Landsmál - sep. 1947, Qupperneq 24
TÍMARIT UM LANDSMÁL
hlutverk ríkisstjórnarinnar nú, er að sporna við slíkri
rás með því að halda dýrtíðinni í skefjum með öllum
ráðum. Mun mörgum finnast að minna sé aðhafst í því
efni en þörf væri á. Það þarf fleiri úrræði og sterkari
átök en sýnd hafa verið til þessa. Þensla dýrtíðarinnar
felur í sér hættu fyrir efnalega afkomu þjóðarinnar og
fjárhagskerfi hennar, er ekki verður séð út yfir. Ef
stjórnarvöldin missa algjörlega tökin á þessum málum
sem helzt lítur út fyrir, þá verður erfitt að sjá hvar náð
verður lendingu þegar óveðrinu slotar.-------“
Ritað í Vísi 26. nóv. 1942.
„------Ef málunum verður leyft að taka þessa rás,
ef ekkert verður gert til þess að stöðva afleiðingar þeirr-
ar verðbólgu sem nú er orðin og enn kann að vaxa, mun
hér hefjast mesta fjárhags- og atvinnukreppa er yfir
þetta land hefur gengið. Að vísu mun sú kreppa, eins og
allar aðrar kreppur líða undir lok þegar bikar erfiðleik-
anna er tæmdur, en minningin um það að þjóðin hafi af
léttúð og fyrirhyggjuleysi breytt hinu mesta góðæri í
hina verstu kreppu, mun fylgja þessari kynslóð í gröf-
ina. — —“
Útvarpserindi 5. jan. 1943.
„ — —- Þjóðin verður að gera sér fyllilega ljóst, að
hún er í hættu stödd. Ef verðlag og kauplag í landinu
heldur áfram að taka risastökk eins og verið hefur und-
anfarið, þá er enginn mannlegur máttur sem getur forð-
að henni frá fjárhagshruni, atvinnuleysi og bjargarskorti.
Þess vegna er aðeins um eitt að gera, að spyrna við brodd-
unum. Með skapfestu og manndómi mun það takast. Þessi
þjóð hefur ekki staðið af sér plágur og kúgun 5 alda til
þess að glata manndómi sínum, menningu og frelsi í
gullflóði þriggja styrjaldarára. Þessari hættu, sem yfir
þjóðinni vofir, verður að bægja frá hvað sem í sölurnar
þarf að leggja.-----“
2U