Kennarablaðið - 01.01.1900, Side 8

Kennarablaðið - 01.01.1900, Side 8
56 unum, og það er líklegt, að þetta væri ailra heppilegast, efað hægt væri að kom því á. En það er mjög svo erfitt vegna þess, að það gerir of strangar kröftir til kennaranna. Með þeirri mentun, sem barnakennarar alment hafa, — ég tala ekki um hér á landi, heldur yfir höfuð —, er það flestra ofurefli að útleiða trúfræðishugmyndirnar úr biblíusögunum og setja þær í rétt samband innbyrðis. Hitt er nnnað mál, að þegar trú- fræðishugmyndirnar liggja svo á yfirborðinu, að ekki þarf að leita lengi til að finna þær, þá er sjálfsagt, að kennarinn bendir börnunum á þetta. * Á þann hátt læra þau smátt og smátt að þekkja fleiri og fleiri þesskonar hugmyndir. En hér verða menn að gæta sín vel, að þeir ofþyngi ekki börnunum; þetta er nokkuð alveg nýtt fyrir þau, og má því ekki fara langt út í það til að byrja með. En sé gætilega og skynsamlega að þessu farið, getur það þó orðið til þess, að börnin komi að kunnugu efni, þegar þau fara að læra kverið, og þá verður þeim geðfeldara að fá meiri fræðslu um það. Þegar svo til kverkenslunnar kemur, liggur fyrst og aðal- lega fyrir þessi spurning: Hvernig eiga börnin að læra það? Eiga þau að læra það alt utanbókar eða ekki ? Sumstaðar þar sem menn eru langt á veg komnir í alþýðumentun, eru þau látin læra það alt utanbókar, þannig t. d. í Svíþjóð, þó ekki svo að skilja, að mest áherzlan sé lögð á utanbókarlærdóminn. Sumstaðar aftur á móti, eins og t. d. í Danmörku,. eru þau að eins látin iæra fræðin og ritningargreinarnar, en kynna sér hitt, svo að þau geti stuðst við það. Yflr höfuð er fremur lítil stund lögð á kverkenslu í Danmörku, en því meiri á biblíu- sögunám. Orsökin til þess er ef til vill sú, að Dani hefir alt til þessa vantað góða kenslubók í kristindómi. Það er altítt í skólum upp til sveita í Danmörku, að börnin hafa biblíusögur nærfelt á hvérjum degi, en yflr kverið er farið á 2—3 mán- uðum á undan prófi, og það að eins með efsta bekk. Frá þessu skýri jeg ekki vegna þess, að ég ætlist til, að því verði þannig hagað hér á landi, og það af þeirii ástæðu, að vér get- um ekki bygt eins mikið á biblíusögunáminu, eins og menn gera þar, vegna þess að hér skortir víða góða kenslu, En að

x

Kennarablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.