Kennarablaðið - 01.10.1899, Síða 9

Kennarablaðið - 01.10.1899, Síða 9
9 við komið, og eins og áður er tekið fram, auka Jieir óholla samkepni, sem sprottin er af metnaðarfýsn. Daglegir vitnisburðir eru óheppilegir fyrir kennarann. feir freista hans til að leita eftir röngum svörum, en þetta spillir samvinnunni og samkomulaginu milli kennara og nemenda og er auk þess í sjálfu sér rangt, því að kennarinn á ætíð að gera sór alt far um að fá nemendurna til að svara rétt. Þeir neyða einnig kennarann til að halda sér við bókstafinn; ef að dugiegur og kostgæfinn nemandi hefir af einhverjum ástæðum vanrækt að læra lexíuna sína í eitt skifti, getur kennarinn ekki fyrirgefið honum hað, þótthann biðji hann fyrirgefningar. Hann er neyddur til að gefa honum þann vitnisburð, sem hann verðskuldar samkvæmt frammistöðu sinni. Gangi nem- anda illa að læra og hætti honum til að missa móðinn, þá getur kennarinn haft freistingu til að gefa honum hærri vitn- isburð, en hann verðskuldar, til þess að hughreysta hann; en það er í raun og veru ekki réttlátt og vekur því óánægju ann- ara nemenda. Daglegir vitnisburðir eru skaðlegir fyrir sambandið milli heimilanna og skólans. Takmarkið er, að heimilin og skólinn vinni í sameiningu að uppeldi barnanna. En þess eru ótal dæmi, að samvinnan hefir öll farið út um þúfur vegna vitnis- burðanna. Barnið hefir ef til vill kunnað lexíuna sína ágæt- lega heima, en þegar það kemur í skólann, er það búið að gieyma henni eða það er að hugsa um eitthvað annað, á með- an því er hlýtt yfir; kennarinn verður kannske ergilegur, og afleiðingin af öllu þessu verður sú, að það fær lágan vitnis- burð. Foreldrar eða aðstandendur barnsins verða óánægðir, og samvinnunni milli heimilisins og skólans er lokið; barnið er jafnvel tekið úr skóianum á miðju lcensluári. Daglegar vitnisburðagjaftr útheimta tiltölulega of mikinn tíma og mikið erfiði. í kenslustundunum þarf oft eigi all-lítinn tíma til að ákveða vitnisburðina og skrifa þá inn, og sá tími er tekinn frá kenslunni. Á meðan kennarinn skrifar hvern ein- stakan vitnisburð, verður dálítið hló á kenslunni, og þetta befir óheppileg áhrif, því að hugup kennarans og nemendanna

x

Kennarablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.