Landsmál - sep. 1947, Síða 27

Landsmál - sep. 1947, Síða 27
TÍMARIT DM LANDSMÁL Eldhúsumræður á Alþingi 24. nóv. 1943. „-----Manni verður fyrst að spyrja sjálfan sig: Hvers vegna er ríkissjóður að safna sjóðum til framkvæmda eftir ófriðinn, ef hin stígandi alda dýrtíðarinnar gerir þessa sjóði einskis virði? Hvers vegna eru landsmenn að leggja til hliðar sparifé, hvers vegna eru þeir að stofna nýbyggingarsjóði, ef þetta ætti allt að verða að reyk og ösku í bruna verðbólgunnar. Allt þetta væru ráðstafanir út í bláinn, fávíslegar, broslegar og rökvana, ef ekki ætti að halda verðbólgunni í skefjum, ef ekki ætti að berjast gegn dýrtíðinni, verðhækkuninni, verðbólgunni með oddi og egg, með hnúum og hnefum, með öllum þeim ráðum sem þjóðin hefur fram að bera. Ef ég ætti að draga saman í litla mynd þær athuga- anir sem ég nú hefi gert að umtalsefni í því skyni að gera sér grein fyrir heimilisástæðunum hjá oss íslendingum eftir fjögur styrjaldarár, þá mundi sú mynd vera á þessa leið: Oss hafa fallið talsverðir fjármunir í skaut, sem nota mætti til þarflegra hluta, ef viturlega er að farið. Megin stoðirnar sem standa undir atvinnulífi þjóðarinnar eru orðnar fúnar og ótraustar og þarfnast endurnýjunar, ef húsið á ekki að hrynja oss yfir höfuðið. Sundurlyndið á heimilinu er þó þannig að hver höndin rís á móti annarri og enginn vill annars ráð nýta. Það er pest í búpeningn- um, sem ógnar með algjöru hruni vegna þess að heimils- fólkið hefur ekki komið sér saman um hverjum beri skylda til að annast hann.----“ Útvarpserindi 26. apríl 1944. „-----Verði hins vegar ekkert úr aðgerðum til að stöðva verðlagið og færa það niður en í þess stað mörg öfl að verki til að brjóta þann garð sem enn heldur í skefjum flóðbylgju dýrtíðarinnar, þá stöðvast atvinnu- reksturinn að mestu leyti áður en langt um líður og víð- tækt atvinnleysi tekur við. Við þessu er verið að reyna að sporna. Þetta er ógæfa, 27

x

Landsmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsmál
https://timarit.is/publication/2071

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.