Helgarpósturinn - 12.10.1979, Side 24

Helgarpósturinn - 12.10.1979, Side 24
__helgarpásturinn_ Föstudagur 12. október 1979 # Kratar og sjálfstæðismenn þinguðu mikið hvor i sinu lagi i gær hvor flokkurinn ætti aö taka að ser minnihlutastjórnina til að rjúfa þingiö og sitja fram að kosningum. Kratar munu þó hafa samþykkt á þingflokksfundi seinnipartinn í gær að þeir væru tilbúnir i slaginn og þeir tækju þar með boði Geir Hallgrimsson- ar frá því i fyrradag aö mynda minnihlutastjórn. Hins vegar er ekki eins víst að sjálfstæðismenn hafi i gær veriö jafn fúsir að láta minnihlutastjórnina af hendi og þeir voru áöur þvi að vaxandi stemmning var fyrir þvl innan flokksins að þeir sjálfir tækju minnihlutastjórnina aö sér. Um þetta stóð tafliö i gærkvöldi. En fái kratar stjórnvölinn munu þeir Sighvatur Björgvinsson og Vil- mundur koma mjög til álita sem nýir ráðherrar auk hinna þriggja. # Þegar eru menn farnir að velta fyrir sér framboðsmálum flokkanna ef til desemberkosn- inga komi eins og margt bendir til. t herbúðum krata eru ýms- ar hræringar enda er ekki óeðli- legt að upphafsmennirn- ir séu fyrstir af stað. Talið er fullvist að Bragi Nielsson sem var uppbótarmaður krata á Vesturlandi fari ekki fram á nýj- an leik. Likur eru taldar á, að við hans sæti taki, Sveinn Hálfdánar- son frá Borgarnesi. Þá mun ým- islegt benda til þess að Bragi Sig- urjónssonsé farinn að þreytast og hyggi ekki á framboð i Norður- landi eystra. Flestir myndu þá ætla að Arni Gunnarsson flyttist upp i fyrsta sætiö, en málið er ekki svo einfalt. Jón Armann Héöinsson sem lengi var krata- þingmaður Reykjaneskjördæmis hefur lýst þvi yfir I einkaviðræö- um, að hann fari i prófkjör fyrir norðan og ætli sér fyrsta sætið á listanum. Jón á allsterkan frænd- garð fyrir norðan, sérstaklega á Húsavik, svo búast má við harðri baráttu. Þá verður aö llkindum hart barist á Vestfjöröum milli Karvels Pálmasonar og Sighvats Björgvinssonar og gæti það orðiö jafn slagur. Ovist er og hvort Bjarni Guðnason hafi áhuga á Austfjaröarkjördæmi á nýjan leik. Ekki má gleyma stóru kjör- dæmunum, Reykjavik og Reykja- nesi. 1 Reykjanesi fara sömu mennframogsiðast, þ.e. Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráð- herra, Karl Steinar Guðnason og Gunnlaugur Stefánsson. Ýmsar blikur eru þó á lofti um röð þess- ara manna á listanum og mun prófkjörsbarátta væntanlega háð af krafti um tvö efstu sætin. I Reykjavik er spurningin hvort Vilmundurgerir ööru sinni haröa atlögu að Benedikt ftokksfor- manni og vilji steypa honum úr 1. sæti listans. Þá gæti Jóhanna Sig- urðardóttir einnig komið inni myndina varðandi 1. og 2. sætið á listanum. Ekki er og talið fjarri lagi að Bragi Jósepsson sem nú dvelst i Bandarikjunum mæti til leiks er prófkjör nálgast og vilji sinn bita af kökunni-Þaðersem se hatrömm og miskunnarlaus próf- kjörsbarátta framundan hjá kröt- unum. Margir kallaðir en fáir út- valdir... # Areiöanlegar heimildir herma, að fyrir austan Fjall sé hafin undirskriftaherferð til stuðnings forsetaefni i forseta- kosningunum sem væntanlega verða á næsta ári. Það eru þó ekki stuöningsmenn Alberts sem eru komnir af stað, heldur Péturs Thorsteinsson, sem einnig hefur verið nefndur sem væntanlegur frambjóðandi. Heimildarmaöur okkarsegir, aö á listanum sé yfir- lit yfir helstu atriði ferils Péturs, en hann er núna sendiherra Is- lands gagnvart rikjum þriðja heimsins... #,,Kvöldljóð” Asgeirs Tómas- sonar' blaðamanns á Dagblaðinu, sem hafa hljómað á laugat'dags- kvöldum I útvarpinu slðastliðið ár, munu senn renna si.tt skeið á enda. Var Asgeiri tilkynnt þaö I vikunni, að „kvöldljóðin” myndu falla út af dagskrá frá og meö vetrarkomu. Er talið að tónlistar- deild útvarpsins eigi þarna hlut að máli, en hún hefur krafist þess að fá að „producera” alla tónlist- arþætti sem sendir eru út aö kvöldlagi... # Þess er beðið með töluverðri eítirvæntingu hvernig Leik- félagsmenn munu ráða ráðum sinum varðandi nýjan leikhús- stjóra og vinna úr þeim átta um- sóknum sem bárust. Leikfélagið mun stefna að mjög lýðræðislegri ákvörðunartöku i þessu efni. Akveðið hefur verið að efna til skoðanakönnunar um alla umsækjendurna meðal allra starfandi félaga i L.R. og er stefnt að þvi að hún fari fram eftir frumsýningu Ofvitans eða 20. september að þvi áætlað er. Skoðanakönnun þessi verður þó ekki bindandi fyrir stjórn Leik- félagsins heldur mun hún taka mið af niðurstöðum hennar. En eftir að stjórnin hefur sjálf tekið ákvörðun mun málið fara fyrir aðalfund Leikfélags Reykjavikur sem gert er ráð fyrir að halda fyrir miðjan næsta mánuð... # Þau eru sum skritin verkefn- in sem ráöherrarnir þurfa aö kljást við. Þannig hiöfum við það fyrir satt, aö Ragnar Arnalds, sem er ennþá menntamálaráð- herra þegar þetta er skrifað, hafi i haust þurft aö skrifa nafnið sitt 1600 sinnum — endurtek sextán- hundruð sinnum — undir skipun- arbréf handa kennurum i skóla- kerfinu. Okkar reiknast til að hafi ráöherrann gert þetta I einni ' striklotu, þáhafi hann verið heil- i an dag að þvi að skrifa nafn sitt I og gert ekkert annaö á meðan... | ® Ólafi Hauki Simonarsyni er greinilega margt til lista lagt. Hann hefur gefið út ljóðabækur, skáldsögur, hann á leikrit á sviði um þessar mundir, hljómplata hefur verið gefin út með verkum hans, og önnur slik er væntanleg innan skamms. A nýju plötunni (Hattur og Fattur) sýnir hann enn nýja hlið á sér. Hann ku hafa verið eitthvað óhress með hvern- ig eitt laganna á plötunni var sungið, og vatt sér inni stúdió og söng það sjálfur. Ekki ætlaðist hann til að söngurinnyrði þrykkt- ur á plast, en svo vel þótti honum takast upp að allir viðstaddir hvöttu hann til frekari dáða, og hann lét undan. Þykir hann nú meö meiriháttar uppgötvunum ársins á sviði rokksöngs... # Pönk-og nýbylgjuhljómsveit- ir svokallaðar er það sem nú er hvað mest umtalað i poppheimin- um svokallaða. Hingað hafa þó engar slikar hljómsveitir komið hingað til ef frá er talin heimsókn The Stranglers I fyrra sællar minningar. Nú mun hins vegar liggja fyrir að einn af frumkvöðl- um þessarar tónlistar Johnny Rotten, sem nánast reið á vaðið með þessa tónlist, hefur áhuga á að koma hingað til lands i nóv- ember eða janúar næstkomandi og halda hljómleika með sveit sinni sem nefnist Public Image. Johnny Rotten er annars frægast- ur fyrir aðild sina að illræmdri hljómsveit sem hét Sex Pistols. Nú hefur hann breytt um hljóm- sveit, — og nafn og kallar sig Johnny Lydon. Það eina sem er þvi til fyrirstöðu aö Johnny Lydon og Public ImageLtd. komi hingað er að nú vantar fjársterkan aöila til að annast hljómleikahaldið. Slikur maður ætti að gefa sig fram... # Poppiðnaðurinn islenski er með daufara móti sem kunnugt er og innlend hljómplötuútgafa á ekki sjö dagana sæla. Þannig hef- ur Hljómplötuútgáfan hf. nú hætt við aðsenda sina árlegu jólalaga- plötu á markað og einnig plötu Pálma Gunnarssonar sem 1 bi- gerð var. Markaðurinn verður þó ekki alveg jólaplötulaus þvi Gunnar Þórðarson og Björgvin Halldórssoneru að undirbúa gerð slikrar plötu. Gunni og Bjöggi munu þvi syngja jólalögin i ár... # Mikil uppstokkun mun vænt- anlega eiga sér stað á þættinum 1 vikulokin áöur en langt um liður. Allir núverandi umsjónarmenn þáttarins eru að hætta, að Guö- jóni Friðrikssyni undanskildum, þ.e.a.s. þau Edda Andrésdóttir, ólafur Hauksson og Kristján Guðmundsson.Að mestu mun frá gengiö að þeir fóstbræðurnir Guð- mundur Arni Stefánsson, Helgar- póstsmaður, og Hjálmar Arna- son, Grindavikurskólastjórinn fyrrverandi, gangi til liðs við Guðjón I Vikulokunum en ennþá er veriö að skyggnast um eftir fjórða umsjónarmanninum. Má búast við að hann veröi kven- kyns... • Slúðurgeturhafthinaralvar- legustu afleiðingar eins og mönn- um ætti að vera kunnugt. Dæmi um það er-sá orðrómur, sem kom uppá sinum tima, að Sigurður A: Magniíssonværiaö flytja alfarinn úr landi og ætlaði að setjast að I Grikklandi. Það varð til þess að skattyfirvöld á Islandi sáu ástæðu til að leggja á hann einnar milljón króna aukaskatt. Sigurður er hinsvegar ekki meira alfarinn en það, að hann býst viö að koma heim aftur næsta haust. I Grikk- landi var hann reyndar í sumar og vann sér það til frægðar að leika i griskri stórmynd. En lengst af hefur hann verið I Vest- ur-Berlin þar sem hann hefur þegar skrifað eina bók og vinnur að annarri. Auk þess hefur hann leikrit I smiðum. Fyrir þetta ætti hann að hafa einhverjar tekjur, og skattyfirvöld geta þvi beðið ró- leg eftir sinu úr hendi Sigurðar A.... # Augu þingheims beindust mjög að Albert Guðmundssyni við setningu þingsins sl. miöviku- dag. Athugulir gárungar á þing- bekkjunum halda þvi fram að Al- berthafi setið stifur undir töludr. Kristjáns Eldjárns, forseta Is- lands við setningarathöfnina en hafi haldið áfram að sitja stifur eftir að Kristján hafði lokið lestri sinum á forsetabréfinu. Boðskap- urinn sem Albert vænti frá for- seta kom nefnilega alls ekki — það er yfirlýsing um að hanngæfi ekki kost á sér til endurkjörs á næsta ári...

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.