Helgarpósturinn - 29.06.1979, Blaðsíða 15
—helgarposturinn-Föstudagur 29. juní 1979.
15
Laugr«ás:
NÝJASTI GRILLSTAÐUR BORGARINNAR
Ný matstofa hefur opnað i
Heykjaivik. Ber hún nafnið
Laugáús og er til húsa að Laugar-
ásvegi 1.
Eigendur þessa nýja staðar
eru, Ragnar Guðmundsson og
Gunnlaugur Hreiðarsson, báðir
reyndir i bransanum og hafa unn-
ið við starfsemi sem þessa i 15 ár.
Helgarpósturinn haföi ta^ af
Ragnari og spurði út i starfsem-
ina. Hann sagöi þetta vera litið
veitingahús ,eða grillstað eins og
það væri oft kallaö. Þeir hefðu. á
boðstólum alla algengustu réttina
og einnig væri i hádeginu „réttur
dagsins”. Laugaás legði áherslu
á fljóta og góða þjónustu, og s
sendi matinn heim ef þess væri 5.
óskað. f
„Þá er rétt að láta þess getið,”
hélt Ragnar áfram, ,,að við mun- |
um opna mjög snemma á morgn- f
ana þannig að árrisulir sund- 1
laugagestir og aðrir geti fengið
sér i gogginn áður en þeir fara til
vinnu. Fyrir þetta fólk verðum
við með sérstaka létta rétti, eins
og morgunbrauð, minútubrauð og
fleira.”
Þá sagði Ragnar að þeir
Laugaásmenn myndu sérhæfa sig
i svoköllum „gratineruðum” rétt-
um, en það eru ostaréttir sem eru
snögghitaðir i þar til gerðum
ofni. Væru réttirnir svo heitir
þegar þeir kæmu úr þessum ofn-
um að borð veitingahússins væru
flisalögð til að þola hitann.
„Þetta hefur gengið allt stór-
vel. Nóg aö gera og gestir okkar
hafa verið ánægðir. Og við bjóð-
um bara öllu góðu fólki að sækja
okkur heim og kynnast matnum
og þjónustunni af eigin raun,”
sagði eigandi Laugaáss, nýjasta
veitingahúss borgarinnar____GAS
Frá Lauga-ási, nýjasta grillstaðnum i bænum.
LlF OG FJÖR Á HÓTEL LOFTLEIÐUM
„Við þurfum ekki að kvarta.
Það er alltaf fullt á þessum tima
árs”, sagði Hilmar Jónsson,
veitingastjóri á Hótel
Loftleiðum, i samtali við
Helgarpóstinn. A Loftleiðum er
aðstaða fyrir að halda alltað tiu
fundi i einu, og þar eru tveir
veitingasalir — blómasalurinn
og kaffiterian.
Að :sögn Hilmars eru matar-
gestirnir i Blómasalnum um
70% útlendingar af hótelinu, en
afgangurinn er tslendingar. í
hádeginu er boöið uppá kalt
borð, og þar er að jafnaöi á boð-
stólum sýnishorn af islenskum
mat — skyri, slátri, harðfiski og
þessháttar — fyrir útlendingana
að smakka. Hilmar sagði að
matargestunum fjölgaði jafnt
Boröað i Blómasalnum a Hótel
Loftieiðum
og þétt, en á Loftleiöum vinna 8
matreiðslumenn og 10
matreiðslunemar.
A veturna er oft á tiðum boöið
uppá erlenda skemmtikrafta i
Blómasalnum, en sú starfsemi
liggur niðri að mestu á sumrin.
Þá voru i vetur haldin' geysi-
vinsæl Sælkerakvöld i Blóma-
salnum og þau verða væntan-
lega áfram næsta vetur.
Hilmar sagði að verði væri
nokkuð stillt i hóf, og hægt væri
að fá þriréttaða máltið fyrir um
3.400 krónur. Hinsvegar væri
hægt að fá dýrari máltiðir, og
allt uppi mjög dýrar, ef menn
vildu.
Kaffiteriuna þekkja tslendingar
mun betur, og hún heldur alltaf
vinsældum sinum. Kaffiterian
er opin frá klukkan fimm á
morgnana til átta á kvöldin, til
hagræðingar fyrir útlendinga og
aðra, sem þurfa að fara af
landinu, eða útá land, snemma
morguns.
— GA
Vaktþjónustan i fuilum gangi.
vByrgja ekki brunn-
in fyrr en börnin eru
dottin ofanF’
Nýstárlegt fyrirtæki, Vakt-
þjónustan s.f., hóf nýlega starf-
semi sina i iönaöarhverfinu við -
Smiðjuveg og Skemmuveg i
Kópavogi. Að sögn framkvæmda-
stjórans. Jóhanns Ó. Guðmunds-
sonar er starfssviðið öryggis-
varsla á svæðinu með tílliti til
eldhættu, vatnsskemmda. inn-
brota og þvf sem verða vill.
Aðdragandinn að þessu var sá
að Jöhann vann sem vaktmaöur
hjá fyrirtæki og blöskraði hvernig
staðið var að öryggismálum.
Hann kom þvi að máli við nokkra
aðila sem hafa fyrirtæki við
Smiðjuveginn, og að lokum náðist
samkomulag að hann og sam-
starfsmenn hans tækju að ser
þessa vaktþjónustu i öllu
hverfinu.
Vaktmaðurinn, eða mennirnir,
þvi þeir geta verið fleiri en einn
á hverri vakt, fara á milli fyrir-
tækjanna og skoða þau, og halda
á meðan nákvæma skýrslu yfir
allar ferðir sinar, og það sem
fyrir augu ber. Að sögn Jóhanns
er þessi rúntur byggður upp á
sérstöku kerfi, þannig að útilokað
er fyrir veröandi innbrotsþjófa að
læra á hann.
Að sögn Jóhanns byggist starf-
semin á góðri samvinnu við
lögregluyfirvöld og trygginga-
félögin. Fyrirtækið er sniöið
eftir erlendri fyrirmynd, en
uppfært við islenskar aðstæður.
„Helsta vandamálið sem verður
að yfirstiga”, sagði Jóhann, „er
að Islendingar viróast alls ekki
vilja byrgja brunninnn fyrr en aö
minnsta kosti tvö eða þrjú börn
eru dottin ofani”.
Hjá vaktþjónustunni vinna
fimm manns, en fyrirtækið sinnir
öryggisvörslunni frá klukkan sjö
á kvöldin, til sjö á morgnana, auk
allra helga og fridaga. Að sögn
Jóhanns er töluverð hagræðing
i þessari þjónustu fyrir fyrirtækin
sem hana nota, bæði vegna
aukins öryggis, og einnig hag-
stæðari iðgjalda hjá trygginga-
félögum.
Jóhann sagði að i undirbúningi
væri að taka fleiri iönaðarhverfi
inn i myndina, og einnig byðu þeir
uppá þjónustu fyrir einstök stór-
fyrirtæki.
—GA
Hljómsveit Stefáns P. ásamt leikurunum Júliusi Brjánssyni og
Randveri Þorlákssyni, og Baldri Brjánssyni töframanni munu leggja
land undir fót ibyrjun júli og skemmta landsmönnum.
Að sögn Stefáns P. hljómsveitarstjóra eru þeir með skemmtipró-
gramm fyrir alla aldurshópa, frá vöggubörnum til eitt hundraö ára.
Tveggja tima skemmtun verður, þar sem Randver og Július flytja
frumsamin gamanmál. Baldur verður meö ný töfrabrögö, t.d. mun
hann láta töfrastaf svifa I lausu lofti i kringum sig. Þá mun hann einnig
framkvæma þann fræga uppskurð, sem hann sýndi i sjónvarpinu. Inn i
skemmtunina er siðan fléttað tóniistaratriðum. A eftir er siöan haldinn
dansleikur.
Meö i förinni verður stærsta „ljósashow” á Islandi, sem Hallvarður
Sigurðsson, rótari hljómsveitarinnar smiðaði sjálfur.
Fyrsta skemmtunin verður haldin helgina 6.-7. júli. Meiningin er að
þaö verði hlööuball i ekta hlöðu rétt fyrir utan Selfoss.
— GB
Stefán P. og félagar æfa sig fyrir iandsreisuna.
Hljómsveit Stefáns P. og fleiri um landið:
Ekta hlöðuball?
'Matur framreiddur frá kl. 19.00.
Borðapantanir frá kl. 16.00
SIMI 86220
Askiljum okkur rétt til að ráðstafa fráteknum boröum
eftir kl. 20.30
Hljómsveitm Glæsir og diskótek
í kvöld, laugardags- og sunnudagskvöld
Spariklæðnaður
Vtó kynnum
fæói og klæói
ur íslenskum landbúnaðarafurðum
íslenskir urvalsréttir, íslenskur tískufatnaður, íslenskur list-
iðnaður og islenskur DANSLEIKUR
Fjölmargir heitir og kaldir
lambakjötsrettir -
kynningarverð
Framreiddir kl. 20.00-21.00
Aðrir kynningaraðilar:
Stéttarsamband bænda
Jens Guðjönsson gullsmiður
Glit
Rammagerðin
Osta- og smjörsalan
Slaturfélag Suðurlands
KARON samtökin svna
tiskufatnað fra Alafossi og
Iðnaðardeild Sambandsins
Hljomsveit
Birgis Gunniaugssonar
Dansað til kl. 01
Borðapantanir í stma 20221 e. kl. 16.00.
Áskiljum okkur rétt til að ráðstafa fráteknum borðum e. kl. 20.30
Súlnasalur
Indlrei
HP-mynd: Friöþjófur