Helgarpósturinn - 15.08.1980, Síða 13
13
halrjarpnezfl irinn Föstudagur 15. ágúst 1980
rækja þig fyrir leiklistina?
„Nei, þaö hefur mér aldrei
fundist” sagöi Ragnheiöur. „Ég
hef alltaf haft þaö á tilfinning-
unni aö ef eitthvaö kæmi upp á
þá myndi ég ganga fyrir öllu
ööru.”
Margrét lék ekki mikiö á
meöan Ragnheiöur var litil. Um
tima var hún alveg heima vegna
sjúkdóms og var þá mikiö meö
þessari einu döttur sinni.
„Ég lagöi mig meö henni á
daginn og sofnaöi meö henni á
kvöldin á timabili”, sagöi Mar-
grét.
Meö þeim mæögum
mynduöuststerk tengsl sem enn
i dag eru mikil.
„Ég tala helst viö mömmu i
sima einu sinni á dag, ef viö ekki
hittumst” sagöi Ragnheiöur.
„Bara til þess að vita hvernig
liöur. Þó veit ég aö ef eitthvaö
kæmi fyrir myndi hún hringja
strax i mig. Kannski væri þetta
öðru visi ef börnin heföu veriö
fleiri. Maöur veröur kannski
einum of tillitssamur og of háö-
ur sem einbirni.”
Alltaf getað talað um
allt
Fiimst þér þú vera háð
foreldrum þinum?
„Já, ég er það held ég”.
„Mér finnst þaö nú hafa
breyst i seinni tiö, sagöi
Margrét móöir hennar.
„Það ferilla með mig aö gera
eitthvað sem ég veit aö myndi
særa mömmu”, sagöi Ragn-
heiöur. „Ég geri mikiö af þvi að
leita ráöa hjá henni bæði I sam-
bandi viö praktíska hluti og
annaö. Ég hef alltaf getaö talaö
viöhana um allt. Ef þaö er eitt-
hvaö sem ég er aö velta fyrir
mér, þá leita ég frekar meö það
til pabba og mömmu en til ein-
hverrar vinkonu minnar Uti i bæ
á svipuðum aldri”.
Ef þér er illa við aö særa
mömmuþinahindrar þaö þig þá
ekki i aö gera hluti sem þig
langar til?
„Aö sjálfsögðu hefur það gert
þaðað vissu leyti. En ef það hef-
ur veriö eitthvaö sem hefur
nagaö mig, sem mér hefur
fundist aö ég ætti aö gera en
vitaö aö pabbi og mamma hafa
veriö mótfallin, þá hef ég getaö
komiö og rætt þaö viö þau. Og
þá hefur kannski veriö hægt aö
finna einhverja lausn”.
Alltaf montin af
mömmu
Tekurðu þá ekki örlagarika
ákvöröun i lifinu nema ráöfæra
þig við foreldra þina fyrst?
„Jú, þaö geri ég”.
„Ef þaö hafa veriö hlutir sem
hafa varöaö okkur öll þá hefur
það veriö rætt”, sagöi Margrét.
„Þá hefur oftast nær einhver
þurft aö láta i minni pokann, en
þá vita allir hvemig hinum liö-
ur. Viö höfum mikið lifaö eftir
mottóinu hennar mömmu aö öll
mál hafi fleiri hliöar en eina.”
Heldur þú Margrét aö þú hafir
haft mikil áhrif á hvernig kona
dóttir þin hefur oröiö?
„Ég held ég hljóti aö hafa haft
þaö. Ég hef náttúrlega oröiö
henni fyrirmynd”.
„Ég var alltaf svo montin af
mömmu þegar ég var litil”,
sagðiRagnheiður. „Hún var svo
ung og sæt. 1 mörg ár svaraöi ég
þvi alltaf til að hún væri 2-7 ára
þegar ég var spurö aö því hvaö
hún væri gömul”.
Var þaö til að likja eftir henni
að þú geröist leikkona?
„Mér fannst mamma
skemmtileg og góö sem leik-
kona og var ósköp stolt af henni.
En þaö var ekki til þess aö veröa
eins og hún sem ég ákvaö aö
gerast leikkona”.
„Hún var alltaf meö okkur á
æfingum”, sagði Margrét og
þaö var lifaö og hrærst i leiklist-
inni á heimilinu og utan þess.
Það hefur sjálfsagt haft sin
áhrif”.
Dóttirin aldrei hindrun
i starfinu
Það er talað um aö dæturnar
erfi galla mæðranna, þú hefur
ekki haft áhyggjur af þvi aö
Ragnheiöur erfði þina?
„Heiöa hafði enga galla að
erfa” sagöi Margrét og skellihló
og Ragnheiöur bætti hlæjandi
viö:
„Ég fékk alla gallana frá
pabba, mamma var svo full-
komin”.
„Ég átti það nú til að vera
ansi dómhörð á fólk hér áöur
fyrr. Var svolitiö fljótfær”,
sagöi Margrét. „En þau hafa
vanið þaö af mér feðgin. Ég er
svo ör, en Heiöa hefur erft skap-
lyndi föður sins”.
Einhverntima hlýtur að hafa
kastast i kekki á milli ykkar
eins og annarra?
„Já það var dálitið merkilegt
og tók bara hálfan mánuð”,
sagöi Margrét. Viö uröum ó-
sammála i sambandi viö föt.
Heiöu þötti ég svo skelifing
púkaleg i þeim efnum”.
„Það hafa stundum komið
erfið timabil”, sagði Ragnheið-
ur. „En það hefur alltaf jafnað
sig”.
Fannst þér Ragnheiöur aldrei
vera þér hindrun i starfi
Margrét?
„Nei, þvi hef ég aldrei tekið
eftir”, sagði Margrét. ,,Ég held
að besta hlutverkið sem ég hef
fengið hafi verið þegar ég eign-
aðist stelpuna”.
Og ertu ánægð með hana?
„Ég er agalega stolt af henni.
Það hljóta flestar mæður að
vera það af börnunum sinum”.
Vorkenni konum sem
eiga ekki dætur
Ingibjörg Ýr Pálmadóttir
kennari er 49 ára gömul og móð-
ir sjö barna, fimm sona og
tveggja dætra. Yngsta dóttirin
Dagný Bergþóra Indriðadóttir
er nú 15 ára, nýbúin aö ljúka
námi i Kvennaskólanum og er á
leiöinni i IVJenntaskólann i
Hamrahliö meö haustinu.
Ingibjörg var spurð að þvi
hvaö hún legði áherslu á i upp-
eldi dætra sinna.
„Ég vil að þær verði. sjálf-
stæðar og ánægðar með sitt
hlutskipti” sagði Ingibjörg.
Verði sér úti um menntun svo
þær geti orðið fjárhagslega
sjálfstæðar”.
Finnst þér samband mæðra
viö dætur sinar öðru visi en við
synina?
„Það getur sjálfsagt verið
einstaklingsbundið eftir hverju
barni, en mér finnst stelpurnar
Dagný Indriöadóttir og Ingibjörg Ýr Pálmadóttir
eiga meira sameiginlegt meö
mér. Þó get ég alveg talaö viö
strákana. Ég vorkenni konum
háifpartinn sem ekki eiga dætur
og mér fannst ég óskaplega
mikill einstæöingur eftir aö
mamma min dó. Ég átti enga
systur og ég held aö I systkina-
hópi leiti systur meira hvor til
annarrar en til bræöranna”.
Svo er hægt að fara að
hugsa um giftingu
Hvað finnst þér mikilvægast
aögera ilifinu Dagný,gifta þig?
„Ég veit það ekki. Ég vil læra
eitthvað ákveðið og fara svo út
að vinna. Svo er hægt að fara að
hugsa um giftingu”.
Finnst þér mikið vera lagt
upp úr þvi meðal þinna jafn-
aldra að gifta sig sem fyrst?
„Nei, það finnst mér alls
ekki”.
„Þaö var nú i minu
ungdæmi”, sagöi Ingibjörg.
Þó foreldrarnir vilji að dæt-
urnar verði sjálfstæðar, leggja
þeir þá ekki mikið upp úr þvi að
þær gifti sig?
„Það er nú kannski ennþá”,
sagði Ingibjörg. „En maður sér
hvaö það er mikilvægt að þær
fái sér eitthvert starf, maður
sér það með mina kynslóð.
Stelpurnar giftu sig og hættu i
námi, svo löngu seinna fóru þær
aftur i nám til þess að öölast
einhver starfsréttindi”.
En að ala dæturnar upp i þvi
að vera fjárhagslega sjálfstæð-
ar og vinna úti. Er það ekki
ósamræmanlegt þvi að þær gifti
sig siðan og eignist börn?
„Mér finnst það vera að auk-
ast mjög mikið að konur taki
háskólapróf og vinni úti þó þær
eigi börn. Þegar ég var stelpa
voru þær konur sem eitthvað
komust áfram i atvinnulifinu
undantekningalaust piparjónk-
ur”.
Get frekar rætt við
mömmu en pabba
Getiö þiö mæðg
ur rætt um
alla hluti?
I>
24
A 0M |k
, w
AFSLA TTUR
Okkar árlega haustútsala stendur yfir
GLÆSILEGT VÖRUÚRVAL
~VEridistinjL_
Hverfisgötu 56 ■ Sími 1-24-60
Við hliðina á
Regnboganum