzt mætti spara ef í nauðir rekur, þá kemur 16

x

Landsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landsmál
https://timarit.is/publication/2071

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.