Helgarpósturinn - 12.10.1979, Blaðsíða 17
17
—helgarpústurinrL.
Föstudagur 12. október 1979
W '
,t
Barnamenn-
ing í athugun
öll aðildarfélögin aö Bandalagi
islenskra listamanna hafa
ákveðið að gangast i sameiningu
fyrir listamannaþingi um barna-
menningu. Þetta var ákveöið á
fundi sérstaklega kjörinnar sam-
starfsnefndar BIL á miðviku-
daginn, og þar var jafnframt
ákveðið, að þingið skyldi fara
fram.aðHótel Borg sunnudaginn
11. nóvember kl. 10-18.
Að sögn Steinunnar Jóhannes-
dóttur, fulltnia Félags Islenskra
leikara i samstarfsnefndinni, var
ákveðið á fundinum, að tilgang-
urinn með þinginu skyldi vera
þrfþættur. í fyrsta lagi að gera
sér grein fyrir ástandinu i barna-
menningu, i öðrulagi hver ábyrgð
listamannsins er gagnvart henni,
og i þriðja lagi að finna út hvaða
leiðir eru til að opna listina fyrir
börnum og jafna möguleika
þeirra til að njóta lista.
A fundinum var jafnframt
reifuð hugmynd um, að banda-
lagið standi fyrir menningarviku
fyrir börn.
Lítíl þúfa
frumsýnd
Kvikmyndin Litil þúfa, eftir
Agúst Guðmundsson, verður
frumsýnd á laugardaginn i
Laugarásbiói. Agúst hlaut á sin-
um tima styrká kvikmynda-
hátiðinni til að gera myndina
og var hún tekin siðari hiuta vetr-
ar, og klippt og frágengin út i
Englandi I vor. Myndin er 62 og
hálf minúta að lengd.
,,Hún lengdist talsvert mikið i
vinnslu”, sagði Agúst. „Við bætt-
um inni nokkrum atriðum, sem
ekki voru i upphaflegu hugmynd-
inni, en reyndar var aldrei til
neitt nákvæmt handrit. Við fórum
stundum aðrar leiðir en tilgreind-
ar voru i handritinu!'
Sjónvarpið hefur nú þegar
fengið myndina til skoðunar en
ekki hefur verið ákveðið með sýn-
ingar þar. Annaö hvort verður
myndin sýnd þar, eða að hún
verður sýnd á opinberum
kvikmyndasýningum, þótt i
styttra lagi sé. Sigriður Atladóttir,
Edda Hólm og Magnús Ólafsson
leika aðalhlutverkin. - — GA
Franski kvikmyndaleikstjórinn Jean-Jacques
Annaud er staddur á íslandi þessa dagana á veg-
um Twentieth Century Fox kvikmyndafélagsins.
Blaðamaður Helgarpóstsins hitti hann á Hótel
Loftleiðum eitt kvöld i vikunni, og spurði hann
fyrst að þvi hvernig stæði á komu hans hingað.
,,Ég er að leita að sviði fyrir
kvikmynd sem ég ætla að gera,
og heitir Eldstriöið. Myndin er
gerð eftir franskri skáldsögu,
sem kom út rétt eftir aldamótin
og naut mikilla vinsælda. Þetta
er skáldsaga, sem gerist á for-
sögulegum tlma, á isöld I hinu
tempraða belti Evrópu, fyrir
um eitt hundrað þúsund árum,
en þá liktist landslagið I Frakk-
landi þvi sem var I Finnlandi
eða á Islandi.
Það sem við varðveitum úr
sögunni, er megin söguþráður-
inn, en þar segir frá flokki
Homo sapiens frá þeim tima er
þeir kunna að nota eldinn, en
kunna ekki að skapa hann. Eld-
landiö á þessari viku sem hann
hefurdvalist hér. Þeir hafa far-
ið um suðurland, i Þórsmörk,
Landmannalaugar, Kaldadal og
norður i land.
Það sem Annaud er m.a. að
leita að, er hellir eöa heiiisskúti,
sem snýr út að eyðilegu lands-
lagi. Ef hann finnur slikan helli
hér, gerir hann ráð fyrir að
verða hér við kvikmyndatöku i
fimm eða sex vikur, annars ekki
nema I tvær til þrjár vikur, þvi
hér segist hann hafa fundið
landslag, sem ekki sé hægt aö
finna annars staöar. Þar sem
sagan geristá isöld, sé nauösyn-
legt fyrir hann að taka myndina
i landi þar, sem kalt er eða liti út
Franski kvikmyndaleikstjórinn Jean-Jacques Annaud á íslandi:
Leitar að staðháttum fyrir
næstu kvikmynd sína
inn hafa þeir fengið úr náttúru-
unni og varðveitt hann kynslóð
fram af kynslóð. En I myndinni
greinir frá ættflokki, sem hefur
glatað eldi sinum og fer að leita
hans.
Þetta verður ekki söguleg
kvikmynd, heldur nálgumst við
forsöguna frá sálfræðilegum
forsendum.”
Meira vildi hann ekki segja
um efni myndarinnar, þar sem
það væri hálfgert hernaöar-
leyndarmál enn sem komið
væri.
Þá sagði Annaud að þetta
væri i fyrsta skipti sem hann
kæmi til Islands. Áður en hann
kom hingaö var hann I Noregi
og Finnlandi i sömu erinda-
gjörðum og hann er hér, en
sagði að liklega tæki hann Is-
land fram yfir.
Asamt öðrum manni frá Fox
kvikmyndafélaginu, hefur Ann-
aud ferðast vitt og breytt um
fyrir að vera kalt, og þaö ætti
ekki að vera erfitt með álla jökl-
ana hér.
Aðspurður um hvort hann ætl-
aði að nota Islendinga i hópsen-
ur myndarinnar, sagði Annaud,
að hann gerði ekki ráð fyrir þvi.
Það þyrfti fólk með ákveðna
likamsbyggingu fyrir þessi
hlutverk og eftir aö fólk hefði
verið valið, þyrfti það að fara I
þriggja mánaöa þjálfun i lát-
bragðsleik og ýmsu fleiru til að
fá á sig frummannlegt yfir-
bragð. Slikar þjálfunarmið-
stöðvar yröi hann með I Los
Angeles og London. Hann myndi
frekar nota innlenda tækni-
menn, þó það kostaði það, aö
hann þyrfti að þjálfa þá upp.
Jean-Jacques Annaud er is-
lenskum kvikmyndahúsagest-
um ekki meö öllu ókunnur, þvi
fyrir skömmu sýndi Háskólabió
mynd hans „Svartir og hvitir I
lit”. Myndin naut mikilla vin-
sælda I Bandarikjunum og hlaut
hún Óskarsverðlaun sem besta
erlenda myndin árið 1977. Um
þá mynd sagði Annaud: „Ég
vildi gera gamanmynd um
fremur alvarlegt efni.”
„Svartir og hvitir”er fyrsta
kvikmyndin sem Annaud gerir,
en i febrúar hófust sýningar á
annarri mynd hans. Heitir hún
„Coup de tete” og með aðalhlut-
verkið fer einn vinsælasti leik-
ari yngri kynslóðarinnar I
Frakklandi, Patrick Dewaere.
En þó Annaud hafi ekki gert
nema tvær kvikmyndir i fullri
lengd, er hann ekki nýgræðing-
ur á sviði kvikmyndageröar, þvi
áður lagði hann stund á gerð
auglýsingakvikmynda og hefur
gert einar 400 slikar.
„Ég stundaði gerð auglýs-
ingakvikmynda, vegna þess aö
ég vildi gera kvikmyndir. Fyrir
mig var það mjög góöur undir-
búningur fyrir það sem ég vildi
Annaud: „Ég virði áhorfendur, ég vil að þeir skemmti sér og ég vil
þjóna þeim.”
gera. Að minu áliti er það betri
undirbúningur en að vera að-
stoðarleikstjóri hjá einhverjum
öðrum.
Með gerð auglýsingakvik-
mynda lærir maður að með-
höndla kvikmyndatæknina. Eft-
ir að ég lauk námi minu i
IDHEC (virtasti kvikmynda-
skóli i Frakklandi), hef ég gert
kvikmyndir á svo til hverjum
degi. Þess vegna þykist ég
kunna kvikmyndagerð betri skil
en flestir kvikmyndagerðar-
menn af minni kynslóð, þvi að
ég hef gert svo margs konar
kvikmyndir, neðansjávarmynd-
ir, gamanmyndir o.fl. Þess
vegna hafa íslenskir kvik-
myndagerðarmenn rétt fyrir
sér þegar þeir gera auglýsinga-
myndir. Þvi fleiri sem þeir
gera, þeim mun meira valdi ná
þeir á tækninni.”
Þá var Annaud spurður að þvi
hverjar væru hugmyndir hans
um kvikmyndagerð almennt.
„Ég er eindreginn stuðnings-
maður kvikmynda, sem ná til
alls þorra almennings og hafa
gæði til að bera. Ég virði áhorf-
endur, ég vil að þeir skemmti
sér og ég vil þjóna þeim. Kvik-
myndir eru mjög alþýöleg list-
grein og kvikmyndagerðar-
menn eru skáldsagnahöfundar
sins tima og vilja að sem flestir
lesi þá." —GB
FJÖLMIÐLAR TEKNIR í RÚMINU
Timamyndin hans Róberts — „einhver skemmtilegasta pólitiska
mynd sem ég hef séð hérlendis I blaði"
Fólk ætti nú að vera farið að
jafna sig eftir hina stórpólitisku
sprengju kratanna fyrra föstu-
dag. Liklega hefur enginn at-
burður á stjórnmálasviðinu
komið mönnum svo i opna
skjöldu hin siðari ár sem sú
samþykkt þeirra alþýöu-
flokksmanna að draga sig út úr
stjórninni — rétt áður en þing
kom saman og án þess að láta
bresta á einu tilteknu málefni.
Akvörðun þessi kom algerlega
flatt upp á almenning sem
kannski er ekki að undra, þvi aö
hún kom pólitlkusum i herbúð-
um hinna flokkanna sömuleiðis
algjörlega á óvart. Leiöarahöf-
undur Morgunblaösins orðaði
það svo, að framsóknarmenn og
alþýðubandalagsmenn hefðu
verið „teknir i rúminu”. En
ekki nóg með það — allir fjöl-
miölar landsins voru teknir með
þeim í rúminu.
Það er fróðlegt að velta þvi
fyrir sér hvers vegna fjöl-
miðlarnir — allir sem einn —
sváfu svona á verðinum. Það
liggur fy rir að af hálfu kratanna
var þetta engin skyndiákvörð-
un. Tillaga um að flokkurinn
drægi sig út úr stjórninni hafði
verið reifuð á þingflokksfundi
amk. 10 dögum áður en sam-
þykktin sjálf var gerð og þá var
ákveðið að biða færis. Á þing-
flokksfundum Alþýðuflokksins
sitja liðlega 15 manns og það
verður að teljast meiriháttar af-
rek að þeim skyldi takast að
fara svo hljóðlega með þessa
fyrirætlun sina, sérstaklega
þegar þess er gætt að ekki rikti
fullkomin eindrægni um þessa
ákvörðun innan þingflokksins
og eins að þingflokkurinn hefur
löngum haft það orð á sér i
blaðamannastdtt að vera allra
flokka „lekastur”.
Þáttur þeirra alþýðuflokks-
manna i þeirri opnu blaða-
mennsku sem rekin hefur 'verið
frá þvi I siðustu kosningum er
ekki litill, en kratar gátu sem
sagt þagað þegar á reið. Að
sönnu hafði verið hintað og það
kvisast út að eitthvaö stæði til I
herbúöum krata. Vegna ná-
býlisins við málgagn flokksins
fór heldur ekki hjá þvf að við
Helgarpóstsmenn yröum varir
við um tima að þar væri eitt-
hvað á seiði. Það varð hins veg-
ar ekki orð togað upp úr ná-
grönnunum, svo að við slógum
þann varnagla i baksiðuslúörinu
okkar að staðhæfa að eitthvað
mikið stæöi til hj& krötum. Það
heyrðist ekki múkk i einum ein-
asta stórkrata i slðdegisblöðun-
um og þá hlytu þeir að meina
eitthvað með þvi. Striðnin hreif
ekki. Ekkert gerðist og við
héldum að þarna hefði aðeins
verið á feröinni enn ein krata-
blaðra, sem sprungið hefði áður
en hún var blásin upp. Helgar-
pósturinn, nýkominn á göturn-
ar, steinsvaf þvi þegar sjálf
sprengjan féll.
Gera má ráö fyrir að fleiri
fjölmiðlar hafi haft ávæning af
þvi að eitthvað væri um að vera
hjá krötum en hafi falli i þessa
sömu gryfju — að geraráö fyrir
að ekkert gerðist fyrr en þing
væri hafið. Aðeins einn maöur i
blaðamannastétt hefur vitað
fyrir vist hvað til stóð. Þaö var
ritstjóri Alþýðublaðsins, en
hann steinþagði eins og gefur aö
skilja. Liklega hafa Morgun-
blaðsmenn verið næstir þvi að
ná „fréttinni”. Strax á fimmtu-
dagskvöld voru þeir komnir á
sporið, höfðu samband við
áhrifamann I flokknum, sem
sannfærði þá um að ekkert væri
að gerast. Þessi sami maður
var fljótur aö biðja þá
afsökunar þegar haft var sam-
band við hann strax eftir þing-
flokksf undinn örlagarika.
Moggamenn urðu að skilja af-
stöðu hans, — „plottiö” valt á
þögninni.
Hins vegar er það rangt sem
haldið hefur verið fram að á
fóstudeginum hafi fréttin lekið
út frá framsóknarmönnum og
alþýðubandalagsmönnum eftir
að Benedikt hafði haft samband
við Olaf og Lúðvik. Morgun-
blaösmenn voru búnir aö ná
sjálfir i Benedikt áður en honum
haföi gefist timi tilaö tala við þá
tvimenningana. En engu aö
siöur sat Morgunblaöið uppi
með sárt ennið þegar upp var
staöiðoggat fátteitt nýtt lagt til
málanna þegar það kom út á
laugardeginum. Rikisfjöl-
miðlarnir höfðu nefnilega tekið
við sér, þótt liðiö væri á föstu-
dagskvöidið. Sjónvarpiö rauf
dagskránna til aö flytja lands-
lýð fréttirnar og fréttastofa út-
varpsins fyllti svo upp i mynd-
ina i hálfellefufréttatímanum og
i sfðustu fréttum. Timinn
bjargaði andlitinu með aldeilis
forkostulegri mynd Róberts af
Benedikt Gröndal á kafi i k&tum
kratakonum, einhverri
skemmtilegustu pólitisku mynd
sem ég hef séð hér i dagblaði.
Þjóðviljinn var illur eins og
vænta mátti, en siödegisblöðin
sátu algjörlega eftir. Visir
hrissti þó hressilega af sér
sljóruorðið strax sl. mánudag
með skoðanakönnun sinni, sem
vakti mikla athygli og hefur
vafalaust selt blaðið vel og
verðskuldaö, þvi aö þetta var
snaggaralega gert hjá þeim
Visismönnum.
HfTjjí
Fjölmidlun
eftir Björn Vigni Sigurpálsson