Plógur - 18.08.1901, Side 4
52
kr., til ísl. verkafólks, 200 manns,
í 6—7 mánuði 60,000 kr. og til
annara opinberra gjalda 3000 kr.
Eða alls 100 þús. kr. Aður voru
komnar 3,967,058 kr. -)- 100,000
kr. = 4,067,058, sem eru allir af-
urðir af sjó.
Ef einhver kynni að ímynda sér,
að meira sé neytt í landinu af fisk-
mat en hér er gert ráð fyrir, þá
vil eg á annan hátt færa sennileg
rök fyrir, að það getur ekki ver-
ið. Frá 1898 eru til skýrslur um
fisktal, sem fiskast hefur alt árið
á þilskipum og opnum bátum. Eg
hef í þessu efni leitað álits hr.
bankastjóra, Tr. Gunnarssonar, um
verð á fiski og hve mikið megi
gera í skippundið af hverri fiska-
tegund. Hefur hann farið eptir
áliti útgerðarmannafélagsins f þeim
leiðbeiningum, sem hann hefurgóð-
fúslega látið mér í té.
Eptir þeim reikningi er allur
þorskur 1,302,330 kr. virði, smá-
fiskur 578,025 kr., ýsa 988,904 kr.,
langa 54,520 kr. og tros og aðr-
ar fisktegundir 162,282 kr.— Sam-
tals 3,086,061 kr.; þar við bætist
hákarlslýsi, þorskalýsi, síld, hrogn
og sundmagi, sem er samtals 269,-
179 kr. Samtals afurðir af sjó
3,355,240. I skýrslunum eru af-
urðir af hvalveiðum lagðar með
fiskveiða-afurðum og með því verða
þá allar afurðir af sjó 4,556,582
kr. Eptir þessum mælikvarða ætti
að vera neitt í landinu af fiskmeti
fyrir 386,582 kr. En mér þykir
það of lágt. Hér hlýtur skekkja
að stafa af ónákvæmu framtali á
því, sem fiskast á opnum bátum,
enda við slíku að búast, þar sem
nýlega er farið að safna slíkum
skýrslum. En það er líka víst, að
sauðfjárframtalið í landinu er óná-
kvæmt. Það sýnir hve mikil ull ,
er seld úr landinu bæði óunnin og
unnin. En einmitt þetta sýnir,
að áætlanirnar hér að framan um
afurði af landbúnaði mætti vera
hærri.
Þessi áætlun, sem eg hefi rök-
stutt sumpart með skýrslum, og
sumpart með gamalli reynslu og
eptirtekt búmanna, er að sjálfsögðu
ekki alveg rétt. En tökum t. d.
100 þús. kr. oftalið eða vantalið,
það gerir ekki mikið til, þegar um ^
miljónatölur er að ræðu. Hlutfallið
milli landbúnaðar-afurða og sjávar-
afurða haggast lítið fyrir því, sem sé
nálega 10 milj. kr. aflandi en rúmar
4 miljónir á sjáarafla. Rúml. 52/3
miljónir kr. er mismunurinn. En
gætum nú að einu, að útfluttir af-
urðir af hlunnindum. landbúnaðar-
jarða er 701,000 kr. Það til heyr-
ir fremur landbúnaði en fiskiveið-
um. Afurðir þessir standa og falla
með framförum landbúnaðarins.
Með hvaða sanngirni verður nú \
sagt, að fiskiveiðar landsmanna sé
meiri atvinnuvegur en landbúnað-
urinn; já, þrefalt meiri eins og hr.
Jón Óiafsson heldur fram. Hann
er ekki hálfdrættingur við Iandbún-
aðinn. (Framh. í næsta bl.).