Alþýðublaðið - 01.03.1926, Qupperneq 1
GeVið át af ÆI|sýðufIokknaifiS
1926.
Mánudaginn 1. marz.
51. tölublað.
Þessa viku seljum við með 20 — 30 % afslætti alls konar kápuefni,
kjólaefni, morgunkjólaefni, siiki og silkisvuntuefni, gardínur og
gardinuefni, tilbúna fatnaði, kvensjöl, regnkápur, kvenpeysur,
kventöskur o. fl. o. fl. — Flestallar aðrar vörur, svo sem alls konar
bómullarvörur, manchetskyrtur, bindislifsi, nærfatnað, sokka,
prjönagarn, regnhlifar o. fl. með 10 % afstætti. Athugið vel, að
hér verður um sérstök tækifæriskaup að ræða, þar sem vörurnar eru
áður lækkaðar í hlutfalli við nýjasta verðlag.
Martelnn Elnarsson & Co
H.f. Reykjavikurannáll 1926:
Eldvígslan
leikin í Iðnö í kvöld kl. 8 og priðjudag og miðvikudag.
Aðgöngumiðar seldir i dag rá kl. 2 — 8 og kl. 10 — 12
og 2 — 8 hina dagana.
Erlend simskeyti.
Khöfn, FB., 27. febr.
Fjármál Frakka.
Frá París er símað, að allir
búist við, að sámkomulag náist
um aðferð til pess að rétta við
fjárhag ríkisins pannig, að jafn-
vægi náist á fjárlögum þessa árs,
þar sem flokkarnir hafa loksins
séð, að lífsnauðsyn er og óhjá-
kvæmilegt, að látið verði til skar-
ar skríða fjármálunum viðvíkjandi
í næstu viku. Síðan á að hefja
að nýju að semja um skuldir við
Bretland og Bandaríkin.
Rússum veitt lán.
Frá Berlín er símað, að stór-
bankarnir þýzku hafi veitt Rúss-
um umsímað láh til kaupa á
þýzkum vörum.
Khöfn, FB., 28. febr.
Bændauppreisn i Þýzkaland/.
Frá Berlín er símað, að 200
menn, flestir bændur, er voru
reiðir yfir skattabyrði sinni, réð-
ust á smábæ við Rínarfljótið og
brutust inn í skattstjóraskrifstof-
una, brendu öll skjöl, en mis-
þyrmdu skrifstofufólkinu. Farið
verður að mönnum þessum eins
og þeir væru uppreistarmenn, og
verður þeim vafaiaust hegnt með
fangelsisveru.
Stjórnarskifti i Noregi.
Frá Osló er símað, að í gær
hafi verið lokið umræðum um
fjárlögim í stórþinginu. Megn and-
byr hafði komið fram gegn stjórn-:
inni síðustu daga. Hægrimenn og
bændaflokkur kröfðust stöðugt
víðtækrar lækkunar á fjárlögun-
um. í gær komu fram vantrausts-
yfirlýsingar þriggja flokkanna;
voru þær að vísu feldar, en Mo-
winckel lýsti yfir því, að hann
færi frá, og tilkynti konungi það
samstundis. Hægrimenn munu
mynda stjórn, og óska samvinnu
við bændaflokkinn, en ósennilegt,
að þeir vilji taka þátt í stjórnar-
mynduninni.
lsafirði, FB., 23. febr.
Dánarfregn.
Nýlátin Sigríður Gísladóttir ljós-
móðir, Garðsstöðum, merkiskona.