Kennarablaðið - 01.02.1900, Side 12

Kennarablaðið - 01.02.1900, Side 12
76 Vér trúum því ekki. En hvers vegna þegja þeir þá? Hvers vegna- lýsa þeir ekki opinberlega yflr skoðunum sínum á þessu máli? Kennarabiaðið mundi með ánægju flytja lesendum sínum álit presta á þessu veiferðai'máli þjóðar vorrar. Vér kunnum hina mestu þölck hverjum þeim manni, sem rjúfa vill þögnina um það, því að þögnin minnir öllu öðru fremur á — dauðann. « Cfm sunnudagas^óla. Eitt hið þýðingarmesta stórmál landa vorra i Ameríku er sunnudagaskólamálið. Það virðist nú kominn tími til þess, að vér Austur-íslendingar förum einnig að sinna þessu máli að dæmi náfrænda vorra fyrir handan haflð. Vér höfum enn sem komið er engan sunnudagaskóla að undanteknum barna- guðsþjónustum þeim, sem haidnar eru í Reykjavík. fað er alls eigi tilgangur minn að rita iangt mál um sunnudagaskólana, enda hefir áður verið urn þá ritað í Kirkju- blaðinu, Kennaranum og víðar. Einungis vildi ég með línum þessum minna menn á þýðingu þeirra. Því miður virðist ail- víða meðal vor brydda á trúardeyfð og hirðuleysi í andlegum efnum. Væri því full þörf á að glæða trúarlif ungmenna með því að kalla þau sarnan á helgum dögum til bænagjörðar og biblíuskýringa. Rað er fagurt og kristiiegt, þegar foreldrar leiða börn sín með sér í guðshús á helgum dögum, og vildi ég óska, að þeir legðu alla stund á það. En vart munu ræður presta vera við barna hæfi; þær eru vanalega of langar til þess að þau geti fest þær í minni. Ég vildi óska, að vér svæfum nú ekki lengur, heldur tækj- um mál þetta til raeðferðar með því að ræða það á safnaðar- fundum vorum og héraðsfundum. Éað ætti að vera hlutverk hinnar andlegu stéttar að sinna þessu máli, einkum prestanna. Sóknarriefndirnar ættu heldur eigi að láta það afskjftalaust,

x

Kennarablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.