Landsmál - sep. 1947, Side 26

Landsmál - sep. 1947, Side 26
TIMARIT UM LANDSMAL í langferð að brenna skóna sína áður en hann leggð'i af stað. Vér íslendingar eigum ekki langferð fyrir höndum en vér eigum fyrir höndum mikið starf þegar þessum ófriði lýkur. Það verður á margan hátt torvelt og erfitt. Það starf, sem við þráðum í 700 ár, að mega frjálsir og óháðir og óstuddir öðru en handleiðslu forsjónarinnar, byggja upp í þessu landi frjálst og samhuga þjóðfélag, sem lagt gæti sinn skerf til menningar og lista umheims- ins, sem mætti lifa lífi sínu án öfga á gæðum landsins og þyrfti engan ölmusu að biðja. En til þess að geta hafið þetta starf, til þess að geta innt þetta hlutverk af hendi, verðum vér að gæta þess, að brenna ekki skóna áður en af stað er farið, með því að láta óstöðvandi verðbólgu leggja í rúst allt framtak og allan skipulagðan atvinnu- rekstur í landinu, áður en vér byrjum á verkefnum og vandamálum komandi friðarára. Fátækt og öngþveiti eru ekki traustir hornsteinar til að byggja á sjálfstætt þjóð- félag. Það er með þjóðina eins og einstaklinga, að hún er sinnar eigin gæfu smiður.-----“ Fjárlagaræða 9. sept. 1943. „— •— Þótt afkoma ríkissjóðs virðist vera mjög sæmi- leg eins og sakir standa, eru allar áætlanir fram í tím- ann byggðar á sandi meðan þjóðin hefur ekkert fast undir fótum í dýrtíðarmálunum. Sú óvissa sem nú liggur eins og móða yfir öllum atvinnurekstri þjóðarinnar torveldar allar framkvæmdir og dregur úr viljanum til að starfa og örvar eyðsluna og gerir menn lómláta um framtíðina. Þjóðin þarfnast fjárhagslegs öryggis til að geta starfað og hún verður að fá það. Það er annað og meira í húfi en sparifé landsmanna, sem þeir hafa dregið saman á áratugum og nú er lifandi blóð atvinnurekstursins í land- inu. í húfi er einnig það sem mikill hluti þjóðarinnar þarf að bíta og brenna, af þeirri einföldu ástæðu, að verðbólga, sem engar skorður eru settar, mundi stöðva alla útflutn- ingsframleiðslu landsins. —- — ■—“ 26

x

Landsmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsmál
https://timarit.is/publication/2071

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.