Plógur - 23.05.1901, Síða 3
nokkurs konar fyrirmyndarbú, ættu
að vera helzt í hverri sýslu.
,Status búsinsh
Þegar eg las söguna af honum
„Eiríki á Völlum" í 2. tölubl.
„Plógs" þ. á., sem eg fékk með
seinasta póstiK datt mér í hug að
segja sögu af öðrum bónda, því
þó hans búskaparsaga sé styttri
en Eiríks, aðeins tæp 11 ár, þá
er hún að sínu leyti fullt eins merki-
leg °g þa^ því fremur, sem færri
verða til að segja þesskonar sög-
ur heldur en hinar, sem meira
svipa til sögunnar af Eiríki.
Þessi maður, sem hér skal sagt
frá—það er bezt að hann heiti Páll
á Horni,-—fór að búa vorið 1890.
Eignir þeirra hjóna námu þá nál.
1000 kr. ogsvo tók hann lán, um
ýOO kr. til að kaupa hús o. fl , og
þetta var þá allur bústofninn. Jörð-
in, sem hann tók, má teljast með-
aljörð að öllu samtöldu; lítið tún
og harðlent, og gaf af sér frá 60
— 80 hesta, útslægjur nokkuð
miklar að víðáttu, en graslitlar í
flestum árum og hagar fremur góð-
ir fyrir fé, en lakari fyrir hross og
nautgripi. Lítið hafði verið unn-
ið að jarðabótum á þessari jörð,
en meiri partur húsa á jörðinni var
í fretnur góðu standi og keypti
Páll þau af fráfaranda. Páll sá,
að jörðin hlaut að geta tekið mikl-
Um bótum, ef henni væri einhver
sómi sýndur, en af því eg vil ekki
þreyta lesendurna með langri sögu,
þá ætla eg að fara fljótt yfir og
geta þess, sem gert hefur verið:
1. Mikið af túninu var þýft og hef-
ur hann sléttað í því tæpar 2
dagsláttur (byrjaði á því árið
1895).
2. Majjurtagarðar voru nál. 2CO
□ faðmar; þá hefur hann auk-
ið um 160 □ f.
3. Skurðir til framræzlu, varnar
og áveitu, samtals 700 faðmar
að framlengd, tví- og þrístungn-
ir, 5—6 feta breiðir og IOO
faðmar að framlengd einstungn-
ir, 2—3 feta breiðir.
4. Garðar um tún og matjurta-
garðar byggðir að stofni sam-
tals 160 faðmar.
5. Auk þess hefur hann byggt
vandaða heyhlöðu, sem tekur
rúm 400 hesta og sem kostaði
um 500 kr.
Nú er hann að færa út túnið.
Gamli túngarðurinn með öllum
sínum hlykkjum var allur fallinn
fyrir löngu og er Páll langt kom-
inn að byggja hann og færir hann
út um leið; ætlazt hann til að sú
útfærsla nemi a. m. k. 3 dag-
sláttum.
Páll gerir upp reikning við
sjálfan sig um hver áramót og
taldist honum svo til við síðustu
árslok, að hannætti skuldlaust rúm-
ar 2000 kr. en auk þess skuldar
hann nokkra upphæð, sem er bein
afleiding af jarðabótunum, en þær
rentur telur hann ekki eptir, því
hann þykist fá þær margborgað-
ar, — og ekki er hann heldur að