Landsmál - sep. 1947, Blaðsíða 29

Landsmál - sep. 1947, Blaðsíða 29
TÍMARIT UM LANDSMÁL mörk sett og menn hlógu að þeim sem vöruðu við ástand- inu. Á nokkrum dögum hrundi spilaborgin og þá hófst fjárhags- og atvinnukreppa hin mesta sem heimurinn hefur séð til þessa. í Ameríku varð eitt hið mesta fjár- hagshrun, sem komið hefur þar í landi og leiddi af sér almennar þrengingar og atvinnuleysi. Það verður sama lögmálið sem endurtekur sig hér með nokkuð öðrum hætti vegna ólíkra staðhátta en með svipuðum árangri, ef ekki • verður tekið í taumana nógu snemma. Verðfall á íslenzkum afurðum og framleiðsluvörum hlýt- ur að koma, þegar friður er fenginn og viðskiptin leita í eðlilegan farveg. Þess vegna eru þau átök sem nú eru gerð um hækkun launa og þar með alls framleiðslukostn- aðar, eins og glíma við skuggann sinn. Þessi átök geta ekki fært nokkrum hagnað raunverulega, vegna þess að sjálft ástandið, hin óumflýjanlega rás viðburðanna, hlýtur að þurrka slíkt burtu. Vér getum að sjálfsögðu sett hvaða verð sem oss sýnist á eigin afurðir og vinnu, en vér höfum ekkert vald til þess að skipa nokkrum að greiða þetta verð. Þess vegna er streitan til einskis. Hún fer í bága við lögmál viðskipta og atvinnu. Atvinnugreinarnar geta ekki borið kostnaðinn. Þeim sem nú herða róðurinn í þessu efni, fer eins og manni sem sáir vorkorni sínu að hausti. Sáðkornið þolir ekki breytingu árstíðanna og það gefur enga uppskeru. Svo verður um allar kauphækkanir, sem I nú kunna að bætast við kostnað vorrar ósamkeppnishæfu framleiðslu. Þær gefa enga uppskeru, bera engan ávöxt, vegna þeirrar breytingar á ástandinu í heiminum, sem nú stendur fyrir dyrum og ekki verður um flúin, en vér fáum _ ekki við ráðið.---------“ 29

x

Landsmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landsmál
https://timarit.is/publication/2071

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.