Helgarpósturinn - 05.10.1979, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 05.10.1979, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 5. október 1979 50 Coflipriméa Trilafon *■ * Oumohd (WtrazepatP] Vn»V' m***' „Ég fullyröi aö 90% þeirra manna sem sitja inni i Litla-Hrauni eru alkar og þá um leiö venjulega alætur i allt þaö sem kemur þeim f vímu — sama hvort vímugjafinn er brennivín eöa lyf ýmiss konar. Þess vegna veit ég, aö flestir fanganna á Litla-Hrauni sækja þaö fast aö fá einhver lyf meöan þeir eru þarna inni. Og undan þessum stööuga þrýstingi hljóta forráöamenn og læknar aö kikna meira eöa minna”. Þssi orö mælir Vilhjálmur Svan, nú starfsmaöur hjá SÁA (Samtökum áhugafólks um á- fengisvarnir). Hér fyrr á árum átti Vilhjálmur viö ýmis vanda- mál aö strlöa. Hann var áfengis- sjúklingur og komst upp á kant viö lögin. Sat hann meöal annars inni á Litla-Hrauni i 15 mán. vegna lagabrota. Um nokkurra ára skeiöhefur sú saga gengiö fjöllunum hærra, aö lyfjanotkun á Litla-Hrauni væri almennari og meiri en góöu hófi gengdi. Helgarpósturinn hefur eftir heimildum sem hann telur á- reiöanlegar, aö um 60% fauganna séu áróandi lyfjum ogalltaö 80% þeirra noti svefnlyf aö staöaldri. Helgarpósturinn mun I eftirfar- andi samantekt kanna sannleiks- gildi þessara frásagna og lita á lyfjagjafir ogfangavist almennt I þessu sambandi. Fangarnir sérfræðingar í lyfjum Við skulum I upphafi lita örlitið á frásagnir heimildarmanns Helgarpóstsins um samskipti fanga og fangelsislæknis. „Þessi samskipti eru dálitið á annan hátt, en tíbkast hjá venju- legum lækni og venjulegum sjúkl- ingum. Fangelsislæknirinn kem- ur einu sinni i viku og er þá 3 — 4 tima í vitjuninni. á ávanabindandi efni og sækja fast i ýmis lyf. Allt upp i 80% fanganna mæta I vitjanir hjá mér og hafa yfir ýmsu að kvarta og telja sig þar af leiðandi þurfa lyfjagjafir. Ég þekki auövitað mina menn og fer mjög varlega i aðskammta þessum mönnum lyf og það er af og frá að þeir geti einfaldlega komið til min og pant- að einhvern ákveðinn lyfja- skammt. Égreyni að halda lyfja- gjöfum i lágmarki.” Og Brynleifur fangelsislæknir héltáfram: „Langbestikosturinn »••.i» « * k Trilafor ðs* 500 Tabtets SOTaW./Cott'pT' ':.m _____ I* RDCHb 2mg ***** : :*m>*»* rrti * -'Í pi T"1 ""t’ "■ ;.... .i .... .. : 1 f : : f'" II 1 ■ í!: b’* „i. ■? r.' Helgarpósturinn kannar lyfjanotkun í íslenskum fangelsum: ALLT AÐ 60H FANGA Á LITLA-HR é: LYFJIIM? Fanginn gepgur inn til læknis- ins og tilkynnir honum hvaða lyf hann vilji fá i þetta skiptið, i stað þess að skýra lækninum frá þvi hvað hrjái hann og hvaöa með- höndlun læknirinn mæli þá meö, eins og þó venjulega gerist þegar læknir og sjúklingur ræðast viö. Fangarnir eru jafnvel meiri sér- fræöingar i lyfjum en læknirinn, a.m.k. þegar um er að ræða áhrif lyf janna. Siðan er það samkomulagsat- riði á milli læknisins og fangans. væri sá að engin lyf þyrftí að nota. Hins vegar er ástandið þannig á Litla-Hrauni, að sumir fanganna eru bókstaflega veikir og ættu heima á s júkrahúsi, aörir eiga við svefnleysiað striða og þriðji hóp- urinn þjáistkannski af þunglyndi, angist og kviða. Ég get ekki af- greitt þessamenn með þvl einu að segja, „hertu þig bara upp góur- inn, þetta lagast hjá þér með tið og tima”. Ég reyni að lina þjáningarmanna —égrefsa þeim ekki.” 'HLUTI FANGA A HEIMA A STOFNUN SEM EKKI ER TIL hvaða lyf fanginn fær I það skipt- ið. Ef vel liggur á lækninum, á hann þaö til aö vera örlátur við fangana og akrifar upp á flest þaö sem þeir fara fram á.” Svo mörg voru þau orð heimildarmanns Helgarpóstsins, sem þekkir starfsemi Litla-Hrauns og allan gang mála þar mjög vel. Þarna eru bornar fram alialvar lega sakir á fangelsislækninn á Litla-Hrauni. Sá heitir Brynleifur H. Steingrimsson og er einnig héraöslæknir á Selfossi. Helgar- pósturinn hafði samband við Brynleif vegna þessa máls. „Lyfjagjafir í marki” Hann sagði: „Margir þeirra fanga sem þarna eru hafa vanist lág- Brynleifur bætti þvl við, að lyfjagjaf ir væru siður en svo eitthvert vandamál á Litla-Hrauni, þó óneitanlega yrði hann fyrir nokkrum þrýstingi frá föngum, sem sæktu I lyf. Og hann bætti við: „Það er með þetta eins og margt annað, að hægara er um að tala, en I aö komast.” Helgi Gunnarsson fangelsis- stjóriá Litla-Hrauni tók undir orð Brynleifs og sagöi ekkert óhóf vera á lyfjagjöfum á Hrauninu. Það væri lítill hlutifanganna sem væru útveguö lyf. „Lyf eru ekki meira notuð hér á Litla-Hrauni, heldur en gengur og gerist úti I þjóðfélaginu. Þetta er aðeins þverskurður af þvi sem gildir I þessum efnum i samfélaginu allt I kringum okkur,” sagði Helgi Gunnarsson. Dópblandaður hráki Ljóst er að þeir fangar sem fá lyf, verða að taka þau undir eftir- liti fangavarðá. Þannig er komið I veg fyrir, að fangar safni sér lyfjaforða, taki siöan stóran skammt og fari á „dúndrandi rús” eins og það er stundum nefnt. Aðurgreindur heimildar- maður Helgarpóstsins lýsir þesssum lyfjatímum þannig: „Fangarnir koma einn I einu inn á varðstofuna til að fá lyfin sin. Til að koma i veg fyrir að fangar geti safnað að sér lyfja- birgðum, er varðstjórinn búinn að mylja töflurnar fyrirfram I duft. Fanginn verður svo að taka lyfið inn fyrir framan fangaverði og renna þvf niður með vatnssopa. Fangarnir reynaoftaösvindla i lyfjatöku. Þeir t.d. reyna að láta duftið detta niöur í brjóstvasa sinn og sumir láta vera að kyngja sopanum slnum, en koma honum siðan á flösku strax og þeir koma út úr varðstofunni. Þannig geta þeir stundum safnað álitlegum birgðum að dóþblönduðum hráka til seinni huggulegheita.” Jón Bjarman fangelsisprestur hefur talsverð samskipti við fang ana á Hrauninu. Hann sagði við Helgarpóstinn: „Lyfjanotkun sýnist mér vera allmikil á Litla-Hrauni. Hún er að visu mis- jöfn eftir mönnum. Sumir taka þar engin lyf, en aðrir fá þau skömmtuð samkvæmt fyrirmæl- um hælislæknis. Við sams konar vandamál er að eiga f hegningar- húsinu við Skólavörðustíg og Siöumúlafangelsinu. Þar eru menn einnig illa farnir og þurfa á lyfjum aö halda.” Jón bættí þvi við, að eftir þvi sem hannbestvissiværulyf alger bannvara á Kviabryggju, sem er öllu opnara fangelsi en Litla-Hraun, og á Akureyri. Ekki einu sinni penicillin Helgarpósturinn hafði sam- band við Gfsla Ölafsson yfirlög- regluþjón á Akureyri vegna þessa. Yfirlögregluþjónninn vis- aði beint á fangelsislækninn á Akureyri Ölaf Hergil Oddsson. Gisli sagði þó, að fangar sem af- plánuðu fangelsisdóma f fangels- vimu. Þeirtil að mynda reyna að smygla inn Jötungripi i klefa sina til að þefa af. Jötungrininu stela þeir úr tómstundaherbergi hælis- ins, þar sem fangar dunda sér við módelsmiði og fleira. Þá reyni þeir einnig að misnota svefnlyf ja- skammtinn þannig, að þeir drekka fullan brúsa af kaffi strax eftir að þeir hafa fengið skammt- ' inn sinn. Verði þá áhrif svefnlyfj- anna annarleg, eða einskonar vima. Brynleifur H. Steingrímsson fangelsislæknir sagði, að hann hefði vitað til þess, að á tímabili hefðu fangar reynt aö misnota svefnlyfin með þessum hætti þ.e. sett þausamanvið talsvert magn af kaffi og þannig fengið örvandi áhrif. „Það er aldrei hægt að hvitþvo gólfið i þessu sambandi,” sagði Brynleifur. Kók og aðrir gosdrykkir, utan appelsin, eru bannvara á Litla-Hrauni. Helgi Gunnarsson fangelsisstjóri sagði ástæðuna ef til vill fyrst og fremst ihaldssemi hans sjálfs. „Hins vegar geta þessir drykkir verið góðir til að reka á eftir stemmningunni með lyfjum ýmis konar. Ég er þó aö endurskoða þetta gosdrykkja- bann í huga mér og hugsa að þvi veröi afiett.” RAÐUNEYTIKASTA VANDA- MÁLINU Á MILLI SÍN inu á Akureyri — en þar væru menn mest sex mánuði — sæktu yfirleitt ekki fast á um lyfjagjaf- ir. Ólafur Hergill Oddsson fangelsislæknir sagði: „Það eru nú yfirleitt ekki margir fangar hér í fangelsinu, sem afplána gæsluvist og ég man ekki eftir þvi, þann tima sem ég hef starfað við þetta, að til einnar eða neinn- ar lyfjagjafarhafi þurft aðkoma. Ég hef ekki einu sinni þurft að gefa penicillin vegna kvefs, hvaö þá að ég hafi fyrirskipað lyfja- meðferð vegna svefnleysis eða þunglyndis. Þetta er ekkert vandamál hér og fangar hafa ekki sóst eftir neinni tegund lyfja.” Heimildarmaður HP segir frá þvf að fangarnir á Litla-Hrauni geri hvað sem er til að komast i Vilhjálmur Svan hafði þetta að segja um kókbannið: „Ef það er kókbann þarna innan veggja, þá er á hreinu að lyf eru i húsinu. Þeir banna ekki kókdrykkju vegna þess að þeim sé umhugað um tennur fanganna. Nei, málið er það, að kók er mjög gott með róandi töflum. Þess vegna hljóta aðveralyfá ferðinni innanhúss — liklegast utanaðkomin — og fangaverðir hafi grun um það.” Hvaða lyf fá fangarnir? En hvaða lyf eru það, sem fangelsislæknir skammtar föng- unum. Brynleifur fangelsislæknir segir: „Ég skammta fóngum engin efni, sem geta verið ávana- myndandi. Valium nota ég til dæmis alls ekki. Reynsla min i þessu starfi hefur kennt mér að

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.