Landsmál

Ukioqatigiit

Landsmál - sept 1947, Qupperneq 21

Landsmál - sept 1947, Qupperneq 21
TÍMARIT UM LANDSMÁL ákvarðana ekki sízt á því, að vera engu ríki háð fjárhags- lega. Við megum engu ríki gefa fangstaðar á okkur með þeim hætti. Það væru svik við þessa kynslóð og þær sem á eftir koma. — Erlend lán geta heldur ekki læknað ástandið nema í svip. Landsmenn verða sjálfir að lag- færa það sem nú fer aflaga og þola kvölina meðan hreins- unin stendur. Gjaldeyrismálin eru svo mikilsvarðandi fyrir alla lífs- afkomu þjóðarinnar, að til lítils er að taka önnur vanda- mál til meðferðar, fyrr en gjaldeyrismálin eru komin á öruggan grundvöll. Þess vegna verður að gera ,’,hreint borð“ í því efni með öllum þeim skjótleik, sem unnt er. Þegar það hefir verið gert, verður að greiða eða semja um skuldirnar sem þegar hafa safnazt og þá reglu verð- ur eftirleiðis að taka upp að engin gjaldeyrisleyfi séu gefin út sem ekki er hægt að greiða, hversu erfitt, sem það kann að reynast í byrjun. Einnig mætti hugsa sér eins og nú stendur á, til að fyrirbyggja vanskil, að gefa út fyrirmæli um að engar vörur mætti flytja til landsins nema greiðslan væri tryggð fyrirfram. Eg ætla ekki að ræða um það hvernig ætti að verja þeim takmarkaða gjaldeyri, sem fyrst um sinn verður til ráðstöfunar. Slíkt verður að ákveðast fyrst og fremst af þörf þjóðarinnar til lífsviðurværis og framleiðslu. Innan fjögra mánaða verður að gera ráðstafanir til þess að framleiðslan í landinu geti orðið arðberandi. Það er fyrst og fremst nauðsynlegt til þess að afla gjaldeyris fyrir lífsnauðsynjum þjóðarinnar, og það er í öðru lagi nauðsynlegt til þess að bjarga lánsstofnunum lands- manna frá áföllum er leitt gætu erfiðleika yfir atvinnulíf landsmanna um langan tíma. En ráðstafanir til að gera framleiðsluna arðberandi er sama og að stinga á graftarkýli verðbólgunnar. Það heimtar margar aðgerðir í senn. Að líkindum þarf að lækka framleiðslukostnað útvegs- ins um 35—40% þegar í stað, svo að hann geti selt af- 21

x

Landsmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsmál
https://timarit.is/publication/2071

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.