Kennarablaðið - 01.10.1899, Page 15

Kennarablaðið - 01.10.1899, Page 15
15 að mestu leyti að hvíla á heimilunum, já, meira en nokkur önnur kensla, að lestrarkenslunni undantekinni; því að nú eru þó í flestum sveitum umferðakennarar, sem veita tilsögn bæði í skrift og reikningi, svo að heimilin geta að miklu leyti kastað sinni áhyggju upp á þá að því er þær námsgreinar snertir. Bn þar á rnóti útheimtá lestrarkenslan og kristindómsfræðslan svo langan tíma, að þess gætir lítið, þótt börnin njóti tilsagnar í þeim námsgreinum hjá umferðakennaranum þann þriggja vikna eða mánaðartíma, sem hann dvelur á hverjum stað. Það mun nú líka óhætt að fullyrða, að kristindómsfræðslunni mun að ölium jafnaði lítið betur borgið, þótt umferðakennar- arnir annist um hana þann tíma, sem þeir hafa börnin undir hendi, því að fæstir þeirra eru mikið fæi'ari til að veita fræðslu í þeirri grein en heimilin, af þeirri ástæðu, að þeir hafa vana- lega ekki lært meira, sem þar að lýtur. í sjálfu sér væri nú auðvitað ekkert á móti því, að heimilin önnuðust sem mest eða kannske nærfelt eingöngu um kristindómsfræðsluna. Ég fyrir mitt leyti vildi óska, að öll heimili væru fær um að gera það og gerðu það; það mundi að minni hyggju verða sú hollasta og ávaxtarsamasta kristindómsfræðsla, sem unt yrði að fá. En ég veit, að fæst heimili eru fær um að veita þá fræðslu, svo í lagi sé. Góð heimili geta gert og gefa mikið, bæði beinlínis og óbeinlínis, í þá átt að innræta börnunum gott og kristilegt siðferði; en eiginlega kristindóms/rœðsbí, út- skýringu á höfuðatriðum trúarinnar, geta þau vanalega ekki veitt, sizt svo að hún sé við barna hæfi. Trúarbragðafræðslan á heimilum upp til sveita byrjar vanalega undir eins og börnin eru orðin nokkurn veginn staut- andi, — ég segi ekki lœs, því að hér á landi eru svo fjölda- margir menn, sem aldrei verða þolanlega læsir, þótt skýrslur segi annað —, en þegar þau eru orðin stautandi, svo að þau geti nokkurn veginn hjálpariaust komist fram úr algengu, fremur léttu máli. Éá er fengið handa þeim lærdómskver. Stundum er þetta gert, áður en börnin geta komist fram úr því sjálf, einkum ef að lestrarkenslan hefir verið vanrækt, svo að barnið kannske er komið undir fermingu, áður en það

x

Kennarablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.