Kennarablaðið - 01.01.1900, Blaðsíða 7

Kennarablaðið - 01.01.1900, Blaðsíða 7
55 menn í þessa orðs sannasta skilningi. Að þessu takmarki á einnig biblíusögunámið að stefna. Að vísu á það, eins og hvert annað sögunám, bæði að auðga barnið að þekk- ingu, temja ímyndunaraflið og skerpa skilninginn. En fremur öllu öðru á það þó að ná til tilfinninganna og viljans. Allar góðar og göfugar tilfinningar hjá barninu geta fengið ríkulega næringu við samræður um biblíusögurnar. Það er ekki til sú góð tilfinning, sem þær gefi ekki nóg tilefni til að glæða, og það er ekki til nokkur ill tilflnning eða vond tilhneiging hjá barninu, sem þær gefi ekki tilefni til að kæfa niður. Par er skýrt frá eftirbreytnisverðum persónum, og laun dygðarinnar koma þar svo ljóslega fram, að þau eru hverju barni auð- skilin. Þar er einnig skýrt frá vondum mönnum, og hegn- ingin, sem þeim mætir, stendur þar til viðvörunar fyrir þá, sem verða fyrir sömu freistingum og hafa sömu tilhneigingar. Sé alt þetta athugað og vel útskýrt, þá mun ekki hjá því fara, að biblíusögunámið verði börnunum til sannrar og var- anlegrar blessunar, og sérstaklega að það undirbúi jarðveg hjartna þeirra undir hinn eiginlega sáðtíma, sem upprennur, þegar þau byrja á kristilegu barnalærdómsbókinni. Og það á það að gera. Það á að vera undirstaða trúarbragðafræðsl- unnar, og það er þess vegna nauðsynlegt bæði að biblíusögu- nárnið gangi að minsta kosti að miklu leyti á undan kver- kenslunní, og að það standi í nánu sambandi við hana. En þetta getur það því að eins gert, að biblíusögurnar séu ekki kendar einungis eða mestmegnis til fróðleiks eða til að auka sögulega þekkingu barnanna, heldur sé það jafnan haft hug- fast, að þær eru fyrst og fremst meðal, sem notað er til að undirbúa hjörtu þeirra, svo að þau verði móttækileg fyrir meiri og djúpsettari áhrifum, og að æfa og styrkja skilning- inn, svo að þau verði fær um að draga almennar ályktanir út frá þeim sérstöku a.tburðum, sem skýrt er frá í biblíusög- unurn. Ýmsir halda því fram, að kristindómsfræðslan ætti helzt að byggjast eingöngu á bibiíusögunámi, að lærdómsbókinni ætti alveg að sleppa, en útleiða trúfræðissetningarnar úr bibíiusög-

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.