Kennarablaðið - 01.02.1900, Blaðsíða 6

Kennarablaðið - 01.02.1900, Blaðsíða 6
70 leiðbeiningu í þessu efni. En auk þess höfura vér líka „Kur- sus" fyrir kennaraefni, og þótt námstíminn þar auðvitað sé ekki langur, þá veit ég þó, að menn eiga kost á að fá þar raaigar góðar bendingar einnig þessari námsgrein viðvíkjandi. Og færi nú svo, sem ég vona, að farið yrði að koma kristin- dómsfræðslunni á nýjan og betri rekspöl, þá er ég líka viss um, að kennararnir við kennaraskólann mundu leggja sérstaka áherzlu á að undirbúa nemendur sína í þeirri námsgrein. En fyrst er þá að fá menn til að koma, að fá þá til að nota þessa litlu lcennarafræðsiu, sem kostur er á að fá hér á landi. Þetta virðist næi' því ómöguiegt. Aðsóknin að þessari stofnun hefii' hingað til verið og er enn þá svo lítil, að það er hrein- asta minkun að því fyrir þjóðina. Það sýnir, hve alþýðument- unin er flestum lítið áhugamál, eða þá að öðrum kosti, hve skamt menn eru á veg komnir, að þeir ekki geta látið sér skiljast það, að aukin kennaramentun er aðalskilyrðið fyrir aukinni alþýðumentun. Menn horfa oft í kostnaðinn, og það er eðlilegt, þar sem alþýða manna er svo illa stödd í fjárhags- legu tilliti. En sá kostnaður, sem hér ræðir um, er svo nauða- lítill, að hann ætti ekki að vera til fyrirstöðu, og væri það lieidur ekki, ef að menn í raun og veru vildu eða sæu þess þörf að kosta neinu til þess að fá sérstakan undirbúning undir kennarastái'fið. En nú sjá menn þess enga þörf, af þeirri ástæðu, að menn eru engu betur settir eftir en áður. Þeir, sem þennan undirbúning hafa fengið, eru ekki teknir til kenslustarfa öðrum fremur, og á meðan ástandið er þannig, þarf naumast að bú- ast við, að menn alment aíli sér þessa undirbúnings. Það er þá víst tiigangurinn, að þeir geri það af eintómum áhuga, og það væri óneitanlega fallegt, ef að margir gerðu það; en væri þá ekki vert að sýna einhverja viðurkenningu fyrir þennan fagra áhuga? Menn verða að muna eftir þvi, að það getur líka orðið þreytandi að lifa á áhuganum einum saman tii lengdar. Hið eina, sem hugsanlegt er til að kippa þessu í lag, er því það, að veita einhver forréttindi þeim, sem hafa leitað sér sérstakrar kennaramentunar. Og þegar nú útséð er um það,

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.