Plógur - 01.10.1901, Qupperneq 2

Plógur - 01.10.1901, Qupperneq 2
58 vorum, sero sé annarsvegar auð- vald, en hinsvegar iítilsigld og und- irokuð alþýða og jafnvel tals verð- ur skríll innanum. Hvernig er lífið, t. d. í Hull á Erglandi ? Fylgir slíku fiskiborg- arlífi siðmenning? Eða er það hið æðsta mark og mið, sem vér eig- um að hafa, að eignast slíkar fram- farir. Nei, frelsi, eignajöfnuður og sönn siðmenning er það, sem hver þjóð á að hafa fyrir æðsta mark og mið að reyna að ná. Ekkert land undir sólunni er eins vel lagað fyrir sanna siðmenningu eins og land vort, þetta ættum vér að hafa hugfast, þvi' siðmenningar vísirinn er að gróa upp, og ef vér ekki kæfum hann niður, mun hann bera blessunarríka ávexti fyrir ó- bornar kynslóðir. En hvenær, sem sjávarútvegurinn ber landbúnaðinn ofurliða, þa drepur gullguðinn nið- ur fæti sínum hér, en siðmenning og íslenzktþjóðerni stekkur úrlandi, eptir hnípir vesöl þjóð í skarfasetr- inu, glápandi á gull og gersemar konunga sinna. Eins og nú stendur á, þarf ekki að stíga stórvægilegt spor til þess að þessar verði horfurnar, ef sjá- varútvegurinn fær að halda áfram að tæma vinnukraptinn frá land- búnaðinum. Við þessu er ekki hægt að gera, segja menn. Hér vantar menn til að stunda sjávar- útveg, það er satt, en hversvegna reyna ekki þilskipaeigendur að fá útlenda fiskimenn á skip sín, þeir gætu að líkindum fengist eins góð- ir og innlendir, eða mundu fljótt geta orðið eins góðir — en útlend- ir verkamenn verða aldrei sveita- bændum hentugir eptir því, sem nú hagar til, þó hægt væri að fá þá, sem eflaust yrði torveldara en að fá þá til fiskiveiða. En hver úrræði, sem líklegust kunna að þykja, þá ættu menn að hafa það hugfast að hér er hætta á ferðum, sjávarútvegurinn er ekki svo arðsamur og heillavænlegur fyrir oss, að það borgi sig að lata hann eyðileggja landbúnaðinn, þó hann á hinn bóginn sé oss ómiss- andi, og landbúnaðurinn er þegar á allt er litið, svo arðsamur, afifara- sæll og þýðingarmikill atvinnuveg- ur fyrir oss, að vér hljótum að neyta allra krapta, gera allt, sem oss frant- ast er unnt til þess að rétta hann við, því eins og bent er á hér að framan, er megun og menning þjóð- félags vors að mestu leyti,já, nær því að öllu leyti, undir honum komin. Samvinna. „Margar hendur vinna létt verk“, segir gamalt orðtæki, og það er satt, en því miður gefum vér þessu alltof lítinn gautn, því ef vér gerð- um það, mundum vér betur skilja hverja þýðingu félagsskapur og samtök hafa þegar um einhverjar framkvæmdir er að ræða. Það er kunnugra en frá þurfi að segja, hve skortur á vinnukrapti heptir allar framfarir í landbúnaði vorum, ekki sízt að því er jarðræktina snertir;

x

Plógur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.