Helgarpósturinn - 05.10.1979, Qupperneq 24
__helgárpósturinrL. Föstudag
ur 5. október 1979
0 Rikjandi hefur verið mikill
spenningur um það hverjir séu
umsækjendurnir átta um
leikhússtjórastöðuna i Iðnó.
Umsóknirnar eru raunar átta en
umsækjendur tiu þvi að i tveimur
tilfellum sækja tveir menn um
sameiginlega. Umsækjendurnir
eru: Sigmundur örn Arngrims-
son og Jón Viðar Jónsson, sem
sækja sameiginlega, Arni Ibsen
Þorgeirsson, Hallmar Sigurðs-
son, Stefán Baldursson og Þor-
steinn Gunnarsson, sem sækja
sameiginlega, Pétur Einarsson,-
Oddur Björnsson, Eyvindur
Eriendsson og Einar Bragi.
Meðal leikhússfólks eru umsóknir
þeirra Hallmars Sigurðssonar,
sem er nýbakaður leiklistarfræð-
ingur frá Sviþjóð, Stefáns
Baldurssonar og Þorsteins
Gunnarsonar,Péturs Einarssonar
og Eyvinds Erlendssonar taldar
koma helst til álita...
# Hinn islenski Þursaflokkur
hefur sem kunnugt er gert við-
reist um Evrópu að undanförnu
og má segja að honum hafi tekist
það sem margar islenskar popp-
hljómsveitir hefur dreymt um,
þ.e. að gera það gott í Utlandinu.
Vist er að ekki á islensk rokktón-
list betri og þjóðlegri fulltrúa. NU
hefur Helgarpósturinn fregnað,
þótt ekki sé það staðfest, að
fækkað hafi hjá Þursunum i
meginlandsreisunni. Sagt er að
Lárus Grimsson, hljómborðs* og
flautuleikari (sem tók nýlega sæti
Karls Sighvatssonar) hafi sagt
sig Ur hljómsveitinni i Hollandi og
. hyggi á skólan ám ytra...
®Það er ljóst að Jón Baldvin
Hannibalsson hefur ekki flutst úr
erli skólameistaraembættisins á
Isafirði á friðarstól hjá Alþýðú-
blaðinu. Hann þykir reka svo
grimma stjórnarandstöðu sem
ritstjóri blaðsins að þegar eru
fram komnar kvartanir innan
flokksins út af stefnu þess. Þaö
kváðu enn vera einhver pláss
eftir á togaraflotanum...
#Meiri háttar „umbótamál” á
dagskrá rikisfjölmiðlanna var
nýveriö samþykkt á útvarpsráðs-
fundi. Einum ráösmanna, Jóni
Múla Arnasyni, þótti sem þessir
fjölmiðlar stæðu sig ekki alveg
nógu vel i gagnkvæmri kynningu
á dagskrám þeirra. Geröi hann
þaö aö tillögu sinni að dagskrá
sjónvarpsins yröi lesin fjórum
sinnum á dag I hljóðvarpi i stað
tvisvar og væri þá engu sleppt úr
prentaðri dagskrá. Að sama
skapi yrði kvölddagskrá hljóð-
varpsins lesin óstytt i sjónvarpi
að loknum fréttum, en hingaö til
hefur verið stiklað á helstu
aöriðum hennar. Þetta þjóðþrifa-
mái var samþykkt einróma i
ráöinu og hlýtur þetta að gera
dagskrá beggja rikisfjölmiðlanna
miklu fjörlegriog skemmtilegri...
#Tvennir bræöur hafa mjög sett
svip sinn á svokallaöa alþýöutón-
list á Akureyri. Eru þaö þeir
Pálmi (ex-Póló) og Steingrimur
Stefánssynirog hinir landskunnu
Finnur og’ Ingimar Eydal. Hinir
siðamefndu bræður hafa þegar
tryggt sér sess á danshUsum
bæjarins næsta vetur. Finnur
mun aftur taka við hljómsveitar-
stjórastarfi i Sjallanum og
Ingimar mun leika ásamt
félögum fyrir dansi á KEA á
laugardagskvöldum að minnsta
kosti, auk þess að sjá um
„dinnermúsik”, þar á staðnum.
Hvað hina bræðurna varðar, þá
mun Pálmi vera allt að þvi fast-
ráðinn sem hljómsveitarstjóri i
H—100 og Steingrimur mun
einnig halda áfram með hljóm-
sveit sina eftir þvi sem tækifæri
gefast til...
punflal
RUNTAL OFNAR ERU
HEIMIUSPRÝÐI.
VÖNDUÐ FRAM-
LEIÐSLA ER
YÐAR HAGUR
VARMAAFKÖST
SAMKVÆMT íst. 69
Runtal ofnar hf.
Síðumúla 27 Reykjavík. Sími 84244
Ofnasmiðja Norðurlands
Kaldbaksgötu 5, sími 21860/ pósthólf
155 Akureyri
Ofnasmiðja Suðurnesja hf.
Vatnsnesvegi 12 Kef lavík. Sími 92-2822
Varisi eftirl í kingar
RUNTAL ER ORGINAL
Bag For
® Af þvi að við vorum að hrella
Valsara dálitið um daginn
megum viö til meö að halda þvi
áfram. Það hefur nefnilega flogið
fyrir að Nemes, hinn ungverski
þjálfari þeirra Valsmanna, sé á
leiðinni á knattspyrnuskóla i
Þýskalandi. Það er svo sem ekki i
frásögu færandi, að maðurinn
reyni að fylgjast með þvi sem er
að gerast i þjálfunarmálum, en
hitt er athyglisverðara hver
verður kennariNemes þarna úti.
Þaö er nefnilega enginn annar en
Jörgen Hildebrandt, þjálfari
Akurnesinga...
# Þaö gengur á ýmsu i embættis-
veitingum Steingrims dóms-
málaráðherra Hermannssonar.
Hann mun þannig einnig hafa
oröið fyrir smááfalli, þegar hann
veitti RUnari Guöjónssyni, sýslu-
manni Strandasýslu, sýslu-
mannsembættið i Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu á dögunum,
þótt sú veiting hafi ekki orðið
eins umdeild út á við og önnur
embættisveiting sem Steingrimur
stóö aö fyrr i sumar. Heimíldir
segja nefnilega, að Steingrimur
hafi veriö búinn að lofa RUnari
embættinu áöur en fyrir lá hverjir
sæktuum embættiö og hafi þar að
baki legiö m.a. persónulegar
ástæður RUnars. Hins vegar hafi
Steingrimur þá ekki reiknað með
að Elias Eliasson, bæjarfógeti á
Siglufirði, sem sótt hefur titt um
embætti nú undanfarið, mundi
verða meöal umsækjenda, en
Elias hefur mun meiri embættis-
reynslu en RUnar, hefur setið
Siglufjörð i um 15 ár og þykir
vammlaus embættismaður.
Steingrimur hafi þess vegna
komist i heilmikinn bobba en
ákveðið eftir töluvert hugarstrið
að standa við loforð sitt gagnvart
RUnari...
#Það hafa verið tiðar fréttir af
því að undanförnu að Karvel
Pálmason stefni i forsetastólinn
hjá Alþýðusambandi Islands.
Vestfirðingar eru meinlega
fyndnir.einsogallirvita og nU ku
eftirfarandi saga ganga þar
vestra. Maður kom aö máli við
eiginkonu Karvels og spurði hana
hvort þetta væri rétt að hann
ætlaði sér að veröa forseti
Alþýðusambandsins. „Ja,”
svaraði konan, „það er ekki það
að hann langi ekki. En þaö þarf
vist að kjósa hann...”
#NU munu menn ekki lengur tala
um Arnarflug. BæjarslUðrið er
búiðaðskirafélagiöupp og kallar
það nú Arnaldsflug..
#Leikfélag Reykjavikur sýndi á
sinum tima Jesú Krist Súper-
stjörnuvið ágætar undirtektir. Þá
keypti leikhúsið hljómflutnings-
tæki til að sjá til þess að hljóm-
burður á rokktónlistinni I Austur-
bæjarbiói yrði sem bestur. Munu
tækin þá hafa kostað um 8 mill-
jónir króna. Siöan hefur hins
vegar verið fátt um tækiræri fýrir
leikhUsiðaö nota þessi tæki en nU
hefur kvisast út að ráða eigi þar
bót á. Leikfélagið mun hafa snúiö
sér til þeirra Gunnars Þórðar -
sonar og Ólafs Hauks
Slmonarsonarog farið þessá leit
að þeir semji söngleik fyrir leik-
húsið. Munu þeir félagar vera að
bræða þetta með sér...
#Vietnamarnir hafa yfirleitt
fengið ágætar móttökur hér á
landi og skipulag Rauða krossins
hefur allt verið með miklum
ágætum. Engu að siður er ljóst að
ýmsir eru ákaflega tortryggnir út
afkomu þeirra. Til dæmis geröist
það að þegar þeir fluttu i nýju
vistarverurnar við Kaplaskjóls-
veg, að þá voru pjönkur þeirra
fluttar i pappakössum og þegar
þeir höfðu verið tæmdir, voru þeir
settir út fyrir dyrnar hjá sorp-
tunnunum, eins og flestir gera nú
iflutningum. Hinsvegarstóðekki
á þvi að það væri þegar I stað
kvartað undan pappakössunum
úr nálægu húsi.- liklega aðeins út
af þvi að þarna attu Vietnamarnir
i hlut...
#Það er reyndar margt sem
Vietnamarnir þurfa aö venjast og
tileinka sér i hinum nýju heim-
kynnum sinum. Þar á meðal er
nýtt timatal. Til gamans má geta
þess að nú þegar fólkið flytur til
Reykjavikur og hjá okkur er
október mánuður árið 1979 er hjá
þessum nýju löndum okkar Ar
geitarinnar samkvæmt kinverska
timatalinu...
# Um þessa helgi fær islenskt
popptónlistarlif góða kynningu i
gósenlandi poppsins, Ameriku.
Stærsta músikritið ameriska,
Billboard birtir nú allitarlega
grein um stöðu islensks popps og
plötuútgáfu eftir Halldór Inga
Andrésson, poppskrifara
Morgunblaðsins. Þykir þetta tals-
verð upphefð þvi Billboard er tal-
iö áreiðanlegasta heimild um
þessi efni vestra, enda gróiö rit,
stofnaö 1894. Ráðgert er að Bill-
board birti pistla frá Halldóri
Inga um islenskt popp a.m.k. árs-
fjórðungslega i framtiðinni...