Kennarablaðið - 01.10.1899, Side 1
MANÁÐÁRRIT IM TPPELDI OR KEiSSLlMÁL
OKTÓBER 1899,
1, ÁRG.
1. BLAÐ,
■rpYBiR ýmsura þeim mönnum, er gert hafa alþýðumentunar-
málið að aðaláhugamáli sínu og lcennarastarfið að lífsstarfi'
sínu, hefir það lengi vakað, að æskilegt væri að geta haldið
úti tímariti eða blaði, sem eingöngu gæfi sig að þeim málum,
er snerta uppeldi og kenslu. Að vísu eigum vór oft kost á
að lesa nytsamar ritgerðir um þau efni í ýmsum íslenzkum
blöðum og tímaritum; en ætla má, að mörgum af þeim rit-
gerðum sé tiltölulega lítill gaumur gefinn, vegna þess að þær
standa í blöðum, sem flytja svo mörg önnur mál, og það ef
til vill mál, sem almenningi kunna að þykja meira aðlaðandi
eða skemtilegri. Þess vegna hefir sú hugmynd vaknað, að
kennararnir þyrftu að hafa sitt sérstaka málgagn, er flytti
mál þeirra eigi einungis meðal þeirra sjálfra innbyrðis, þeim
til uppbyggingar, heldur einnig og engu síður inn á heimilin,
sem þeir starfa fyrir.
Svo var gerð tilraun. Nokkrir þeirra, sem mestan áhuga \
hafa á því að efla alþýðumentunina hér á landi og sem fær-
astir eru til að rita um það mál, tóku sig saman og gáfu út
„Tímarit um uppeldi og mentamál." En að fáum árum liðn-
um sau þeir sér eigi lengur fært að halda því áfram; jafnvel
þótt það væri svo vel úr garði gert sem mögulegt var að
vænta eftir, náði það þó eigi hylli almennings. Aðalástæðan
fyrir þessu ætlum vér að haíi verið sú, að ritgerðir þær, sem
það flutti, hafi þótt of langar og ef til vill ekki nægilega að-