Helgarpósturinn - 05.10.1979, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 05.10.1979, Blaðsíða 6
Fostudagur 5. október 1979 helgsrpásturihru Spilverkiö á sér enga undan- komuleiö. Þaö er skotist I kaffi á heimili blaöamannsins og þau Bjóla, Diddú og Valgeir segja frá þvi sem væntanleg plata þeirra hefur aö geyma. V: „Þess getur hugsanlegur kaupandi fyrsta bindisins hlakkaö til, hvenær Einbjörn kemst aö niöurstööu. Ætli næsta bindi kosti ekki svona 1S-20 þús- und.” Framhaldssaga i ? bindum — Nú, er þetta þá framhalds- saga? V: „Já, þetta er framhalds- saga. Ekkiþar fyrir aö þetta hafi ekki allt veriö einskonar fram- haldssaga, þaö sem viö höfum veriö aö gera.” — Hafiö þiö þegar samiö áframhaldiö? B: „Nei, en viö gerum okkur samt ákveönar hugmyndir um þaö. Viö komum til meö aö fylgja Einbirni eftir á þroskaferlinum. Ætli hann veröi ekki i Menntó á næstu plötu. Viö getum hinsvegar ekki gefiö upp hve bindin veröa mörg, á þessu stigi, en þetta form býöur uppá marga möguleika, og viö gætum þess vegna haídiö áfram endalaust.” V: „Annarserekkert vist hvort nokkuömeiraveröi gert af hljóm- plötum. Eins og málum erháttaö idag og ef ekkert veröur aö gert, þá heyrir islensk hljómplötuút- gáfa sögunni til.” Þjóðfélagsádeilar Samræöur truflaöar. Mættir á staöinn kvikmyndamaöur og hans aöstoöarmaöur („haldar- inn”). Auglýsingakvikmynd. Spilverkiö hleypur útá tún og þaö er fariö aö filma. Tiu minútur, kortér. Aftur inn og haldiö áfram aö spjalla yfir kaffinu. B: „Hvaö vorum viö aö tala um? Nújá plötuna. Já, viö tökum þar grandalaust fólk, ómengaöar persónur, og skellum þvi inn i móralinn. Þaö lendir i þvi aö byggja og allt þaö. Og þaö filar sig i þvi, aö stráknum undan- skildum sem fer aö hugsa. Þetta er þjóöfélagsádeila.” V: „Já, viö erum aö deila á þjóöfélag sem er fjandsamlegt fólki, þaö leikur 'j enginn vafi á þvi. Viö gerum okkur sosum grein fyrir aö þetta er óvinsælt viö- fangsefni, — eins og fyrri daginn hjá okkur.” D: „Markmiöiö eraö segja eitt- hvaö sannleiksbrot, og þaö er vist óvinsælt.” V: „A timum sem þessum, veröur raunveruleikaflóttinn ofaná i litum. Þaö eru allir i afþreyingunni. Viö ættum þvi kannski aö vera aö leika afþrey ingarefni.j En þaö hefur ailtaf veriö, og er enn, stefna Spilverks- ins aö velta fyrir sér þjóöfélags- legum vandamálum, og reyna aö fá fólk til aö sjá þau kannski frá öörum hliöum en þaö gerir venju- lega.” B: „En túlkunin er náttúrlega alltaf persónulegur hlutur.” — Er þaö Einbjörn sem er sögumaöurinn á plötunni: D: „Þetta er nokkurs konar óperutilraun þar sem viö leikum öll hlutverkin. Ég og Valli erum hjónin, Valdi skafari og frú, en Bjólan Einbjörn sonur okkar. En þar sem persónur syngja ekki sjálfar, skiptumst viö á aö vera sögumenn.” tJti i eyðimörkinni — Hver ersvostaöa unglingsins aö ykkar áliti? V: „Hanner úti I eyöimörkinni meö úreltan primus. Þaö er ekki fýsilegt sem biöur unglinga i' dag aö taka þátt i sérfræöingasamfé- lagi. Þaö tekur þá svo langan tima aö fá aö gerast fullgildir þátttakendur, og á meöan eru þeir skildir eftir á götunni.” B: „Rætur vandamálsins eru þjóöfélagslegs eölis, og ekki bara foreldrum aö kenna. D: „Þetta er hvorki unglinga- vandamál né foreldravandamál. Þetta er þjóðfélagsvandamál.” — Hefur Spilverk þjóöanna ein- hverja lausn á málunum? V: „Ja,Megas er nú meö lausn sem viö getum alveg tekiö undir: „Smælaöuframani heiminn”. En þaö hafa eldri menn en viö bent á leiðir til úrbóta. Þaö hlýtur aö vera hægt aö lifa betra lifi hérna.” B: „Vandinn felst f upp- byggingu samfélagsins. Hér er fólki þvingaö úti lifsgæöakapp- hlaupiö. Og ef þaö hættir aö hlaupa meö, þá er þaö gert upp. Og þetta er alrangt. En hér erum viö náttúrlega komin úti gall- haröa pólitik — spurninguna um kapitalisma eöa sósialisma. Ann- ars finnstmér þjóöfélaginú okkar alls ekki stýrt. Þaö er stjórnlaust.” D: „Þaö rúllar bara einhvern veginn áfram.” V: „Ef viö höldum áfram samlikingunni meö hlaupiö, þá liggur þaö i augum uppi, aö þegar fólk hleypur þá þarf þaö einhvern tima aö hvila sig. Hér er fólki ekki gefinn sjens á þvi.” B: „Viö erum I lifstíöarmara- þonhlaupi. Ef einhver heltist úr lestinni er hann dauöans matur.” V: „Þaö er mjög átakanlegt hvernig við lifum lifinu hér á íslandi. Húsbyggingarnar eru að drepa allt. Fólk fer aö streöa i þeim strax uppúr fermingu.” B: „Þetta er einsog fólk meö gláku, þaö sér ekki til hliöar viö sig, en hleypur beint af augum. Lausnin væri eftilvill sú aö fólki yröi gert kleif t aö setjast niöur og lita í kringum sig.” Satt Klukkan er oröin margt. Val- geir og Diddú hafa ekki meiri tima aflögu fyrir blaðaviötal. En Bjólan og blaöamaöurinn sitja enn um stund og ræða um SATT, samtök alþýöutónskálda og tón- listarmanna, en Bjólan er virkur þátttakandi i baráttu þess. B: „Já, þetta eru söguleg sám- tök. Þetta er i fyrsta skipti sem ég sé poppara af öllum stéttum, meö ólikar skoðanir, fallast i faöma og veröa sammála um aö einbeita sér aö þvi aö gera eitthvaö i mál- unum. Þaö var bæöi timi til kom- inn, og svo eru aöstæöurnar slikar, aö þetta er oröin spurning um lif eöa dauöa islenskrar alþýöutónlistar. Mér þykir svold- iö hafa gleymst þessi móralska skylda fólks viö Islenska tónlist í þeim umræðum sem spunnist hafa útfrá stofnun þessara bar- áttusamtaka. En þetta er al- menningsspursmál og varðar þjóöina I heild og sjálfstæöi islenskrar menningar. Eöa vilj- um viö ekki vera Islendingar? Til þess aö bæta úr málunum veröum viö aö fá skilning og aöstoö frá hinum almenna borgara. Barátta okkar snýr ekki eingöngu aö kerf- inu, heldurlika —og ég held núaö þaösémikilvægast—aö gerafólk meðvitaö um hve. mikilvægur þáttur þjóölifsins er aö lognast út- af. Viö vitum td. hvernig fór með islensku þjóðiögin og dansana sem kirkjan bannfæröi á sinum tima. Nú grátum viö aö þetta skuli vera týnt, þvi þaö er hluti af sögu Islands. Og nú eru svipaöar blikurá lofti. Rikisvaldiö er að endurtaka sama leikinn og kirkjan foröum. En viö setjum poppiö ekki skör lægra en aörar listir i landinu og erum þess fuilvissir að sagan muni sanna þaö.” Skoða unglingavanda- málið V: Þetta er svona saga um kon- taktleysi baslfjölskyldu, sögö út frá syninum Einbirni.” D:”Já,þaöertekiö miö af honum og hans vandamálum.Orsakir þeirra er náttúrulega að finna i þvi sem er að gerast I kringum okkur.” Sólrikur haustdagur. Tveirþriöju hlutar Spilverks þjóðanna - Valgeir og Diddú - eru að yfirgefa fósturmoldina um tima, halda utan til náms, og það er f mörg horn að Ifta. Fara í matarboð og segja bless við skyldmcnnin og kunningjana. Einnig þarf að fylgja nýjasta Spilverkinu, Bráðabirgða- búgi, úr hlaði: Ijúka við sjónvarpsþátt og sitthvaö fleira. Timinn er naumur. Og svo, mitt i annrikinu, óforvarandis, birtist tiðindamaöur Helgarpóstsins - „eins og þjófur úr heiðskiru lofti” myndi kunnur umboösmaöur i poppinu segja. Friðþjófurinn veifar penna sinum og pipu, og hann heimtar viðtal: „Ekki má gleyma lesendunum.” V: „Viö erum aöskoöa unglinga- vandamáliö. Strákurinn er út úr kontakt viö pabba sinn og mömmu, - og er vist ekki einn um þaö. Þá gerir hann þaö sem er hendi næst og fer út af heimilinu til aö ná sambandi viö einhvern: fer aö stunda Jóker og þar fram eftir götunum. Þetta er Reykja- vikurplata. OgiReykjavik er litiö fyrir strákinn aö gera. Foreldrar hans eru aö koma sér upp fast- eignog geraekkert annaö á meö- an. Siöan fer strákurinn aö spyr ja sjálfan sig um tilganginn meö þessu öllu saman, og hvort hann vilji nokkuö taka þátt I þessu. Sagan er full af sálfræðilegum undirtónum, - það er djúp kyn- ferðisleg undiralda.” D: ”Nei, heyröu góöi... Kemst Einbjörn aö einhverri niöurstööu? D:f’ Ekki á þessari plötu.” B:,En kannski á næstu eöa þarnæstu.”

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.