Kennarablaðið - 01.10.1899, Page 5
völl, sem þjóð vor á að byggja ofan á á komandi öldum. En
hún er sórstaklega bygð á yður. Það er sórst.aklega yðar
málefni, sem blaðið á að flytja; það á að vera samverkamað-
ur yðar í starflnu, sem þér hafið tekist á hendur, og það á
að verða það band, er tengi saman alla þá, sem hér á landi
starfa að því að uppfræða og menta æskulýðinn; það á að
vinna með yður og fyrir yður. Þess vegna byggi óg von
mína á yður, á því, að þér takið blaðinu vel og kostið lcapps
um að fá það sem mest útbreitt, svo að það að minsta kosti
eigi þurfl að sæta þeim forlögum, sem svo mörg af systkin-
um þess, íslenzku blöðunum og tímaritunnm, hafa hlotið að
sæta — að veslast upp innan fárra ára.
En hitt er eigi síður áríðandi, að hlynna að blaðinu með
því að rita í það. Aðalskilyrðið fyrir því, að það geti þriflst
og komið að tilætluðum notum, er þetta: að sem flestir láti
til sín heyra í því, og þá fyrst og fremst þeir, sem sérstaklega
hafa gert alþýðumentunarmálið að áhugamáli sínu, og það eru
væntanlega kennararnir. Hið íslenzka Kennarafélag var á
sínum tíma st.ofnað í þeim tilgangi, að það ætti að verða til
þess að tengja saman ísienzku kennarana og efla málefni það,
sem þeir bera fyrir brjósti. Á fundum þess átti að taka til
umræðu og yfirvegunar ýms uppeldis- og kenslumál; þar áttu
menn að bera saman skoðanir sínar, fá leiðbeiningar hver hjá
öðrum og flnna upp hin heppilegustu ráð til að hrinda því í
lag, sem miður fer í þeim efnum. En Kennarafélagið hefir
eigi náð þessum tilgangi sínum, svo sem æskilegt hefði verið,
og það af þeirri ástæðu, að þeir menn, sem mest eiga að
starfa að mentun alþýðunnar, barnakennararnir, hafa eigi
fengist til viðtals; fáir þeirra hafa gerst meðlimir fólagsins og
enn færri hafa sótt fundi þess. Aðalorsökin til þessa mun að
líkindum vera sú, að þeir hafa eigi getað fengið tíma né tæki-
færi til að sækja fundi hingað til Reykjavíkur, og skal því
eigi neitað, að á því geta oft verið miklir örðugleikar fyrir
þá, sem i fjarlægð búa. En nú er það tilgangur vor að hrinda
íessum örðugleikum úr vegi, að stytta leiðina til kennara-
fundanna, Nú eigið þér að geta haft kennarafund heima hjá