Alþýðublaðið - 30.10.1926, Side 1

Alþýðublaðið - 30.10.1926, Side 1
G-efiH úi »S MpýdsBfiokksaism 1926. ©rlesad sfntslseytl* Khöfn, FB., 29. okt. Svartliðar lýsa yíir ySirdrottn- unarsteínu sinni. Frá Römaborg er sírnað, að par hafi verið afar-mikil hátíðahöld af pví tilefni, að fjögur ár voru liðin, síðan svartliðar tóku stjórn lands- ins í sínar hendur. — Mussolini var hyitur af mannfjöldanum, er hann hétt ræðu á Kolosseum. Kvað hann markmið svartliða vera að efla veg og gengi Ítalíu sem mest. Takmarkið væri stærri og voldugri Ítálía. Frönslt blöð vilja fá Þjóðverja til samninga um auðvaldssam- tök um austurlandamærin. Frá París er simað, að blöpin par í borg geri það að umtalsefni, hvers konar endurgjald Þjóðverjar geti boðið í staðinn fyrir yæntan- lega heimköllun setuliðsins úr Rín- arbyggðunum. Sum blöðin stinga upp á pví, að Þýzkaland fallist á að verða aðili að gerð og sam- pykt á öryggissamningi um landa- mæri Þýzkalands, pau, er vita mót austri, og verði Locarnosamning- urinn fyrirmynd pessa öryggis- samnings. Atvinnufoóíamálið og jafnaðarmannastjórnin danska. .(Tiikynnjng frá sendiherra Dana.) Reykjavík, 29. okt. í ræðu i pjóðpinginu sagði Stauning forsætisráðherra á mið- vikudaginn: „Árið 1924 fengu kjósendur jafnaðarmönnum og gerbótamönnum meiri hluta upp á stefnuskrá peirra um að koma skipulagi á peningamálin og vinna bug á atvinnuleysinu. Úr síðara viðfangsefninu er enn óleyst, en úr pví verður að leysa nú. Ég ef- ast ekki um, að meðal gerböta- manna sé góð,ur vilji til að stuðla ......~l.. Laugardaginn 30. október. 253. tölublað. að úrlausninni, en ef það skyldi kóma í Ijós, að ekki sé meiri hluti fyrir málinu, verður ekki komist hjá kosningum. Það er rnjög svo líklegt, að sem stendur komi ekki til kosninga — allra næstu tímar skera úr um pað —, en stjórnin hefir lagt sitt fram, og svarið mun bráðlega korna frá ríkisþinginu." Á nefndaríundi gerbótamanna á miðvikudagskvöklið lýsti flokkur þeirra aðstöðu sinni gpgnvart fyrirætlununr ' sjjórnarinnar til varnar gegn kreppunni með frum- varpi um, að beinu styrkirnir til iðjugreinanna séu veittir sem til- raun, og að eignaskattinum sé breytt á þann hátt, að hann lendi að eins á eignum, sem hafa beint aukist vrð hækkun krónunnar. Þrem fjórðu hlutum sé varið til að létta skatta sveita- og bæja- félaga. 0 'j Espenaifi to pi ngið. Eftir Ól. Þ. Kristjánsson. • (Frh.) 13. Portobello. Það var árið 1742, að sjómaður nokkur byggði sér hús á strönd- inni, kippkorn fyrir utan Edin- borg, og kallaði Portobello-kot. Nefndi hann bæ sinn svo eftir borg einni í Suður-Ameríku, sem hann hafði verið með að vinna. Óx þarna smátt og smátt upp þorp, og hlaut það líka nafnið Portobello. Nú hefir Edinborg teygt sig út fyrir það, en Porto- bello heldur samt nafni sínu, eins og auðvitað er. Ég fór með sporvagni til Porto- bello, og er það sérlega skemti- legur vegur. Einkunr varð mér starsýnt á framhliðar margra húsa, því að þær voru alþaktar vafjurtum. Eins voru girðingarnar utan um blömgarðana allar vafð- ar þessum jurtu'fn, svo að hvergi sást í járnið. Annars er þetta ekkert einsdæmi í Edinborg. Portobello er merkilegur skemtistaður. Þar er baðhöll mik- il; hún var reist árið 1901, og kostaði 30 þúsund sterlingspund. Þar geta menn fengið sjávar- vatnsböð, heit eða köld eftir geð- þótta, og sömuleiðis sundböð. Margir baða sig líka undir berum himni í sjónum við ströndina, og eru það einkum börn og ungling- ar, sem það gera. En mesti fjöldi fólks er jafnan í Portobello. Ým- ist gengur það sér til skemtunar eftir breiðu stræti, senr liggur með fram ströndinni, og er það- an skemtilegt útsýni norður á Forth-fjörðinn og alla leið yfir á Fíf. Margir sitja líka niðri í fjörunni, því að þar er talsvert útfiri; sumir sitja á stólum, sem hægt er að leigja fyrir eitt penny um tímann, en aðrir sitja eða liggja í sandinum. Alt er þarna mjög frjálslegt, og þó jafnframt einhvers konar ró og friður yfir öllu, eða svo kom það mér fyrir sjónir. Hefi ég ekki á marga staði komið, sem ég hefi kunnað betur við mig á, og tel ég það mikinn kost á hverri borg að eiga blett svipaðan þessum. Og svona staðir eru út með öllum Forth-firði, báð- um rnegin. Ekki má ég gleyma hlóðunum. Það er nú svo, að þó að nóg sé af veitingastöðum á ströndinni, þá þykir piörgum skemtilegra að hita te sitt sjálfir. Sumir hafa með sér „prímus", en aðrir byggja hlóðir úr grjóti. Þótti mér dá- lítið gaman að sjá hlóðirnar, en ekkert veit ég urn eldsneytið. Hérna í síðustu málsgTein var ég búinn að skrifa „kaffi“ eftir ís- lenzkum vana, en varð svo að breyta því í „te“, því Skotar eru i því eirís og Englendingar, að þeir drekka varla nokkurn tíma kaffi. (Frh.) Alþýðublaðið er sex síður í dag.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.