Kennarablaðið - 01.02.1900, Side 9

Kennarablaðið - 01.02.1900, Side 9
73 þessa spurningu: Er það heppilegt eða eigi, að umferðakenn- ararnir veiti tilsögn í kristindómi? Litu nokkrir þeirra, er viðstaddir voru, svo á það mál, að ástandið, eins og það er nú, sé fremur afturför en framför frá því sem áður var, meðan heimilin sáu sjálf um fræðslu barna sinna í kristindómi. Ástæðurnar, sem færðar voru fyrir þessari skoðun, voru þessar: Umferðakennararnir eru flestir lítt fæi'ir um að kenna kristindóm; þeir hafa sjálflr engrar fræðslu notið í þeirri náms- grein fram yfir það, sem alment gerist, og engin trygging er fyrir því, að þeir séu allir miklir trúmenn. Á hinn bóginn kemur það æ betur og betur í ijós, að heimilisfræðslunni fer hnignandi; menn reiða sig á fræðslu kennaranna og láta þar við sitja. Ummæli þessi eru vafalaust á svo miklum sannleika bygð, að erfitt mundi að hnekkja þeim. Enda þótt ganga megi út frá því sem sjálfsögðu, að umferðakennarar standi að sumu leyti í öllu falli eigi lakar að vígi í þessu efni en heimilin, þá verður því þó eigi neitað, að yfirburðir flestra þeirra hljóta kring- umstæðanna vegna að vera nauðalitlir. Eigi allfáir munu þeir vera, sem ails engrar skólamentunar hafa notið, heldur aflað sér þekkingar sjálfir af bókum. En næsta lítil líkindi eru til þess, að margir kennarar hafi lagt sérstaka stund á iestur þeirra bóka, sem geta verið kristindómskennurum til stuðnings. Það sem námfúsir ungir menn vor á meðal sækjast mest eftir að lesa, er venjulega alt annað en guðsorðabækur. Hið sama er að segja um þá, er gengið hafa á gagnfræðaskólana. Sú þekking, er menn fá á þeim skólum, getur að vísu komið þeim að mjög góðu haldi, þegar þeir taka að gegna kennara- starfinu; en að því er kristindómsfræðsluna snertir, standa þeir ekkert betur að vígi en hinir. Fjarri sé það oss að vilja leggja nokkurn dóm á trúarlíf kennaranna. En eigi fáum vér varist ótta fyrir því, að van- trúaralda sú, sem á síðari tímum hefir gert vart við sig, eigi sízt meðal ýmsra af mentamönnum vorum, kunni að hafa hafc áhrif á einhverja meðal kennaranna. Og þótt því megi treysta, að sérhver samvizkusamur kennaii varist að láta

x

Kennarablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.