Kennarablaðið - 01.01.1900, Page 9
57
því er utanbókarlærdóminn snertir, get ég ekki séð, að nein
ástæða sé til að binda sig fast við hann, ef að menn á annað
borð finna, að mögulegt er að komast af án hans. Hann
eykur þá að eins óþarfa fyrirhöfn, eyðir tíma og gerir börnun-
um námið leiðara. En svo er spurningin: Er hægt að komast
af án hans?
Ég tek það nú strax fram, að þeir eru færri, sem vilja
afnema allan utanbókarlærdóm. Fræðin og vissa ritningarstaði,
jafnvel flestar eða allar ritningargreinar, sem i kverinu standa,
munu flestir álíta, að læra eigi utanbókar. En er það nóg?
Ég vildi óska, að þessari spurningu mætti svara játandi án
frekari athugasemda; en eins og ég strax skal sýna fram á,
er það mjög varúðarvert. í barnaskólunum, þar sem börnin
eru stöðugt undir hendi kennara, sem bæði veitir þeim tilsögn
og hefir eftirlit með ástundun þeirra utan skólans, þar hygg
ég að ekki þurfi að leggja svo mikla áherzlu á utanbókarlær-
dóminn; í öllu falli væri það víst hepppilegra, að hann væri
ekki álitinn aðalatriðið, eins og nú á sér stað hér á landi.
Eða hví skyldi það ekki geta gengið hér eins og í skólum
annarsstaðar, að kenna kristindóm, svo að börn hafi full
not af, án þess að láta þau læra- alt kverið utanbókar? Af
barnanna hálfu sé ég ekki neitt, sem geti verið því til fyrirstöðu.
íslenzk bör'n eru að eðlisfari engu ógreindari eða skilnings-
minni en jafnaldrar þeirra t. d. í Dannrörku. En kennararnir?
Eru þeir þá svo færir, að þeir geti tekið að sér að útskýra
fyrir börnunum höfuðatriði trúarinnar, án þess að börnin séu
iátin læra þessar útskýringar utanbókar? Til kennaranna við
skolana ber ég svo mikið traust, að ég hygg að þeir mundu
geta það, ef að þess væri krafist. Fyrst er nú það, að þótt
börnin læri ekki alt kverið utanbókar, þá hafa þau það samt
S6m áður til stuðnings. Og svo er það aðgætandi, að kennar-
inn kemst af með jafnmikla trúarbragðaþekkingu, þótt þessi
aðferð sé við höfð. Sá kennari, sem vel getur útskýrt kverið
nú, hann getur það þekkingarinnar vegna eins vel, þótt hann
kenni það ekki utanbókar. Útskýringin þarf ekkert að ganga
dýpra fyrir því. En hún þarf að yera f öðru formb í stað